Bændablaðið - 17.01.2019, Page 16

Bændablaðið - 17.01.2019, Page 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201916 Þótt Íslendingar hafi vitað af loðnunni í sjónum kringum landið um aldir og jafnvel gert sér mat úr henni í einhverjum mæli var það ekki fyrr en fyrir röskum 50 árum að farið er að nýta hana fyrir alvöru. Það sætir nokkurri furðu að loðnan sem oft og tíðum hefur komist næst þorskinum í útflutningsverðmætum og hefur á liðnum áratugum verið einn af mikilvægustu nytjastofnum okkar skuli ekki hafa verið nýtt að neinu ráði fyrr en á sjöunda áratug 20. aldarinnar, eða fyrir röskum fimm áratugum. Í riti Hjálmars Vilhjálmssonar fiskifræðings um loðnuna frá árinu 1994 segir að helstu heimildir um að menn hafi nýtt sér loðnu til matar sé að finna í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar um ferðir þeirra um Ísland á árunum 1752–1757. Þar kemur fram að í ýmsum byggðum hafi loðnu, sem rak á fjörur á hrygningartímanum, verið safnað saman og hún notuð sem fóður. Reyndar gerðu Eyfirðingar gott betur því þeir nýttu loðnuna til manneldis á þessum árum. Nótaveiði hefst um aldamótin Á 19. öld eru heimildir um að fleiri landsmenn hafi farið að dæmi Eyfirðinga og hafi loðnu þá verið safnað saman á fjörum til manneldis, jafnt á Norðurlandi sem á Suðurlandi, að því er fram kemur í Íslenskum sjávarháttum, bókaflokki Lúðvíks Kristjánssonar. Þar segir að fyrstu eiginlegu loðnuveiðar, sem vitað er til að hafi verið stundaðar á Íslandi, hafi verið í Höfnum á Reykjanesi, en þar hafi menn háfað loðnuna og nýtt til beitu. Hjálmar Vilhjálmsson hefur það eftir Kristjáni Jónssyni á Akureyri að um síðustu aldamót hafi loðnan verið veidd í litlar nætur á fjörðum norðanlands til nota í beitu fyrir línu- og handfærabáta og svipaðri tækni virðist hafa verið beitt á Austfjörðum (Bjarni Sæmundsson 1899). Tilraun til mjöl- og lýsisvinnslu Veturinn 1958 stóð tæknideild Fiskifélags Íslands fyrir tilraun sem beindist að því hvort nýta mætti loðnu til mjöl- og lýsisframleiðslu. Niðurstöður þóttu lofa góðu og þær gáfu til kynna að hægt væri að hefja loðnuveiðar og landa aflanum til bræðslu ef ákveðnar breytingar væru gerðar á fiskimjölsverksmiðjunum. Þrátt fyrir það hófust loðnuveiðar ekki að marki fyrr en um miðjan sjöunda áratug aldarinnar. Aflinn árið 1964, þegar nokkur síldveiðiskip fóru til veiðanna, nam 8.600 tonnum en ári síðar var aflinn kominn í 50.000 tonn. Litið á loðnuna sem hreinan ódrátt Hrólfur Gunnarsson, skipstjóri á Árna Magnússyni, varð fyrstur til að hefja loðnuveiðar hér við land í þeirri mynd sem við þekkjum í dag. Hann lýsti aðdraganda þess í viðtali við Fiskifréttir árið 1998 og vantrúnni sem eigendur fiskimjölsverksmiðjanna höfðu á því að hægt yrði að nýta loðnu til bræðslu. „Sjómenn voru lítt hrifnir af loðnunni og það var litið á hana sem hreinan ódrátt,“ segir Hrólfur. „Loðnan hafði oft valdið miklum erfiðleikum á síldveiðum. Þegar loðnan gekk upp að suðausturströnd Íslands og vestur með ströndinni má segja að síldveiðum hafi verið sjálfhætt á meðan. Ef menn lentu í því að fá loðnu í síldarnæturnar þurfti að sigla í land til þess að hreinsa þær.“ Fyrsti farmurinn fór í beitu Útgerð Árna Magnússonar lét setja upp nót sem var 30 faðma djúp og 130 faðma löng, en mun smáriðnari en síldarnæturnar, sem notaðar voru á þeim tíma. Hún var einnig helmingi grynnri en hefðbundnar síldarnætur. Með þetta veiðarfæri fóru Hrólfur og félagar austur undir Hornafjörð í byrjun febrúar árið 1964 og fengu strax 130 tonn af loðnu. „Við höfðum því sýnt fram á að það var enginn vandi að veiða loðnuna, eins og menn þóttust reyndar vita, en erfiðara reyndist að telja menn á að kaupa hana til bræðslu og gera tilraun til að búa til úr henni mjöl og lýsi,“ segir Hrólfur. „Það varð því niðurstaðan að mest af loðnunni úr fyrstu veiðiferðinni seldum við til beitu til útgerðarmanna á öllu Suðvesturlandi og allt til Vestfjarða. Á meðan stjórnendur fiskimjölsverksmiðjanna fussuðu og sveiuðu tóku útgerðarmenn línubátanna okkur fagnandi.“ Lét loks til leiðast Það var ekki fyrr en eftir aðra veiði- ferð Árna Magnússonar á loðnu- miðin að hægt var að selja aflann til bræðslu. „Guðmundur Jónsson sem var með bræðslu í Sandgerði lét loksins til leiðast og ákvað að gera tilraun til þess að bræða smávegis af þessum „verðlausa“ fiski. Hann greiddi okkur, að mig minnir, helmingi lægra verð fyrir loðnuna en þá var greitt fyrir síld. Þetta var ekki af því að hann ætlaði að hlunnfara okkur, heldur hafði hann einfaldlega enga trú á því að hægt væri að nýta loðnuna til mjölframleiðslu. Hann og fleiri urðu hins vegar hissa þegar í ljós kom að loðnumjölið reyndist vera mjög gott og hið sama má segja um lýsið,“ segir Hrólfur. Undir lok þessarar fyrstu loðnuvertíðar höfðu tveir aðrir bátar, Gullfaxi NK og Vonin KE, tekið þátt í veiðunum. Á vertíðinni 1965 fjölgaði bátunum svo enn meira og þá hækkaði hráefnisverðið um helming, að því er Hrólf minnir. Seint byrjað á loðnuveiðum Hrólfur segist oft hafa hugsað til þess hve miklum verðmætum þjóðarbúið hafi orðið af vegna þess hve loðnuveiðar hófust seint. „Við hefðum vel getað hafið loðnuveiðar í kringum 1960 eða um leið og kraftblökkin kom til sögunnar í síldveiðum og við losnuðum við nótabátana. Eftir að veiðarnar hófust stóð það þeim helst fyrir þrifum að við urðum að háfa allan aflann úr nótinni og upp í skipið. Það var ekki fyrr en á vertíðinni 1969 eða 1970 að byrjað var að dæla loðnunni um borð.“ Tugmilljarða verðmæti Eins og getið var um í upphafi er loðnan einn af mikilvægustu nytjafiskum þjóðarinnar. Auk þess sem loðnan hefur verið nýtt til mjöl- og lýsisvinnslu hafa fryst loðna og loðnuhrogn skapað mikil verðmæti. Í bestu árum fór afli Íslendinga yfir milljón tonn, síðast árið 2001. Eftir það tók loðnustofninum að hnigna verulega og er breyttum umhverfisaðstæðum í hafinu í kjölfar hlýnunar sjávar einkum kennt um. Á síðasta ári nam loðnuaflinn tæplega 200.000 tonnum að verðmæti 18 milljarða króna í útflutningi. Það er 9,1% af heildarverðmæti útfluttra sjávarafurða. Samkvæmt því var loðnan sú fisktegund á Íslandsmiðum sem skilaði næstmestum verðmætum, næst á eftir þorskinum sem enginn skákar. Útflutningsverðmæti þorskafurða nam 84 milljörðum eða 43% af heild. Guðjón Einarsson gudjone3@gmail.com Í Indlandshafi út austurströnd Afríku er fjórða stærsta eyja í heimi og kallast hún Madagaskar. Ríkið Madagaskar nær yfir eyjuna og fjölda minni nærliggjandi eyja. Sérstaða eyjunnar er það mikil að með réttu mætti kalla hana áttundu heimsálfuna. Madagaskar og nærliggjandi eyja var í eina tíð hluti af Indlandsskaga en klofnaði frá honum þegar meginlandið Gonvana brotnaði upp á fyrir milljónum ára. Vegna einangrunar eyjunnar þróaðist þar einstakt og um leið sérstakt dýra- og plöntulíf sem hvergi er að finna annars staðar í heiminum. Á eyjunni er að finna 5% allra plöntu- og dýrategunda í heiminum og líffræðileg fjölbreytni þar hvað mest í heiminum. Talið er að Madagaskar hafi að mestu verið skógi vaxin þegar fyrstu menn fundu eyna, en síðan hefur smám saman gengið á þann gróður. Nú er svo komið að aðeins fimmtándu hundraðshlutar lands eru vaxnir skógi og þar sem skóginum hefur verið eytt hefur umhverfið og lífríkið orðið mun einhæfara. Vegna þessa er náttúra eyjunnar viðkvæm og flóra hennar er til dæmis undir smásjá og í gjörgæslu grasagarðsins í Kew. Fjöldi dýra eins og risalemúrar, fílafuglar og madagaskarflóðhestar hafa dáið út eftir að menn settust fyrst að á eyjunni. Minjar benda til að menn hafi fyrst komið til eyjarinnar um 2000 fyrir Krist og að föst búseta þar hefjist ekki fyrr en 1500 árum seinna. Í dag eru þjóðflokkar í landinu fjölmargir og halda flestir enn í sínar siðvenjur og menningararf. Merínar eru fjölmennasti þjóðflokkur landsins. Skömmu eftir að menn settust að á Madagaskar var eyjan mikilvæg höfn við Indlandshaf og arabískir kaupmenn settu á fót verslun á vesturströnd hennar. Á átjándu og byrjun nítjándu aldar var Madagaskar þekkt sem höfn sjóræningja og þrælakaupmanna. Madagaskar var þar til seint á 18. öld skipt í yfirráðasvæði margra ættbálka. Snemma á 19. öld náði konungsríki Merína að leggja alla eyjuna undir sig og stofna Konungsríkið Madagaskar. Madagaskar var frönsk nýlenda árið 1897 en varð aftur sjálfstætt ríki 1960. Talsverðar róstur hafa verið á eyjunni undanfarin ár enda misskipting gæða þar mikil og landið flokkað með minnst þróuðu löndum heims, þrátt fyrir að búa yfir talsvert miklum gæðum frá náttúrunnar hendi. Íbúar landsins aðhyllast flestir einhvers konar blöndu af kristni og afrískri andatrú þar sem andar forfeðranna eru í hávegum hafðir enda eru þeir alls staðar nálægir, yfir og allt um kring og öllum fyrir bestu að styggja þá ekki. Landbúnaður og túrismi eru helstu atvinnuvegir Madagaskar og mikið er ræktað af vanillu og negul þar sem jafnframt eru helstu útflutningsvörur eyjunnar. Höfuðborg og jafnframt stærsta borg landsins kallast Antananarívó. Borgin er staðsett á hálendi nærri miðju eyjarinnar. Antananarívó er gömul borg sem var stofnuð snemma á sautjándu öld sem vígi Andrianjaka konungs. Frakkar ákváðu því að setja nýlendustjórnina niður í borginni 1896 og borgin var áfram höfuðborg eftir að Madagaskar fékk sjálfstæði 1960. Árið 2017 voru íbúar borgarinnar tæplega 1,4 milljónir en ríflega 25,5 milljónir í landinu sem heild. /VH STEKKUR NYTJAR HAFSINS Litu á loðnuna sem ódrátt Loðna. Árni Magnússon GK. Áttunda heimsálfan

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.