Bændablaðið - 17.01.2019, Síða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201926
NÁTTÚRUNÝTING&SJÁLFBÆRNI
Nordregio og evrópska rannsóknarverkefnið BioWiseTrans:
Hagkerfi sem byggist á sjálfbærri nýtingu lands
og lífkerfisins getur gjörbreytt þróun dreifbýlis
– Slíkt kallar á mikla samþættingu ólíkra sjónarmiða og endurskoðun á hindrandi regluverki
BioWiseTrans er evrópskt
rannsóknarverkefni sem norræna
rannsóknastofnunin Nordregio
kemur að. Fjallar verkefnið
um það hvernig lífhagkerfið og
sjálfbær nýting náttúruauðlinda
getur stuðlað að atvinnusköpun
og byggðaþróun í dreifbýli.
Í grein sem birtist um þetta mál í
Nordregio Magazine er m.a. vitnað
í Karen Refsgaard, rannsóknarstjóra
og staðgengil framkvæmdastjóra
Nordregio, sem segir:
„Allt sem hægt er að framleiða
innan hagkerfisins sem byggir á
jarðefnaeldsneyti er einnig hægt að
framleiða innan lífríkis. Þú getur
búið til mat, orku, fatnað, lyf, plast
og úrval annarra efna. Þetta þýðir að
það krefjist margs konar hæfileika
að byggja upp sterkt og samfellt
lífhagkerfi."
Hún segir að til þess að flýta
umskiptum frá jarðefnaeldsneyti yfir
í lífhagkerfi, verði hagsmunaaðilar
frá öllum hlutum virðiskeðjunnar
að vinna saman. Öflugt samstarf
um nýsköpun og stjórnunarkerfi
verði lykillinn að því að takast á við
hugsanleg átök um landnotkun og
að skilgreina reglur og reglugerðir
sem valda hindrunum við þróun nýs
lífhagkerfis.
Norræn rannsóknarstofnun
Nordregio er leiðandi norræn og
evrópsk rannsóknamiðstöð sem sett
var á fót af Norræna ráðherraráðinu
árið1997, en þar starfa yfir 40
manns. Í stjórn Nordregio sitja
fulltrúar allra Norðurlandanna auk
áheyrnarfulltrúa Færeyja, Grænlands
og Álandeyja og fulltrúa sem kosinn
er af starfsfólki stofnunarinnar. Er
miðstöðinni ætlað að fjalla um þróun
dreifðari byggða jafnt og skipulag
þéttbýlis og þróun sjálfbærra
lausna á norðlægum slóðum í
samræmi við sjálfbærnimarkmið
Sameinuðu þjóðanna. Snertir
úrlausnarefnið þá líka stefnumótun
og söfnun staðreynda sem geta
síðan nýst stjórnmálamönnum
til ákvarðanatöku og við
reglugerðarsmíði.
Vernd hagsmuna sveitarfélaga
og samfélaga ætti að vera
aðalatriðið
Í greininni segir einnig að
uppbygging lífhagkerfis þýði
einstaka möguleika til vaxtar
í dreifbýli og strandsvæðum á
Norðurlöndum vegna nálægðar
við öflugar og fjölbreyttar
lífefnauppsprettur. Það sé þó að því
tilskildu að auðlindunum sé stjórnað
á réttan hátt. Segir Refsgaard að
verkefnið snúist m.a. um að þróa
ramma um að auðlindirnar verði
nýttar á sjálfbæran hátt, bæði í
umhverfis- og efnahagslegu tilliti.
„Vernd hagsmuna sveitarfélaga
og samfélaga ætti að vera
lykilatriði,“ heldur hún áfram.
„Stofnanir okkar verða að tryggja að
dreifbýli fái rétt til að stjórna, eiga
og nýta lífefnauppsprettur og einnig
að efnahagslegur ávinningur sé að
þessu fyrir samfélagið. Ef við náum
árangri í að skapa réttar aðstæður
fyrir tækniþróun, menntun og
útflutning, gæti lífhagkerfið stuðlað
að mikilli uppbyggingu í dreifbýli,“
sagði Karen Refsgaard.
Margvísleg álitamál
geta komið upp
„Lífhagkerfið er afar flókið
í náttúrunni,“ segir Michael
Kull verkefnastjóri Nordregio
BioWiseTrans.
„Það er nauðsynlegt að átta sig
á margvíslegum vandamálum sem
upp geta komið. Með aukinni notkun
lífmassa er líklegt að við munum
sjá meiri landnotkunarsamkeppni
og átök um landnotkun og málefni
sem tengjast regluverki og
auðlindastjórnun. Til þess að takast
á við þessi mál þarf að skilgreina
hagsmunaaðila og koma þeim
saman.“
Norrænir framherjar
Þó að lífhagkerfið sé enn á frumstigi,
hafa Norðurlöndin gert mikilvægar
ráðstafanir til að skapa hagkerfi
sem byggist á sjálfbærri nýtingu
auðlinda.
„Norrænu ríkin eru á margan
hátt í forystu þegar kemur að
þróun lífhagkerfis,“ sagði Sveinn
Margeirsson, fyrrverandi forstjóri
Matís á Íslandi, en hann var einn af
aðal ræðumönnum á ráðstefnunni
Nordregio Forum 2018. Hann tók
þar líka þátt í umræðum um bláa
og græna lífhagkerfið sem fjallaði
um nýtingu sjávarauðlinda og
landnotkun með sjálfbærum hætti.
„Okkur hefur gengið vel í þróun
okkar mannafla, við þekkjum
auðlindir okkar vel og höfum mótað
góða stefnu fyrir Norðurlöndin.“
Fiskeldi og átök um landnýtingu
Eitt af þeim málum sem fjallað
var um er aukin samkeppni milli
þéttbýlis og landbúnaðar um
landnýtingu, verndun og þróun
iðnaðar, framleiðslu matvæla
og lífeldsneytis. Einnig var þar
fjallað um fiskeldi og samþættingu
hagsmuna á sjó og á landi.
„Það eru veruleg tækifæri til
vaxtar í fiskeldi,“ sagði Sveinn
Margeirsson.
„Á sama tíma er mikilvægt að
meta hvernig vöxtur þeirrar greinar
muni hafa áhrif á landsbundna
viðskiptahagsmuni og umhverfið.
Til dæmis, hvernig það muni hafa
áhrif á villta laxastofna á svæðinu
eða ferðaþjónustu í sveitunum.
„Í heimi sem stendur frammi
fyrir meiri matvælatengdum
áskorunum en nokkru sinni fyrr,
mun spurningin um landnotkun
verða sífellt mikilvægari,“ sagði
Sveinn.
Hindranir regluverksins
Sveinn benti einnig á að strangar
túlkanir reglugerða geti verið
mikil hindrun fyrir framtíðarþróun
lífhagkerfisins. Smáfyrirtæki
eiga oft erfitt með að kynna
nýjar vinnsluaðferðir matvæla á
Norðurlöndum og Evrópu. Hann
nefndi slátrun lamba og notkun
skordýra sem dæmi.
„Við stöndum frammi fyrir
aðstæðum þar sem túlkun okkar á
reglugerðum um matvælaöryggi
kemur í veg fyrir þróun,“ sagði
Sveinn.
„Það snýst um hvernig við metum
og vegum áhættu og ávinning. Er
ástæða til að ætla að við séum of
ströng í túlkun okkar? Í lok dags
snýst þetta um sjálfbæra nýtingu
lífríkisins og við viljum örugglega
ekki sóa þeim möguleikum vegna
strangrar túlkunar á reglum.“
Ekki einfalt að breyta reglunum
Michael Kull segir að breyting á
reglunum sé ekki einfalt verkefni,
ástæðan er flóknir stjórnarhættir á
því sviði sem lífeðlisfræðin starfar á.
Það verður að vera hægt að ná
fram samlegðaráhrifum af evrópskri
löggjöf og löggjöf einstakra ríkja.
Hún verður síðan að passa vel inn
í staðbundnar og svæðisbundnar
lífsstjórnunaraðferðir.
Eitt af markmiðum BioWiseTrans
er að tryggja að stefnumótun
okkar sé studd af góðum gögnum
um þróun lífhagkerfisins og
um félagsleg, umhverfisleg og
efnahagsleg áhrif. Við þurfum að
fá bestu fáanlegu gögnin til að búa til
upplýst og skilvirkt lífhagkerfi fyrir
framtíðina,“ sagði Michael Kull.
/HKr.
Michael Kull.Karen Refsgaard. Sveinn Margeirsson.
Greiðslur fyrir ræktað og uppskorið land:
Flatarmál lands hefur minnkað milli ára
Undanfarin tvö ár hafa land-
greiðslur verið greiddar út til
bænda, samkvæmt ramma-
samningi búvörusamnings frá 2016,
þar sem greitt er fyrir land sem
uppskorið er til fóðuröflunar og
bættust þær við jarðræktarstyrki
sem hafa verið greiddir frá 2008 í
núverandi mynd. Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins (RML) hefur birt
yfirlit um heildarflatarmál þess
lands sem hefur verið greitt fyrir
síðustu tvö ár og hefur flatarmál
þess minnkað um tæpa 1.000
hektara á milli ára.
Þessar upplýsingar koma úr
gögnum frá Matvælastofnun.
Raunar minnkar land sem greitt er
fyrir, bæði fyrir landgreiðslur og
jarðræktarstyrki. Greitt var fyrir
76.988 hektara með landgreiðslum
árið 2017 en fyrir 76.587 hektara á
síðasta ári. Jarðræktarstyrkir voru
greiddir vegna 10.811 hektara árið
2017, en vegna 10.238 hektara
á síðasta ári. Þegar tölur um
landgreiðslur og jarðræktarstyrki
hafa verið lagðar saman minnkar
flatarmálið úr 87.799 hekturum í
86.825 hektara.
Nú greitt fyrir
útiræktað grænmeti
Breytingar á fyrirkomulagi jarð-
ræktar styrkja hafa orðið þannig
að nú er greitt fyrir útiræktað
grænmeti, sem áður var ekki
styrkhæft. Einnig eru meiri kröfur
um jarðræktarskýrsluhald í Jörð.is
en áður var.
Nokkuð um að bændur sækist
ekki eftir greiðslum
RML bendir á að enn sé nokkuð
um að bændur sækist ekki eftir
greiðslum og einnig sé einhver
ræktun sem ekki falli undir þær
kröfur sem eru settar í reglugerð.
RML áætlar að heildarflatarmál
þess lands sem er í virkri nýtingu
á Íslandi (ræktað og uppskorið)
sé rúmlega 90 þúsund hektarar. Á
meðfylgjandi mynd frá RML má sjá
hvernig sú landnýting dreifist. /smh
Drei ng landnýtingarinnar um landið. Mynd / RML
Greitt var fyrir 7 .988 hektara með
landgreiðslum árið 2017 en fyrir
7 .587 hektara á síðasta ári.