Bændablaðið - 17.01.2019, Síða 8

Bændablaðið - 17.01.2019, Síða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 20198 FRÉTTIR Fulltrúar Bændasamtaka Íslands og stjórnvalda hafa skrifað undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar. Viðræður bænda og fulltrúa ríkisvaldsins hófust 20. ágúst síðastliðinn og hafa því staðið í rúma fjóra mánuði. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan búvörusamningar voru gerðir árið 2016. Endurskoðunin, sem nú lítur dagsins ljós, er ætlað að sníða þá vankanta af sem voru á samningnum og bregðast við þeim forsendubresti sem sauðfjárbændur hafa orðið fyrir í sinni framleiðslu. Verðfall á afurðum og gengisþróun hafa leikið greinina grátt síðustu misseri. Markmið samkomulagsins er meðal annars að stuðla að auknu jafnvægi framboðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir og skapa verkfæri til þess að takast á við sveiflur í ytra og innra umhverfi greinarinnar. Áhersla er lögð á að auðvelda aðlögun að breyttum búskaparháttum eða nýrri starfsemi með sérstökum aðlögunarsamningum. Þær breytingar sem gerðar eru á samningnum kalla ekki á aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Styrkir grundvöll sauðfjárræktarinnar Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði við undirritun samkomulagins að það myndi styrkja grundvöll íslenskrar sauðfjárræktar. „Sérstaklega er ánægjulegt að stuðlað verður að meira jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir en það hefur verið einn helsti vandi greinarinnar undanfarin ár. Jafnframt má nefna þá ánægjulegu breytingu að við veitum bændum meira frelsi með sérstökum aðlögunarsamningum til að nýta tækifæri framtíðarinnar – bændum og neytendum til heilla.“ Verkfæri til að takast á við sveifur „Í samkomulaginu koma inn ferlar til að takast á við sveiflur í rekstrarumhverfi sauðfjárræktarinnar, það er mikilvægt,“ segir Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Hún segir jafnframt að dregið verði úr framleiðsluhvata stuðningsgreiðslna. „Eftir sem áður er stefnt að því að jafna stöðu bænda sem starfa innan samningsins og draga úr kostnaði greinarinnar af kerfinu. Þá eru samningsaðilar sammála um mikilvægi þess að ná fram hagræðingaraðgerðum innan afurðageirans, að því marki verður áfram að vinna. Ég tel að þær breytingar sem samkomulagið felur í sér sé jákvætt skref sem muni styðja við aukna verðmætasköpun afurða. Þá er einnig ánægjulegt að samhliða þessu samkomulagi hefur ríkisstjórnin ákveðið að hefja kolefnisverkefni í samstarfi við sauðfjárbændur. Gæði, fagmennska og heilnæmi er aðalsmerki okkar sauðfjárbænda og á þeim styrkleikum ætlum við að byggja til framtíðar,“ segir Oddný Steina. Aðlögunarsamningar gerðir við bændur Heimilt verður að gera aðlögunarsamninga við bændur sem tilbúnir eru að hætta eða draga úr sauðfjárbúskap og reyna fyrir sér í nýrri starfsemi. Framleiðendur geta óskað eftir að gera slíka samninga til ársins 2022. Breytingar verða gerðar á fyrirkomulagi beingreiðslna, gripagreiðslur falla út og hlutföll til einstakra verkefna breytast. Markmið þeirra breytinga er að draga úr vægi greiðslna sem tengdar eru við framleitt kjötmagn eða gripafjölda. Heildarfjárhæð greiðslna hvers árs verður sem áður samkvæmt gildandi samningi en áhersla er frekar lögð á stuðning sem er síður hvetjandi til offramleiðslu. Markaður fyrir greiðslumark Stofnsettur verður markaður fyrir greiðslumark sem verður í höndum Búnaðarstofu Matvælastofnunar. Greiðslumark verður innleyst og boðið til sölu á innlausnarverði ár hvert. Heimilt er að gefa ákveðnum hópum framleiðenda forgang á kaupum á því greiðslumarki sem boðið verður til sölu hverju sinni. Framleiðslujafnvægi Í samkomulaginu er ákvæði sem ætlað er að stuðla að framleiðslujafnvægi á sauðfjárafurðum. Fjárhæðum samkvæmt þeim lið verður ráðstafað ef bregðast þarf við breytingum á framboði og eftirspurn á markaði. Það verður m.a. gert með því að efla markaðsfærslu sauðfjárafurða og greiða sérstakar uppbætur fyrir slátrun áa til fækkunar. Þá verður komið á fót svokallaðri innanlandsvog sem skilgreinir þarfir og eftirspurn innanlandsmarkaðar eftir kindakjöti. Ásetningshlutfall verður lækkað úr 0,7 í 0,6 frá og með 1. janúar 2020. Jafnframt er gerð sú breyting að ráðherra verður heimilt að endurmeta hlutfallið árlega að fenginni tillögu framkvæmdanefndar búvörusamninga, með tilliti til innanlandsvogar og þróunar á framboði og eftirspurn sauðfjárafurða. Í núgildandi samningi er ásetningshlutfallið ákveðið í lögum. Samstarf við sauðfjárbændur um kolefnisjöfnun Samhliða undirrituninni var tilkynnt að ríkisstjórnin hefði samþykkt að gengið verði til samstarfs við sauðfjárbændur á árinu 2019 um kolefnisjöfnun greinarinnar. Unnið verður að þróun og innleiðingu verkefnisins á grundvelli þeirra tillagna og greininga sem fram hafa komið. Verkefnið verður vistað í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og unnið í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Næsta endurskoðun árið 2023 Endurskoðun sauðfjársamnings fer fram næst árið 2023. Þá verður fyrst og fremst horft til þess hvernig framleiðsla sauðfjárafurða og afkoma í greininni hefur þróast og hvernig markmið samningsins og þess samkomulags sem nú er gert hafa gengið eftir. Einnig skal skoða þróun í bústærð, fjölda búa eftir svæðum og fjárfjölda í landinu. Þá skal endurskoða býlisstuðning, bæði fjárhæðir og þrep. Sérstök bókun var gerð í samkomulagið þar sem lögð er áhersla á að mikilvægt sé að ná fram aukinni hagræðingu í greininni og að kannað verði hvort sláturleyfishafar geti átt samstarf um afmarkaða þætti í starfsemi sinni. Í viðaukum samkomulagsins er fjallað með nákvæmari hætti um aðlögun að nýrri starfsemi til sveita, fyrirkomulag beingreiðslna og þróun afurðaverðs og fjárfjölda. Samkomulagið var undirritað með fyrirvara um samþykki Alþingis á nauðsynlegum lagabreytingum og samþykki félagsmanna LS og BÍ í atkvæðagreiðslu sem haldin verður á næstu vikum. Kynningu á samkomulaginu er að finna á vef BÍ og LS, www. bondi.is og www.saudfe.is. Að auki verða kynningarfundir auglýstir á næstunni og eru bændur beðnir að fylgast með upplýsingasíðum bænda á netinu. /TB Bændur og ráðamenn skrifa undir endurskoðaðan sauðfjársamning: Ætlað að stuðla að auknu jafnvægi í framleiðslu kindakjöts – Bændum gert kleift að minnka umsvif. Kallar ekki á aukin útgjöld ríkissjóðs Samkomulagið var undirritað í fjármálaráðuneytinu á föstudaginn var. Frá vinstri: Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður endurskoðunarhóps, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra, Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ og Oddný Steina Valsdóttir, formaður LS. Mynd / TB Inn- og útflutningur á kjöti: Miðað er við nettóvigt í öllum tilvikum Nokkur styr hefur staðið um umreikning á tollkvótum þegar rætt er um „ígildi kjöts með beini“ eða beinlausa vöðva. Það hefur þótt skjóta skökku við að innflutningur hefur verið reiknaður án beina en útflutningur á kindakjöti með beini. Í bréfi frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu sem sent var Félagi atvinnurekenda um áramótin, kemur fram að hér eftir verði miðað við nettóvigt af öllu kjöti við útreikning tollkvóta. Í tillögum starfshóps sem þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði og hafði það hlutverk að kanna áhrif tollasamnings við ESB kom meðal annars fram „ … að við útreikning á magni tollkvóta við innflutning verði miðað við ígildi kjöts með beini, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar“. Þessum áformum mótmælti Félag atvinnurekenda (FA) í bréfi til ráðuneytisins þann 7. maí á síðasta ári. Vísaði félagið í að hvergi væri kveðið á um að tollfrjálsir innflutningskvótar fyrir kjötvörur skuli miðaðir við kjöt á beini. Í umfjöllun um málið í Morgunblaðinu á sínum tíma var fullyrt að ef þessi reikniregla yrði ofan á þýddi það að tollkvótarnir myndu nýtast ver og þriðjungi minna kjöt flutt inn án tolls en ella hefði orðið. Í bréfi FA var því spurt hvaða reiknireglum ráðuneytið hygðist beita við umreikning tollkvóta og á hvaða grunni þær voru byggðar. Íslenskt kindakjöt reiknað með beini inn á innri markað ESB Svar barst frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu 28. desember sl., eða tæpum 8 mánuðum eftir að bréf FA var sent til ráðuneytisins. Á svarinu má skilja að hér eftir verði miðað við nettóvigt á kjöti en ekki umreiknað í „ígildi kjöts með beini“. Ráðuneytið bendir á að í eldri tollasamningi, sem nýi samningurinn hafi leyst af hólmi, hafi ávallt verið miðað við nettóvigt kjöts. Þar segir: „Ekki voru gerðar athugasemdir við það af Íslands hálfu en bent á mikilvægi þess að samræmis væri gætt í útreikningi einstaka afurðategunda í kvóta og að ekki væri mismunað milli kjöttegunda. Framkvæmd ESB við innflutning á kindakjöti hafði hins vegar verið með þeim hætti að reiknistuðli (1,67) var beitt þannig að bein voru reiknuð inn í vigtina og þar með gekk hraðar á kvótann.“ ESB búið að breyta reglunni Í bréfi ráðuneytisins til FA segir að íslenskir embættismenn hafi á sínum tíma vakið athygli á því að þessi framkvæmd hafi orðið til þess að íslenskir útflutningsaðilar hafi þurft að taka til baka sendingar með tilkostnaði. Í bréfinu segir orðrétt: „Málið hafði því verið til skoðunar vegna þessa en nú nýlega fengust þær upplýsingar að þessari framkvæmd hefur verið breytt og er nú miðað við nettóvigt í öllum tilvikum. Þar af leiðandi gerir ráðuneytið ekki ráð fyrir því að svo stöddu að framkvæmdinni verði breytt frá því sem verið hefur hvað varðar ofangreint.“ Kom útflytjendum á óvart Samkvæmt heimildum Bænda- blaðsins kom þessi breyting útflytjendum spánskt fyrir sjónir. Sláturleyfishafar hættu nokkrir útflutningi á kindakjöti í nóvember þar sem útflutningskvótinn var fullnýttur. Dæmi eru um að útflytjendur hafi þurft að koma íslensku kjöti fyrir í frystigeymslum erlendis, til að bíða nýs kvótaárs, með ærnum tilkostnaði. Það hefði ekki þurft hefði kjötið verið reiknað með sambærilegri reglu og hefur gilt um annað kjöt en íslenskt kindakjöt hingað til. /TB Endurskoðun sauðfjársamnings og kvótakerfi í mjólk: Atkvæðagreiðslur meðal bænda fram undan Í kjölfar endurskoðunar sauð- fjársamnings og ákvæðis í búvörusamningum um kosningu meðal mjólkurframleiðenda um framtíð kvótakerfis í mjólkurframleiðslu munu Bændasamtök Íslands boða til tveggja atkvæðagreiðslna meðal bænda á næstu vikum. Nákvæmar dagsetningar liggja ekki fyrir enn sem komið er. Sauðfjársamningur Í auglýsingu sem birt er í Bændablaðinu á blaðsíðu 45 segir um atkvæðagreiðslu um sauðfjársamning að hún fari fram með rafrænum hætti í febrúar og / eða í mars næstkomandi. Boðað verður til atkvæðagreiðslunnar með formlegum hætti með auglýsingu í Bændablaðinu sem kemur út þann 14. febrúar nk. Þá verða allar upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar kynntar. Kosningarétt hafa einstaklingar sem eru félagsmenn í Bændasamtökunum og/eða Landssamtökum sauð- fjárbænda og eru jafnframt með virkt bú í skýrsluhaldi BÍ. Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar verða haldnir kynningarfundir sem auglýstir verða síðar. Samningurinn sjálfur er aðgengilegur á vef BÍ, bondi.is og LS, saudfe.is, ásamt kynningarmyndbandi þar sem farið er yfir helstu atriði. Kvótakerfi í mjólkurframleiðslu Í samningi um starfskilyrði nautgriparæktarinnar sem undirritaður var árið 2016 var kveðið á um að atkvæðagreiðsla skyldi fara fram meðal mjólkurframleiðenda við endurskoðun samningsins árið 2019 um það hvort kvótakerfi í mjólkurframleiðslu skuli afnumið frá og með 1. janúar 2021. Atkvæðagreiðslan mun fara fram með rafrænum hætti og áformað er að hún fari fram í febrúar. Kosningarétt hafa allir mjólkurframleiðendur án tillits til félagsaðildar. Hver innleggjandi hefur eitt atkvæði og kosningarétt hafa jafnt lögaðilar og einstaklingar. Framkvæmd kosningarinnar, reglur og annað sem snýr að atkvæðagreiðslunni verður kynnt nánar þegar nær dregur. Boðað verður til atkvæðagreiðslunnar með formlegum hætti í Bændablaðinu 31. janúar næstkomandi. /TB

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.