Bændablaðið - 17.01.2019, Síða 20

Bændablaðið - 17.01.2019, Síða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201920 Úttektir að beiðni hreppsnefndar á kostum í vegalagningu um Gufudalssveit hafa þegar kostað margar milljónir króna fyrir utan þá valkostagreiningu sem hreppurinn óskaði eftir. Átök hafa harðnað um þetta mál og mikillar óþreyju og óánægju er farið að gæta hjá mörgum sveitarstjórnum á Vestfjörðum í garð hreppsnefndar á Reykhólum. Bændablaðið sendi vegna þessa fyrirspurn til Reykhólahrepps og Tryggva Harðarsonar sveitarstjóra í desember. Tryggvi svaraði þeirri fyrirspurn fljótt og vel. 1. Spurt var hver væri heildar- kostnaður við úttekt verkfræði- stofunnar Multi consult varðandi samanburð á Teigsskógarleið ÞH og Reykhólaleið. Í svari sveitar stjóra segir: „Heildarkostnaður Multi - consult stendur í dag í 5.603.466 íslenskum krón um.“ 2. Í svari við spurningu um skiptingu kostnaðar af úttekt Multiconsult misskildi sveitar- stjóri greinilega spurn ing una og segir: „Honum hefur ekki verið skipt milli verkþátta.“ Því kemur ekkert fram um hvernig kostnaði verður á endanum skipt á milli þeirra sem fara fram á endurmatið, þ.e. hreppsnefndar og annarra sem á bak við þessa endurmatskröfu hafa staðið. 3. Spurt var hvort Reykhólahreppur hafi fengið styrk vegna matsgerðar Multiconsult og ef svo er frá hverjum? Í svari sveitarstjórans segir: „Sveitarfélagið á von á styrk frá Sigurði Gísla og Jóni Pálmasonum fyrir þeirri upphæð. Sennilega rétt um 2.200.000 íslenskra króna.“ 4. Þá var spurt hver bæri kostnað- inn vegna svokallaðrar „valkostagreiningar“ og þar var svarið: „Sveitarfélagið ber kostnað inn en mun sækja til Skipulagsstofnunar um þátttöku í þeim kostnaði vegna undirbúnings endurskoðunar Aðalskipulags.“ 5. Næst var bent á að nokkrir landeigendur hafi lýst yfir andstöðu við R-leið FRÉTTASKÝRING Hreppsnefnd Reykhólahrepps í andstöðu við aðrar sveitarstjórnir á Vestfjörðum: Reikningur Multiconsult vegna endurskoðunar framkvæmda nemur rúmum 5,6 milljónum króna – Sveitarstjóri Reykhólahrepps vonast til að Hagkaupsbræður greiði 2,2 milljónir af þeim reikningi Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhóla hrepps. Kostnaðarmat á vegagerð í Austur- Barðastrandasýslu D2 ÞH* R** A3** Vegagerðin Multiconsult 6,9 Vegagerðin 13,3 7,3 11,3 *Leið ÞH liggur um Teigsskóg **Leiðir R og A3 miða báðar við veg um Reykhóla Mismundandi kostir í milljörðum króna Umbætur á Vestfjarðavegi orðið að pólitísku deilumáli milli sveitarstjórna eftir áratuga átök um leiðir: Vegagerðin metur Þ-H leiðina ódýrasta, hagkvæmasta og öruggasta – Háskólinn á Akureyri segir hvert ár í töf á vegabótum jafngilda kostnaðarauka vegfarenda um að minnsta kosti 200–230 milljónir Vegagerðin telur að öruggasti, hagkvæmasti og fljótlegasti kosturinn í veggerð í Gufudalssveit sé það sem nefnt hefur verið Þ-H leið. Hún liggur út vestanverðan Þorskafjörð, út á Hallsteinsnes og um kjarrlendi hinna margfrægu Teigsskóga, yfir grynningar í mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar og yfir á Melanes. Þetta kom m.a. fram á opnum fjölmennum kynningarfundi sem haldinn var á Reykhólum 9. janúar síðastliðinn. Skógarþekja Teigsskógar, sem deilurnar snúast mest um, er samanlagt 667 hektarar sem samanstendur að mestu af birkikjarri eins og algengt er víða á Vestfjörðum. Leið Þ-H mun samkvæmt útreikningum Vegagerðarinnar geta raskað samtals um 2,8% af þessu gróðurlendi, eða á um 19 hekturum. Málið í höndum hreppsnefndar Afstaða hreppsnefndar Reykhóla- hrepps sem taka átti í gær eftir að Bændablaðið fór í prentun mun væntanlega ráða úrslitum hvort yfir höfuð verður ráðist í vegabætur í austanverðri Barðastrandarsýslu á næstu árum eða ekki. Ef hreppsnefnd ákveður að afskrifa tillögur Vegagerðarinnar um Teigsskógaleiðina er ljóst að þá er stál í stál og ekkert verður af framkvæmdum. Pólitískt kjörnir fulltrúar hafa ekki haft kjark til að höggva á þennan hnút til þessa og ekkert í stöðunni sem bendir til að það muni breytast. Því gæti þetta mál hæglega tafist í áratugi til viðbótar. Ef hreppsnefnd fellst hins vegar á tillögu Vegagerðar gæti útboð framkvæmda farið fram vorið 2020 og verkið þá klárað haustið 2023. Afstaða hreppsnefndar breyttist eftir kosningar Fram kom í kynningu Vegagerðar- innar að Reykhólahreppur hafi samþykkt á fundi sínum í mars 2018 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi sem miðaði við tillögu Vegagerðarinnar um Þ-H leið. Skipulagsstofnun samþykkti svo í apríl 2018 að auglýsa mætti aðalskipulagsbreytingu. Eftir sveitarstjórnarkosningar 26. maí söðlaði hreppsnefnd um og fékk norska fyrirtækið Multiconsult til að gera úttekt á valkostum og sérstaklega með leið um Reykhóla í huga og þverun Þorskafjarðar með hábrú og vegi úr Reykjanesi yfir í Melanes. Þessa leið hefur Vegagerðin nefnt A3 en Multiconsult kallar R-leið. Þá óskaði hreppsnefnd eftir því 17. júlí 2018 að Vegagerðin tæki tillögu Multiconsult um R-leið til samanburðar við aðra kosti. Óbreyttur vegur um Berufjörð hættulegur Eftir að Multiconsult lagði fram sína skýrslu, sem fól í sér að R-leiðin væri besti kosturinn, benti Vegagerðin á að í þeirra tillögu væri ekkert tillit tekið til þess að byggja þyrfti upp veginn frá Reykhólum inn Berufjörð með tengingu inn á Vestfjarðaveg, þjóðveg 60. Þessi kafli geti ekki að óbreyttu borið uppi stóraukna umferð, auk þess sem hann sé beinlínis hættulegur. Þ-H leiðin fullfjármögnuð en ekki A3 leiðin Leið Þ-H er fullfjármögnuð samkvæmt tillögu að samgöngu- áætlun en leið A3 [R] ekki. Óvíst er um fjármögnun jarðganga undir Hjallaháls og líklegt að jarðgöng á Austurlandi [Seyðisfjarðargöng] verði næst í röðinni. Ekki er heldur víst að Hjallaháls verði efstur í forgangi um jarðgöng á Vestfjörðum og líklegra að göng sem leysi hættulegan Súðavíkurveg af hólmi yrðu þar framar í goggunarröðinni. Samkvæmt mati Háskólans á Akureyri er kostnaður þjóðfélagsins af seinkun framkvæmda mikill. Þannig kosti 3 ára bið 420 milljónir kr. – 10 ára bið 1.740 milljónir kr. og 15 ára bið 3.070 milljónir króna. Hreppsnefnd ósammála Vegagerðinni Hreppsnefnd Reykhólasveitar hefur síðan eftir kosningar síðastliðið vor ekki verið sammála Vegagerðinni um Þ-H leiðina og óskaði eftir „valkostagreiningu“ frá Lilju Karlsdóttur í haust sem kynnt var 18. desember 2018. Þar er R leiðin metin hagstæðust. Vegagerðin segir hins vegar að umhverfisáhrif af A3/R leiðum hafi ekki verið metin og því ekki hægt að álykta að vegur um Reykhóla sé hagstæðasta leiðin. R leiðin verst út frá öryggissjónarmiðum Þann 4. janúar kom fram umferðaöryggismat fyrir leiðir Þ-H, D2 [jarðgöng undir Hjallaháls], A3 og R leið. Þar kom fram að öryggi Þ-H og A3 leiðar sé svipað en meira en í jarðgangaleið undir Hjallaháls enda sé vegur yfir Ódrjúgsháls þá áfram inni í myndinni. Leið R komi þar verst út með óbreyttum vegi frá Reykhólum til austurs. Mest stytting og ódýrast að fara um leið Þ-H Núverandi vegur frá Skálanesi í utanverðum Þorskafirði í Borgarnes er 184 km. Ef farin yrði Þ-H leið, sem kostar að mati Vegagerðarinnar um 7,3 milljarða, er vegalengdin 163 km og styttist um 21 km. Auk þess er þessi leið samkvæmt umferðaöryggismati talin best eða jafn góð og leið A3 með uppbyggðum nýjum vegi frá Reykhólum í báðar áttir. Ef farin yrði leið D2 með jarðgöngum, sem talin er kosta 13,3 milljarða, þá er vegalengdin 165 km og styttist vegurinn um 19 km. Ef farin yrði A3 leið, sem kostar 11,2 milljarða [þar af brúin ein og sér 5.970 milljónir samkv. mati Vegagerðarinnar], yrði vegalengdin 169 km og styttist um 15 km. Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Leið A3 Leið Þ-H Leið D2 11.200 7.300 13.300 Vestfjarðavegur mat á kostnaði mismunandi leiða - í milljónum króna

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.