Bændablaðið - 17.01.2019, Page 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 31
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Kálflugudúkar
Við tökum við pöntunum á kálflugudúk til 15. mars n.k.
Garðyrkjubændur athugið!
Við tökum við pöntunum
á kálflugudúk til 15. mars n.k.
Stærðir: 13x100m og 13x200m
Ein af algengustu
„grænu“ pottaplöntunum
á Íslandi er sverðburkninn
(Nephrolepis exaltata)
sem prýtt hefur mörg
heimili, stofnanir og
fyrirtæki til margra
áratuga.
Þessi tegund er auðveld
í umhirðu og allir sem hafa
yndi af pottablómaræktun
ættu að ná góðum árangri
við ræktun þessarar fallegu
stofuplöntu.
Íslenskir garðyrkju-
bændur sem sinna
framleiðslu pottablóma
eru um þessar mundir vel
birgir af sverðburkna í
gróðurhúsum sínum og því
er ekki úr vegi að kynnast
honum ögn nánar.
Upprunninn í Mið- og
Suður- Afríku
Nát túru leg he imkynni
tegundarinnar eru skógar og
deiglendi í Mið- og Suður-
Ameríku, í Vestur-Indíum og í
Afríku. Upp af lágum jarðstöngli
sverðburknans vex fjöldi langra
laufblaða sem veita plöntunni
lögun og form sem minnir á
framandi gróður regnskóga og
hitabeltis. Margskipt laufblöðin
eru ljósgræn með fjöldamörgum
hrokknum blöðkum, sem
aftur geta skipst í enn fínlegri
smáblöðkur.
Laufkrónan er fagurlega
sveigð og myndar glæsilegt,
nærri hnöttótt form sem sómir
sér hvarvetna vel, jafnt á borði
og blómastandi, í gluggakistu sem
og í hengipotti.
Þarf að úða reglulega
með vatni
Þótt umhirða sverðburkna sé ekki
flókin þarf að uppfylla nokkur
atriði til að hann nái góðum
þrifum. Loftraki þarf að vera
nokkru hærri en algengt er í flestu
húsnæði. Til að mæta því þarf að
úða hann reglulega með fínum
vatnsúða við stofuhita og koma
honum ekki fyrir nærri ofni eða
öðrum hitagjöfum. Miða mætti
við 80% loftraka til að honum
líði vel.
Sverðburkni þolir vel
venjulegan stofuhita en hann getur
einnig þrifist við hita allt niður í
10°C um tíma án þess að hljóta
skaða af. Ef hitastigið er í hærra
lagi þarf sérstaklega að huga að
því að úða plöntuna með vatni til
að halda nægilega háum loftraka.
Birtukröfurnar eru hóflegar
eins og títt er um burkna. Því má
velja sverðburknanum stað þar
sem nokkurs skugga gætir. Á of
dimmum stað dregur þó töluvert
úr vexti og fram geta komið
blaðskemmdir.
Vöxturinn getur verið hraður
frá vori og fram eftir sumri. Búast
má við að plantan tvöfaldi umfang
sitt árlega fyrstu tvö til þrjú árin
en eftir það verður vöxturinn
hægari. Umpottun á útmánuðum
er ætíð til bóta til að tryggja góð
þrif. Veljið rakaheldna pottamold
sem gjarnan má innihalda dálítið
af safnhaugamold.
Auðvelt að fjölga
Auðvelt er að fjölga
plöntunum um leið og
umpottun er framkvæmd.
Hliðargreinar með smárótum
eru þá teknar af og komið fyrir
í litlum pottum og þeim haldið
vel rökum fyrstu vikurnar.
Huga þarf vel að vökvun
og gæta þess að pottamoldin
þorni aldrei um of. Á mesta
vaxtartímanum er sverðburkninn
vökvaður tvisvar–þrisvar í viku
með daufri áburðarblöndu í
annað hvert skipti. Til dæmis
má miða við að nota algengan
blómaáburð, einn tappa af áburði
í 2 l af vatni. Á veturna er haldið
áfram að vökva þannig að moldin
í pottinum þorni aldrei alveg,
en áburðargjöf er óþörf í mesta
skammdeginu.
Fallegur sverðburkni er mesta
híbýlaprýði, sem veitir fersk og
hlýleg hughrif.
Ingólfur Guðnason,
brautarstjóri garðyrkju-
framleiðslusviðs
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Fallegur sverðburkni
er híbýlaprýði
Sverðburkni.
REKI EHF
EFTIR FARSÆL 30 ÁR
HORFUM VIÐ STOLTIR FRAM VEGINN.
SÍMI: 562 2950www.reki.is
VIÐ ÞÖKKUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR
30 FARSÆL ÁR Í REKSTRI OG HORFUM
STOLTIR FRAM VEGINN.
110 REYKJAVÍKHÖFÐABAKKA 9
fráa Ha hf i