Bændablaðið - 17.01.2019, Page 23

Bændablaðið - 17.01.2019, Page 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 23 ÞORRA ÞRÆLL 2019 Að þessu sinni verður fjallað um stein- og bætiefnafóðrun jórturdýra og mikilvægi þeirra í kjöt- og mjólkurframleiðslu. Fyrirlesarar verða Gerton Huisman og Jacob Huizing, sérfræðingar í fóðrun nautgripa frá Trouw Nutrition, ásamt ráðgjöfum Líflands. Erindin verða flutt á ensku en þýdd á íslensku. Fundargestir verða leystir út með veglegum gjafapakka með vörum sem nýtast öllum kúabændum. Að auki verða tilboð á bætiefnum og öðrum vörum í verslunum Líflands um allt land meðan á fræðslufundunum stendur. Boðið verður upp á léttar veitingar. 20:30 Verslun Líflands á Hvolsvelli 28. jan. mán. 11:30 Hótel Flúðum 20:30 Verslun Líflands í Borgarnesi 29. jan. þri. 20:30 Verslun Líflands á Blönduósi 30. jan. mið. 11:30 Hótel Varmahlíð 20:30 Verslun Líflands á Akureyri 31. jan. fim. Sala og ráðgjöf www.lifland.is Reykjavík Akureyri Borgarnes Blönduós Hvolsvöllur Sími 540 1100 lifland@lifland.is Lyngháls Óseyri Borgarbraut Efstubraut Ormsvöllur Þorraþræll, fræðslufundir Líflands verða haldnir 28.-31. janúar 2019. Nýsköpunarverðlaun SAF: Bjórböðin hlutu hnossið Bjórböðin á Árskógssandi fengu nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) fyrir árið 2018. Eliza Reid forsetafrú afhenti Bjórböðunum verðlaunin á 20 ára afmæli Samtaka ferðaþjónustunnar fyrr í þessum mánuði. Samtök ferðaþjónustunnar afhenda árlega nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Verðlaununum er ætlað að hvetja frumkvöðla landsins til dáða í ferðaþjónustu. Þetta er í fimmtánda sinn sem SAF veita nýsköpunarverðlaun samtakanna en þetta árið bárust 33 tilnefningar í samkeppninni um verðlaunin. Gróska og nýsköpun um allt land Sem fyrr endurspegla tilnefningarnar til nýsköpunarverðlauna SAF mikla grósku og nýsköpun í ferðaþjónustu um allt land. Hugmyndaauðgi, stórhugur og fagmennska einkennir mörg þau fyrirtæki sem tilnefnd voru, segir í tilkynningu frá SAF, og dómnefnd því ákveðinn vandi á höndum. Nefndarmenn voru þó sammála um að Bjórböðin séu handhafi verðlaunanna í ár. Bjórböðin voru opnuð í júní 2017 og vöktu þegar mikla athygli bæði hérlendis sem erlendis, enda er slík böð ekki að finna hvar sem er í heiminum. Fyrirtækið kom því ekki aðeins nýtt inn á markaðinn, heldur kom það inn með glænýja upplifun þar sem vellíðan og slökun gegnir lykilhlutverki á nýstárlegan hátt. Bjórböðin hafa skapað sér ákveðna sérstöðu í ferðaþjónustu og ferðaskrifstofur verið fljótar að taka við sér með því að bjóða upp á ferðir þar sem viðkoma í böðunum er innifalin. Bjórböðin eru því þegar orðin mikilvægur segull fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi og styrkja markaðssetningu áfangastaðarins allt árið um kring. Áhugaverð ferðavara Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson, eigendur bruggverksmiðjunnar Kalda á Árskógssandi í Eyjafirði, stofnuðu fyrirtækið Bjórböðin ehf. árið 2015 ásamt syni þeirra og tengdadóttur. Í bjórböðunum er ger úr bjórbrugginu nýtt sem annars hefði verið hent. Bjórböðin eru lýsandi dæmi um frjóan frumkvöðlaanda sem skilar sér í áhugaverðri ferðavöru og atvinnuskapandi starfsemi allt árið um kring. Agnes og Ólafur segjast þakklát og stolt með viðurkenninguna. Þau hafi haft mikla trú á að verkefnið gæti skapað nýja og ógleymanlega upplifun í ferðaþjónustu, en viðbrögð gesta hafi verið góð. Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar voru afhent í fimmtánda sinn, en í hópi þeirra sem áður hafa fengið verðlaunin má nefna, Friðheima, Óbyggðasetur Íslands, Into The Glacier, Gestastofu Þorvaldseyri og Saga Travel. /MÞÞ Bjórböðin hlutu nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar. Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og formaður dómnefndar nýsköpunarverðlaunanna, Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson, eigendur Bjórbaðanna og Eliza Reid forsetafrú. Mynd / SAF j adnæB . anúar

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.