Bændablaðið - 17.01.2019, Page 6

Bændablaðið - 17.01.2019, Page 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 20196 Síðastliðinn föstudag var skrifað undir samkomulag um endurskoðun sauðfjár- samnings. Þar með er lokið endurskoðun eins af fjórum samningum, hina þrjá þarf að klára á næstu mánuðum. Þessi vinna hefur tekið nokkra mánuði eins og algengt er með slík verkefni. Samningsaðilar höfðu hvor um sig sín sjónarmið og væntingar meðan á því stóð. Niðurstaðan er að lokum sameiginleg og allir standa saman að henni þó auðvitað sé það þannig að hvorugur aðilinn hafi náð öllum sínum áherslum fram. Breytingar á sauðfjársamningi litast mjög af því alvarlega ástandi sem hefur verið í greininni með gríðarlegu verðfalli á afurðum bænda og erfiðleikum í sölu á kjöti. Þess vegna er reynt að draga úr framleiðsluhvata stuðningsgreiðslna á síðari hluta samningstímans og opnað á að sauðfjárbændur geti í einhverjum mæli farið út í aðra atvinnustarfsemi á jörðum sínum og haldið tímabundið stuðningi úr sauðfjársamningi. Skilyrði fyrir slíkum samningum er veruleg fækkun á fé viðkomandi og að settar séu fram trúverðugar áætlanir um aðra atvinnustarfsemi á viðkomandi jörð. Lokað fyrir frjáls greiðslumarksviðskipti Þá er lokað fyrir frjáls viðskipti með greiðslumark og settar verða leikreglur sem miða að því að þeir sem eiga lítið greiðslumark miðað við fjárfjölda verði í forgangshópi þegar kemur að kaupum. Það verður útfært í reglugerð. Verðið verður fyrirfram ákveðið þannig að bæði þeir sem eru að kaupa og selja vita að hverju þeir ganga. Einnig er nýmæli í samningnum að fundinn er farvegur fyrir fjármagn til að styðja við markaðsfærslu sauðfjárafurða ef afurðastöðvar lenda í viðlíka ástandi og árin 2016 og 2017 þar sem fór saman hátt gengi á íslensku krónunni, lágt verð á kjötmörkuðum erlendis og miklar launahækkanir innanlands. Hagræðing hjá afurðastöðvum Mikilvæg bókun er í samningnum um hagræðingu hjá afurðastöðvum. Það er gagnkvæmur skilningur samningsaðila að möguleikar séu til staðar til aukinnar hagræðingar sem geti skilað sér hærra afurðaverði til bænda ásamt betra vöruúrvali og hagstæðara verði til neytenda. Kolefnisverkefni á vegum sauðfjárbænda Síðast en ekki síst er vert að nefna að í þessum samningum var rætt um kolefnisverkefni á vegum sauðfjárbænda. Við treystum að þau hefjist á næstu misserum. Þau munu skapa atvinnu til sveita og um leið auka tekjumöguleika sauðfjárbænda. Það eru æ fleiri sem gera sér grein fyrir því að sá tími sem við höfum til að bregðast við loftslagsbreytingum og hlýnun jarðar styttist hratt. Markmið bænda er alltaf að skila náttúrunni í betra horfi en þeir tóku við henni. Þetta er stór liður í því og örlítið lóð á vogarskál þess að leysa þetta stóra vandamál sem alheimurinn stendur frammi fyrir. Landrými er lykilatriði til að ná árangri við kolefnisbindingu. Sauðfjárbændur eiga mikið af landi sem hægt er að nýta í þessi verkefni og búa einnig yfir mikilli þekkingu og tækjakosti til að takast á við þessi verkefni. Nauðsyn að hækka afurðaverð Það er samt þannig að okkur er nauðsyn að hækka afurðaverð verulega til bænda á næstu árum ef þessi atvinnugrein á að eiga sér framtíð. Sauðfjársamningurinn sem slíkur hefur ekki úrslitaáhrif á framtíð greinarinnar. Markmið bænda hlýtur að vera að sem stærstur hluti af heildartekjum greinarinnar komi frá afurðaverðinu. Framtíð þessarar atvinnugreinar veltur á hvernig þar tekst til en ekki á því hvernig skipting fjármuna í búvörusamningi er. Núna er ýmislegt sem fellur á þann ás að það geti verið fært að hækka afurðaverð. Útflutningur gengur betur en síðustu misseri og það eru góðar vísbendingar um að það sé að nást árangur á erlendum mörkuðum sem geti skilað okkur sama verði eða hærra en hér heima. Þannig að ég trúi því að botninum sé náð og við séum byrjuð að feta okkur upp á við. Þó svo að leiðin sé löng að því marki að afkoman sé ásættanleg, er þó jákvætt ef við erum að fara í rétta átt. Nú mun hefjast vinna við að endurskoða hina þrjá samningana. Niðurstaða þarf að liggja fyrir sem fyrst um framtíð kvótakerfis í mjólk. Það er víða verið að byggja fjós sem hafa mikla framleiðslugetu og ég sé ekki annað en það þurfi þá að leggja af nánast jafnmikla framleiðsluaðstöðu og verið er að byggja upp. Það verður mikil áskorun að ná jafnvægi að þessu leyti þar sem ekki virðist raunhæft að flytja út mjólkurafurðir svo neinu nemur. Varðandi garðyrkjusamning og ramma- samning held ég að það sé ekki að vænta stórra breytinga. Þó þarf að taka til umræðu í tengslum við rammasamninginn innflutning á landbúnaðarvörum og tollamál. Mögulegur stóraukinn innflutningur Umhverfi landbúnaðarins er alltaf að breytast og stærsta ógnin nú er mögulegur stóraukinn innflutningur á kjöti og mjólkurvörum. Þessi umræða er ekki auðveld, en okkar sterkasta vopn er og verður að halda á lofti hreinleika okkar afurða. Þar þyrftum við að ná samstarfi við verslunina á Íslandi um að hampa okkar sérstöðu að þessu leyti. Að því er unnið meðal annars með hugmyndum um skýrari upprunamerkingar. Við verðum að hafa skilning á því að íslenskir neytendur beri saman verð á íslenskum og erlendum landbúnaðarafurðum. Þess vegna eigum við að halda á lofti sérstöðu og gæðum okkar afurða. Ríkisstuðningur við íslenskan landbúnað er sennilega nokkuð mikill miðað við aðrar þjóðir. Það á ekki síst við um sauðfjárræktina. En menn verða að muna að það fæst meira fyrir þennan ríkisstuðning en matvara fyrir neytendur. Þar má nefna íslenskar ullarvörur og gærur sem eru vinsæl ferðamannavara. Það er gríðarlegur áhugi þéttbýlisbúa og ferðamanna að fylgjast með og taka þátt í göngum og réttum. Sauðfjárræktin er líka og verður undirstaða byggðar í einstökum landshlutum. Sums staðar standa og falla mjög stór svæði með þessari atvinnugrein en á öðrum stöðum eru áhrifin kannski minni en þó aðalatvinna í einstökum sveitum. Að styrkja íslenskan landbúnað Mér hefur þótt lærdómsríkt og skemmtilegt að taka þátt í vinnu við endurskoðun búvörusamninga. Við sem tökum slíkt að okkur höfum það alltaf að meginmarkmiði að styrkja íslenskan landbúnað, og gera hann færari um að standast samkeppni, þó svo að bændum sýnist sitt hverjum um árangurinn. Þannig er það alltaf. Nú liggur fyrir að fara um landið á nokkra fundi og kynna endurskoðaðan sauðfjársamning. Ég vil að lokum þakka samninganefnd ríkisins og atvinnuvegaráðherra samstarfið við endurskoðun sauðfjársamnings. Bændablaðið kemur út 2 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á y r stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.900 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgara kostar 5.450 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Frábær árangur Íslenskir bændur eru greinilega engir eftirbátar kollega sinna í öðrum Evrópulöndum þegar kemur að ræktun og umhirðu á kúastofninum. Samt telja ýmsir að ójöfnu sé saman að líkja þar sem bændur hér búa við stofn sem ræktaður hefur verið upp úr tiltölulega litlum stofni landnámskúa á meðan erlendir bændur byggja á fjölþættri ræktun sem hefur getað nýtt mikla erfðablöndun. Þrátt fyrir þetta hafa íslenskir bændur greinilega sýnt afburða hæfni í ræktun á íslenska kúastofninum. Íslenskar kýr vega nú að jafnaði nálægt 450 kg, en Holstein kýr, sem mikið eru nýttar til mjólkurframleiðslu í Evrópu og Bandaríkjunum eru um 680 til 770 kg að þyngd. Ætla má að fóðurþörf sé í nokkru samræmi við þyngd og því ættu íslensku kýrnar að vera talsvert þurftarminni en stóru erlendu frænkur hennar. Það vekur athygli að afurðahæstu kúabúin á Íslandi eru að skila hátt í 9.000 kg að meðaltali eftir hverja kú og flest að skila á bilinu 7.000 til 8.000 á hverja árskú að meðaltali. Fjöldi mjólkurkúa á Íslandi er um 26.700 og voru afurðahæstu kýrnar að skila nærri 14 tonnum af mjólk á síðasta ári. Þegar rýnt er í nýjustu tölur frá evrópsku hagstofunni Eurostat um mjólkurframleiðsluna sem ná yfir árið 2016, þá má sjá mjög athyglisverðan samanburð. Einhver breytileiki er í framleiðslunni á milli ára, en líklegt að eftir þurrka síðasta sumar sé framleiðsla nú t.d. lakari en oft áður. Þá bera að geta þess að kýr evrópskra bænda eru af mörgum ólíkum stofnum með mjög ólíka eiginleika þótt Holstein kýrnar séu þar áberandi, enda afurðahæstu kýr heims þegar vel er að eldinu staðið. Í 28 ríkjum Evrópusambandsins voru ríflega 23,5 milljónir mjólkandi kúa 2016 sem framleiddu 168,3 milljónir tonna af mjólk. Að meðaltali voru þær að skila 6.932 kg af mjólk á ári. Danir eru þar að ná bestum árangri með að meðaltali rúmlega 9.600 kg. Eru Danir þar næstir á eftir bandarískum kollegum sínum sem hafa verið að ná bestum árangri á heimsvísu. Lakasti árangurinn er í Rúmeníu en þar er árskýrin að meðaltali að skila um 3.200 kg og í Búlgaríu eru þær að skila um 3.600 kg. Líkt og á Íslandi eru afurðahæstu kúabúin að framleiða talsvert meira en meðalbúin. Þannig geta t.d. afurðahæstu dönsku kúabúin verið að skila yfir 10–12.000 kg á árskú að meðaltali en Holstein kúakynið er um eða yfir 70% af kúm danskra bænda. Til eru dæmi um að Holstein kýr geti mjólkað yfir 32.000 lítra af mjólk á ári, eða ríflega tvöföld afköst afurðahæstu íslensku kúnna, þó það sé kannski ekki mjög algengt. Þegar horft er á árangur íslenskra kúabænda í þessu víða samhengi, þá eru þeir óneitanlega að ná mjög góðum árangri með sinn kúastofn sem verið hefur erfðafræðilega mjög einangraður frá upphafi byggðar á Íslandi. Ef miðað er við tölur Eurostat um bændur í Evrópusambandinu, sem nýta önnur og oft mun afkastameiri kúakyn, þá eru íslensku bændurnir líka að standa sig afar vel í þeim samanburði. Íslendingum er skylt samkvæmt markmiðum Sameinuðu þjóðanna að vernda íslenska kúastofninn. Íslenskir kúabændur hljóta því að eiga það skilið að þeirra stöðu verði ekki ógnað, t.d. með óhóflegum innflutningi á mjólkurvörum og kjöti sem stórskaðað getur þeirra afkomu. /HKr. Endurskoðun sauðfjársamnings í höfn Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – etfang auglýsinga: augl@bondi.is Vefur blaðsins: www.bbl.is bbl@bondi.is ÍSLAND ER LAND ÞITT Einar Ófeigur Björnsson í stjórn Bændasamtaka Íslands einar@lon2.is Lónslón í Kelduhver fyrir botni Axarfjarðar austan við Tjörnes í orður-Þingeyjarsýslu. m er að ræða tvö samtengd lón, Innra- og tra-Lón samtals um 3, m2 að stærð. Þau eru að mestu aðskilin með grófu malarri . Við suðausturenda Lónslóns er bærinn Lón II, en þar býr Einar feigur Björnsson, sem er höfundur greinarinnar hér fyrir ofan. Lónslón er vestast þriggja stöðuvatna í Kelduhver , en austar er Víkingavatn 2, m2 og síðan Skjálftavatn sem myndaðist í jarðskjálftum veturinn 5 og er um m2 að stærð. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.