Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 17

Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 17 volundarhus.is · Sími 864-2400 ERTU BÚIN AÐ TRYGGJA ÞÉR GARÐHÚS EÐA GESTAHÚS á gamla verðinu og með 10% aukaafslætti? Gildir meðan birgðir endast www.volundarhus.is SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra. Starfið felst í að bera ábyrgð á og annast daglegan rekstur sjóðsins í samráði við stjórn sjóðsins. Skrifstofa Framleiðnisjóðs er á Hvanneyri í Borgarfirði og hefur framkvæmdastjóri fasta viðveru þar. Jafnframt fylgja nokkur ferðalög starfinu vegna funda í Reykjavík og í sveitum landsins. Til greina kemur að starfið verði unnið sem hlutastarf og getur starfshlutfall því verið 50-100% eftir samkomulagi. Einnig kemur til greina að starfshlutfall sé breytilegt eftir árshlutum, þar sem umsvif sjóðsins eru nokkuð sveiflukennd yfir árið. Vinnutilhögun og vinnutími verður eftir nánara samkomulagi við stjórn. FRAMKVÆMDASTJÓRI FRAMLEIÐNISJÓÐS LANDBÚNAÐARINS Helstu verkefni og ábyrgð • Dagleg umsjón og rekstur skrifstofu, samskipti við Fjársýslu ríkisins • Undirbúningur og frágangur stjórnarfunda, ritun fundargerða • Kynningarmál, upplýsingamiðlun og svörun fyrirspurna frá umsækjendum • Móttaka umsókna, skjalavarsla, bréfaskriftir og ritun ársskýrslu í samvinnu við stjórnarformann • Samskipti við ráðunauta/ráðgjafa, samtök bænda, ráðuneyti og aðrar stofnanir • Eftirlit með framvindu verkefna sem hlotið hafa styrk, m.a. með tilliti til úttekta og greiðsluhæfis • Gjaldkera- og bókaraverkefni • Ýmis önnur tilfallandi verkefni Hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla af rekstri • Þekking á stoðkerfi atvinnulífs • Þekking á íslenskum landbúnaði og atvinnulífi í dreifbýli • Þekking á stoðkerfi landbúnaðar, helstu stofnunum og félagskerfi bænda • Reynsla af almennum skrifstofustörfum og mjög gott vald á íslensku • Góð tölvukunnátta, þekking á bókhaldsforritinu DK er kostur • Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, vera ábyrgur, vandvirkur og talnaglöggur. Jafnframt að hafa ríka þjónustulund, jákvætt hugarfar og hæfni í mannlegum samskiptum Nánari upplýsingar veita: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2019. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst, en eigi síðar en 1. apríl. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Framleiðnisjóður landbúnaðarins er ríkisstofnun, sem starfar samkvæmt lögum nr. 89/1966 með síðari breytingum. Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til nýsköpunar og þróunar í landbúnaði á Íslandi. Styrkir eru veittir í nokkrum verkefnaflokkum m.a. til hagnýtra rannsókna- og þróunarverkefna á vegum stofnana, félaga og annarra aðila innan þróunargeirans. Einnig eru veittir styrkir til verkefna á sviði nýsköpunar og þróunar á bújörðum á vegum bænda. Framleiðnisjóður annast vörslu þróunarfjár búgreinanna og Markaðssjóðs sauðfjárafurða og ákvarðar um um úthlutun styrkja með hliðsjón af umsögnum fagráða viðkomandi búgreina. Landbúnaðarráðherra skipar sjóðnum fimm manna stjórn til fjögurra ára í senn. Stjórn sjóðsins tekur ákvarðanir um veitingu styrkja og lána úr sjóðnum á grundvelli umsókna er honum berast. Frekari upplýsingar um Framleiðnisjóð landbúnaðarins, m.a. ársskýrslur, má nálgast á heimasíðu sjóðsins, www.fl.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.