Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 7
LÍF&STARF
Með gleðilegum nýársóskum heilsar vísnaþátturinn ykkur, lesendur góðir. Í síðasta þætti
liðins árs birtust nokkrar jólavísur eftir
Ingólf Ómar Ármannsson. Því er gott
tilefni að birta eftir hann nokkrar áramóta-
og nýársstökur:
Gleðin vex á gamlárskvöld,
gleymist dægurþrasið.
Eftir vegleg veisluhöld
vil ég hella í glasið.
Nýárskveðju vanda vil,
vermi ykkur hlýja.
Megi fögnuð frið og yl
færa árið nýja.
Líkt og margir Íslendingar aðrir, þá strengdi
Ingólfur þess heit á gamlárskvöld að fara
í megrun. Það hefur hann sennilega gert
talsvert öli drifinn:
Um matarvenjur mínar veit,
minnka þyrfti átið.
Stundum reynt að strengja heit
en stenst þó aldrei mátið.
Pétur Pétursson ber okkur hjónum
jólakort ár hvert. Efni þess er jafnan í
bundnu máli. Þótt jólakort liðins árs væri
ekki sérstaklega merkt vísnaþættinum, þá
veit ég hann gleðjast rati efnið hingað inn:
Heilsum við núna, er hækka fer sól
og hátíðarkveðjurnar sendum.
létti nú erfiðið lukkunnar hjól,
lánið svo færi ykkur gleðileg jól.
Á þökk fyrir árið svo endum.
Ekki verður ánægja Einars Kolbeinssonar
minni ef hans yrði að einhverju getið hér
í þessum þætti, enda langt um liðið frá
því afurðir hans hafa verið hér á borðum.
Vísnaflokkur sá er hér fer eftir er, sem
stundum fyrr, ortur á liðugri klukkustund
þá hann ekur til sjóróðra heiman úr
Bólstaðarhlíð hingað norður í Eyjafjörð.
Vísnaflokkinn mætti því skröklaust nefna
„Ökuljóð“. Brottför úr Bólstaðarhlíð gjörði
Einar kl. 9.21:
Ákefð skapar indæl tíð,
áfram þokast veginn,
var að kveðja Vörmuhlíð
voðalega feginn.
Áfram veginn ólmur fer,
andans fylli brunna,
Bakkasel að baki er,
býlið gamalkunna.
Áform þjóna andans gerð,
er með hönd á stýri
þeysandi á fullri ferð
framhjá Engimýri.
Enn mér halda engin bönd,
og þér tjái í ljóði,
að Bægisá á hægri hönd
hef ég núna góði.
Svo nái um borð í okkar örk,
arga keyri staði,
þessa fjandans Þelamörk
þeytist nú með hraði.
Bruna líkt og bláleitt strik,
byggðir hrossa og manna,
er að kveðja eymd og ryk
Akureyringanna.
Fimmtán mínútur yfir kl. tíu sendir Einar
svo lokavísu leiðar sinnar:
Innra með mér fiðring finn,
fegurð lít ég drafnar,
hvergi smeykur karlinn minn
kem ég nú til hafnar.
Nokkrar vikur hafa liðið frá ofangreindri
sjóferðasögu. En Einar spyr títt eftir
svartfugli á Eyjafirði:
Af mér hefur alla ró,
andinn í tómu rugli,
ef að báta sérð á sjó
sem eru á eftir fugli.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Listagripir verða til í Árskógum
Í Árskógum í Reykjavík er áhugavert opið
félagsstarf í boði á smíðastofu fyrir fólk
frá 18 ára aldri
með leiðbeinanda
þannig að fólk
getur komið alla
daga vikunnar og
fengið leiðsögn. Hér
lætur hagleiksfólk
hugmyndaflugið
ráða för og hafa
ýmsir listagripir
orðið til hér í
áranna rás eins
og standklukkur
og fiðlur ásamt
mörgu fleiru,
undir handleiðslu
Einars Jónassonar
húsgagnasmiðs.
„Þetta eru mjög
fjölbreytt verkefni
sem fólk vinnur með
hér og mitt hlutverk
er að leiðbeina þeim
sem hér vilja vera
við smíðarnar. Þetta
er opið fyrir alla frá
18 ára aldri en þetta
er mest eldra fólk
sem kemur hingað að smíða. Sjálfur er ég
húsgagnasmiður og búinn að sinna þessu í rúm
20 ár. Í byrjun kom það þannig til að frænka
mín starfaði sem leiðbeinandi á Dalbraut og
kom mér inn í þetta góða starf sem hefur gefið
mér mjög mikið. Ég er þrjá daga í viku hér og
tvo daga í viku í Gerðubergi í Efra-Breiðholti.
Það sem er skemmtilegast er að hér eru margir
að uppfylla gamla drauma, eins og árið 2003
var hér maður sem hafði gengið með það í
maganum í 60 ár að smíða fiðlu og lét verða
af því hér. Einnig hafa útskrifast hér nokkrar
stórar standklukkur, sumar útskornar í eik og
er slíkt verkefni eitthvað sem tekur meira en
ár að vinna með,“ útskýrir Einar brosandi.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Reykjavíkurborgar er Markmið félagsstarfsins
að fyrirbyggja og draga úr félagslegri
einangrun með því að bjóða upp á opið félags-
og tómstundastarf auk fjölda námskeiða.
Félagsstarfið er vettvangur samfunda,
mannlegra samskipta og skapandi athafna.
Leitast er við að virkja frumkvæði og
hæfileika hvers og eins. /ehg
Einar Jónasson
er leiðbeinandi á
smíðastofunni í
Árskógum í Reykjavík
þar sem margir
eðalgripir hafa orðið
til í gegnum tíðina.
Ómar Arason var að leggja lokahönd á tignarlegan
örn sem hann hafði skorið út en hann hefur stundað
félagsstar ð í Árskógum í þrjú ár.
Magnús Helgi Magnússon var b
úinn að smíða
þrjá litla kistla sem unnir eru úr sé
rvöldu birki frá
Vaglaskógi sem er algjörlega kvista
laust. Kistlarnir
voru glæsilegir á að líta með útsk
ornum nöfnum
barnanna sem þá fá og sóleyjarbló
minu á hverjum
og einum.
Þeir voru einbeittir í útskurðinum þeir Hrafnkell Kárason og Guðmundur Haraldsson sem hafa verið með í smíðastofunni í nokkur ár.
Gunnar Guðmundsson var langt kominn með ðlu sem
hann var með í smíðum.
Soffía Antonsdóttir byrjaði að sækja smíðastofuna í haust og hefur mætt þrisvar í viku. Hún sérhæ r sig í að tálga fugla og þarf að pússa þá vel eftir tálgunina.