Bændablaðið - 17.01.2019, Síða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201918
Yfirlit yfir útflutning íslenskra hrossa árið 2018:
Spennandi markaðir beggja
vegna Atlantshafsins
– Hátt gengi krónunnar líkleg ástæða fækkunar útflutningshrossa
Útflutningur á hrossum dróst
saman á árinu 2018 en hlutfall
fyrstu verðlauna hrossa hækkaði.
Hrossin fóru til tuttugu landa, nýir
markaðir eru að stækka í Austur-
Evrópu á meðan útflutningur til
Noregs hefur sjaldan verið minni.
Alls voru 1.351 hross flutt
frá Íslandi árið 2018 samkvæmt
tölum Worldfengs, upprunaættbók
íslenska hestsins. Af þeim voru
212 stóðhestar, 649 hryssur og 490
geldingar. Tölurnar sýna fækkun frá
fyrri árum.
Hulda Gústafsdóttur útflytjandi
rekur fækkunina aðallega til gengi
krónunnar, en þurrkar í Skandinavíu
gætu líka átt þar einhverja sök. Hún
hefur þó litla áhyggjur og nefnir
stækkandi markaði í Ameríku auk
nýrra markaða í Austur-Evrópu máli
sínu til stuðnings.
„Ég hef á tilfinningunni að
Bandaríkjamarkaður sé að lifna
við aftur. Þar er mikið beðið um
reiðhross. Þá vorum við í fyrsta sinn í
fyrra að flytja hross beint til Kanada,
hross sem fóru enn vestar í landið en
við höfum áður séð,“ segir hún en
rúm 50 hross fóru til Ameríku í fyrra.
Þá fóru 23 hross til Slóveníu
og hefur aldrei viðlíka fjöldi verið
sendur þangað. Tæp 400 lifandi
íslensk hross eru skráð í Slóveníu
skv. Worldfeng, en íslensk hross
hafa verið þar síðan árið 1987. Þá
mun vera vaxandi fjöldi hrossa í
Ungverjalandi, sem Hulda telur
áhugaverðan markað.
Söluaðilar hrossa eru almennt
jákvæðir gagnvart komandi ári.
Stærsta áskorun þeirra felst í að
svara eftirspurn eftir vel tömdum og
þægum tölturum, sem fara vel í reið
og kosta á bilinu 1–2 milljónir króna.
Fækkun til Noregs
Þýskaland trónir á toppi lista yfir
útflutningslönd íslenska hestsins
eins og fyrri ár, en 535 hross fóru
þangað í fyrra, sem er tæp 40%
útfluttra hrossa.
Næstflest fóru til Svíþjóðar, 191
talsins.Þá fóru 157 til Danmerkur og
100 til Sviss. Mikil fækkun er hins
vegar á hrossum til Noregs en aðeins
fóru 38 hross þangað í fyrra miðað
við 86 árið áður. Gera má ráð fyrir
að þurrkar hafi haft þar áhrif.
Eyríkið Malta er nýtt á lista
útflutningslanda, en eitt hross fór
þangað árið 2018 og er það eina
skráða íslenska hrossið þar í landi.
Hæst dæmdi stóðhesturinn til
Bandaríkjanna
Hlutfall þeirra hrossa sem hafa hlotið
fyrstu verðlaun í kynbótadómi hefur
aldrei verið jafn hátt og á árinu 2018,
eða 9,3%.
Hæst dæmda hrossið sem flutt
var út í fyrra var hryssan Paradís
frá Steinsholti, sem hlaut 8,63
í aðaleinkunn sem var í 2. sæti í
flokki 5 vetra hryssna á Landsmóti
hestamanna í Reykjavík sl. sumar.
Hún fór til Danmerkur.
Hæst dæmdi útflutti
stóðhesturinn, Stúdent frá
Ketilsstöðum, fór til Bandaríkjanna.
/ghp
HROSS&HESTAMENNSKA
Fjöldi út uttra hrossa frá Íslandi árin 2008 2018.
Heimild: Worldfengur, upprunaættbók íslenska hestsins.
ÚTFLUTNINGSLÖND
Land Fjöldi
Þýskaland 535
Svíþjóð 191
Danmörk 157
Sviss 100
Austurríki 78
Holland 53
Bandaríkin 48
Noregur 38
Finnland 33
Frakkland 33
Slóvenía 23
Færeyjar 17
Belgía 11
Kanada 9
Lúxemborg 7
Ítalía 6
Bretland 5
Ástralía 4
Nýja-Sjáland 2
Malta 1
HÆST DÆMDU ÚTFLUTTU HROSSIN
Nafn Uppruni Aðale. Útflutn.land
Paradís Steinsholti 8.63 Danmörk
Stúdent Ketilsstöðum 8.59 Bandaríkin
Mugison Hæli 8.55 Þýskaland
Þeyr Akranesi 8.55 Svíþjóð
Efemía Litlu-Brekku 8.50 Danmörk
Prúður Auðsholtshjáleigu 8.50 Danmörk
Asi Reyrhaga 8.48 Danmörk
Arya Garðshorni á Þelamörk 8.44 Slóvenía
Júpiter Lækjamóti 8.42 Svíþjóð
Glaumur Geirmundarstöðum 8.40 Danmörk
Jarl Jaðri 8.40 Danmörk
Kleópatra Lynghóli 8.39 Danmörk
Njörður Teigi II 8.37 Þýskaland
Víðir Enni 8.35 Danmörk
Ísafold Lynghóli 8.34 Danmörk
Atorka Varmalæk 8.34 Danmörk
Ófeigur Árbæjarhjáleigu II 8.32 Þýskaland
Prins Valíant Þúfu í Kjós 8.32 Nýja-Sjáland
Garpur Syðra-Garðshorni 8.31 Þýskaland
Salka Vindhóli 8.30 Svíþjóð
aradís frá Steinsholti er hæst dæmda út utta hrossið árið 2018. Hún er nú
í þjálfun hjá Charlotte Cook í Danmörku. Mynd/Stald Lysholm
Stúdent frá Ketilsstöðum á Landsmóti hestamanna 2018. Knapi Bergur
Jónsson. Mynd/Gangmyllan
Myndbönd á Worldfeng
Myndbönd af kynbótahrossum
á Landsmóti hestamanna í
Reykjavík 2018 má nú finna á
Worldfeng.
Gæði myndbandanna er sem
best verður á kosið og er nú unnið
í að bæta gæði myndbanda fyrri
Landsmóta.
Félag hrossabænda samþykkti á
aðalfundi sínum í haust að kaupa
áskrift að LM-myndböndum í
Worldfeng fyrir alla félaga sína og
er þegar búið að opna fyrir aðgang
þeirra.
Þá hafa Íslandshestafélögin í
Noregi og Belgíu boðið upp á þennan
aðgang fyrir sína félaga og viðræður
standa yfir við Íslandshestafélagið í
Svíþjóð skv. frétt Worldfengs.
Í dag eru um 2.000 áskrifendur
WF komnir með aðgang að
LM-myndböndum og helmingur
þeirra á Íslandi.
Hægt er að kaupa ársáskrift á
heimasíðu Worldfengs.
Félag hrossabænda hefur formlega
tekið yfir hlut Bændasamtaka
Íslands í Landsmóti ehf.
Með því er Félag hrossabænda
orðið þriðjungs eigandi í
eignarhlutafélaginu, sem er að
2/3 hluta í eigu Landssambands
hestamannafélaga.
Aðalfundur Félags hrossabænda
samþykkti boð BÍ um yfirtöku á
eignarhlutinum í haust.
„Landsmótið er hrossaræktar-
starfinu mikilvægt og ætlum
við því að taka þessu verkefni
fagnandi og sjá tækifæri í því. Allir
fundarmenn voru þó á því að félagið
muni ekki taka á sig fjárhagslegar
skuldbindingar,“ sagði Sveinn af
því tilefni.
Landsmót ehf. var stofnað
árið 2001 til að standa að rekstri
og utanumhaldi á Landsmóti
hestamanna. Næsta Landsmót verður
haldið á Hellu árið 2020.
Handaband Sveins Steinarssonar,
formanns Fhb og Sigurðar Eyþórs-
sonar, fram kvæmdastjóra BÍ,
innsiglaði y rtöku Fhb á hlut BÍ í
Landsmóti ehf.
Hrossabændur eignast
hlut í Landsmóti ehf.
Frá Landsmóti hestmanna 2018.
adæ
j
B n
. anúar