Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 12

Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201912 FRÉTTIR Samdráttur í sauðfjársæðingum um 40% frá 2016: Staðan grefur undan starfsemi sæðingastöðvanna – Slæmar fréttir fyrir kynbótastarfið Í samantekt Eyþórs Einarssonar, ábyrgðarmanns í sauðfjárrækt hjá Ráðgjafarmiðstöð land- búnaðarins (RML), um nýliðna sauðfjársæðingavertíð, kemur fram að samdráttur hafi orðið í sauðfjársæðingunum annað árið í röð. Samkvæmt yfirliti Eyþórs er samdrátturinn á milli síðustu tveggja ára um 18 prósent og frá 2016 er hann um 40 prósent, mestur á Suðurlandi og Vesturlandi. Eyþór birti niðurstöður sínar á vef RML á dögunum þar sem fram kemur að nokkuð ljóst sé að þeir erfiðleikar sem greinin stóð frammi fyrir eftir að afurðaverð hrundi haustið 2017 hafi haft bein áhrif á umsvif ræktunarstarfsins og þar með neikvæð áhrif á rekstur sæðingastöðvanna. Til lengri tíma geti sú staða dregið úr kynbótaframförum og segir Eyþór að snúa þurfi vörn í sókn. Minni tími aflögu hjá bændum „Ástæður fyrir því að það dregur úr sauðfjársæðingum geta verið nokkrar en að öllum líkindum fyrst og fremst afleiðing af stöðunni í greininni. Í fyrsta lagi er framleiðslan heldur að dragast saman. En það sem vegur kannski þyngra er að margir hafa hreinlega ekki tíma til að sinna þessu, því þeir hafa bætt við sig aukinni vinnu til að mæta tekjutapinu og því minni tími aflögu til að sinna sauðfjárbúinu. Þá eru einhverjir sem eru hreinlega að skera niður allan kostnað,“ segir Eyþór. Framtíð sauðfjársæðinga í hættu „Framfarir í sauðfjárrækt hafa að miklu leyti verið drifnar áfram í gegnum sæðingarnar. Það má því leiða að því líkur að ef þátttaka í þeim minnkar mun hægja á framförum. Markmið kynbótanna er að rækta gripi sem skila meiri arði, fé sem hefur getu til að skila sem mestum afurðum af sem bestum gæðum. Það getur því verið vafasamur sparnaður, sértaklega fyrir bú sem á talsverð sóknarfæri í því að bæta afurðirnar, að skera niður í kynbótastarfinu. Þá hlýtur einnig að verða óhagkvæmara að reka sæðinga- stöðvarnar ef það verður mikill samdráttur í notkun sæðinga og verður það líklega talsverð áskorun á næstunni að halda úti öflugri sæðingastarfsemi. Ef til þess kemur að þurfi að hækka sæðingagjöldin til að standa undir rekstrinum má ætla að það dragi enn frekar úr þátttökunni og því þarf væntanlega að fara vandlega yfir það hvernig við getum sem best staðið vörð um þetta mikilvæga starf sem stöðvarnar sinna,“ segir Eyþór enn fremur. Drjúgur frá Hesti vinsælastur Sá hrútur sem fékk mesta notkun þennan veturinn var Drjúgur 17- 808 frá Hesti en úr honum voru sendir út 2.020 skammtar. Þetta er nokkuð meiri notkun en 2017 þegar sendir voru 1.835 skammtar úr hrútnum Mávi 15-990 frá Mávahlíð. Næstflestir skammtar voru útsendir úr Durt 16-994 frá Hesti, eða 1.685 skammtar. Af kollóttu hrútunum var mest sent út af sæði úr Guðna 17-814 frá Miðdalsgröf, 955 skammtar. Í yfirferð Eyþórs tiltekur hann nokkra hrúta sem hafa verið í notkun en ákveðið hafi verið að að fella eða búið er að fella með tilliti til aldurs, heilsu og notkunar; Kölski 10-920, Borkó 11-946, Kraftur 11-947, Malli 12-960, Brúsi 12-970, Klettur 13-962, Bergsson 14-986 og Drangi 15-989. Vinsælustu sæðingahrútarnir með 1.000 skammta eða meira • Drjúgur 17-808 frá Hesti (2.020 skammtar) • Durtur 16-994 frá Hesti (1.685 skammtar) • Fáfnir 16-995 frá Mýrum 2 (1.571 skammtar) • Klettur 13-962 frá Borgarfelli (1.450 skammtar) • Fjalldrapi 15-805 frá Hesti (1.135 skammtar) • Gunni 15-804 frá Efri-Fitjum (1.120 skammtar) • Tvistur 14-988 frá Hríshóli (1.080 skammtar) • Mávur 15-990 frá Mávahlíð (1.060 skammtar) • Spakur 14-801 frá Oddsstöðum (1.025 skammtar) /smh Drjúgur 17-808 frá Hesti var vinsælastur í nýliðinni sauðfjársæðingavertíð. Eyþór Einarsson er ábyrgðarmaður í sauðfjárrækt hjá RML. Mynd / RML Fyrsta fræið sem spírar á tunglinu. Garðyrkja í geimnum: Fyrsta fræið spírar á tunglinu Kínverjar hafa gert tilraun með að láta fræ spíra um borð í tungl- flauginni Chang´e-4 sem lenti fyrir skömmu á dökku hlið tunglsins sem snýr frá jörðu. Fræið sem um ræðir og plantan sem upp af því vex er bómullarplanta og um leið fyrsta plantan sem ræktuð er á tunglinu. Fræ annarra tegunda sem Kínverjar sendu til tunglsins eru einnig farin að sýna fyrstu merki um að fara að spíra. Tunglflaugin Chang´e-4, sem nefnd er í höfuðið á kínverskri tunglgyðju, er fyrsta tunglfarið til að lenda á þeirri hlið tunglsins sem snýr frá jörðu. Á þeirri hlið er alltaf myrkur og nístingskuldi. Tilgangur Chang´e-4 leið- angursins er að rannsaka yfirborð tunglsins á þeirri hlið sem fæstir hafa séð og að gera tilraunir með ræktun plantna í lokuðu rými tunglfarsins. Þrátt fyrir að rýmið sem er ætlað til ræktunartilraunanna sé ekki stærra en skúringarfata sem er 16 sentímetrar í þvermál og 18 á hæð er þar auk bómullarfræja að finna repju- og kartöflufræ og plöntu sem kallast gæsamatur, egg silkiorma og ger. Auk vatns og jarðvegs. Gangi allt eftir munu plönturnar framleiða súrefni fyrir silkiormanna og silkiormarnir áburð sem gerið sér um að brjóta niður fyrir plönturnar þannig að úr verði lítið en sjálfbært vistkerfi svo lengi sem plönturnar fá ljós og yl frá tunglfarinu. Áður hafa verið gerðar tilraunir með að rækta salat um borð í alþjóðlegu geimstöðinni sem er á sveimi umhverfis jörðina og árið 2015 smökkuðu geimfarar á fyrsta salatinu sem ræktað var í geimnum. Rannsóknir sýna einnig að þörungar hafa lifað í 530 daga utan á geimstöðinni. Rannsóknir á ræktun plantna og matvæla í geimnum eru liður í því að geta sent mönnuð geimför í langar geimferðir sem taka mörg ár, áratugi og jafnvel aldir. Tilraunir Kínverja með líf á tunglinu eru líklega merkilegustu rannsóknir sem gerðar hafa verið í geimnum frá því að Bandaríkja- mönnum tókst að lenda mönnum á tunglinu. Satt best að segja hef ég aldrei verið eins spenntur fyrir neinum rannsóknum síðan þá. /VH Chang´e-4 og rannsóknarökutæki geimfarsins á tunglinu. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar: Telur úthlutun byggðakvóta vera algjörlega óviðunandi Atvinnu-, menningar- og kynn- ing ar nefnd Sveitarfélagsins Skaga fjarðar hefur mótmælt harðlega niðurstöðum úthlutunar byggða kvóta fyrir fiskveiðiárið 2018–2019. Niðurstaða atvinnuvega- og nýsköpunaráðuneytis hvað Skagafjörð varðar, að því er fram kemur í bókun nefndarinnar, er að úthluta aðeins 15 þorskígildistonnum til Hofsóss og 70 þorskígildistonnum til Sauðárkróks. Nefndinni hefur borist rökstuðningur ráðuneytisins fyrir úthlutuninni. Í bókun nefndarinnar segir að niðurstaðan sé með öllu óásættanleg hvað varðar úthlutun til Hofsóss og ljóst að reglur um úthlutun byggðakvóta mæta engan veginn tilgangi þess að úthluta byggðakvóta til byggðarlaga sem standa höllum fæti, s.s. eins og til Hofsóss. Það punktakerfi sem úthlutað er eftir horfi aftur til síðustu 10 ára og mæli samdrátt aflaheimilda og vinnslu á þeim tíma en taki í engu tillit til þess samdráttar sem orðið hefur fyrir lengri tíma en 10 árum. 970% samdráttur á 8 árum „Má því ætla að reglur sjávarútvegsráðuneytisins geri ráð fyrir að annaðhvort hafi sjómenn gefist upp á þessum tíma eða þá að ástandið hafi lagast með öðrum hætti, en alls ekki að ástand geti verið óbreytt eða verra en áður eins og í tilfelli Hofsóss, sérstaklega þegar horft er til úthlutunar byggða- kvóta til Hofsóss, en úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2010– 2011 var 145 þorskígildistonn en nú fiskveiðiárið 2018–2019 einungis 15 þorsksígildistonn, eða samtals 970% samdráttur á 8 árum,“ segir í bókun nefndarinnar vegna úthlutunar byggðakvótans. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra að breyta reglum um úthlutun byggðakvóta á þann hátt að tekið verið tillit til lengri tíma og fleiri aðstæðna en núverandi reglur kveða á um. Mikilvægt sé að reglur um byggðakvóta séu raunverulega sniðnar að því markmiði að styðja við byggðir sem standa höllum fæti vegna breytinga í sjávarútvegi. /MÞÞ Enginn rembingur í körlunum „Ég hef fengið frábærar viðtökur, það er enginn rembingur í körlunum, það vilja allir hjálpa mér og gefa mér góð ráð, þetta er bara frábært,“ segir Guðrún Arna Sigurðardóttir, sem tók nýlega við starfi mjólkurbílstjóra hjá MS á Selfossi. Guðrún er fyrsta fastráðna konan í starfi mjólkurbílstjóra hjá fyrirtækinu. Hún er þriðji ættliðurinn í fjölskyldunni til að gerast mjólkurbílstjóri en pabbi hennar, Sigurður Júníus Sigurðsson, er mjólkurbílstjóri hjá MS Selfossi og afi hennar, Sigurður Óskar Sigurðsson heitinn, keyrði mjólkurbíl hjá Mjólkurbúi Flóamanna. Þá má geta þess að mamma Guðrúnar, Hjördís Gunnlaugsdóttir, sér um matinn fyrir starfsmenn MS á Selfossi og eiginmaður Guðrúnar, Sigþór Magnússon, er líka mjólkurbílstjóri hjá MS. /MHH Guðrún Arna kann vel við sig í starfi mjólkurbílstjóra og segir sérstaklega gaman að heimsækja kúabændur og sækja mjólkina til þeirra. Mynd / MHH

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.