Bændablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 31 Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Kálflugudúkar Við tökum við pöntunum á kálflugudúk til 15. mars n.k. Garðyrkjubændur athugið! Við tökum við pöntunum á kálflugudúk til 15. mars n.k. Stærðir: 13x100m og 13x200m Ein af algengustu „grænu“ pottaplöntunum á Íslandi er sverðburkninn (Nephrolepis exaltata) sem prýtt hefur mörg heimili, stofnanir og fyrirtæki til margra áratuga. Þessi tegund er auðveld í umhirðu og allir sem hafa yndi af pottablómaræktun ættu að ná góðum árangri við ræktun þessarar fallegu stofuplöntu. Íslenskir garðyrkju- bændur sem sinna framleiðslu pottablóma eru um þessar mundir vel birgir af sverðburkna í gróðurhúsum sínum og því er ekki úr vegi að kynnast honum ögn nánar. Upprunninn í Mið- og Suður- Afríku Nát túru leg he imkynni tegundarinnar eru skógar og deiglendi í Mið- og Suður- Ameríku, í Vestur-Indíum og í Afríku. Upp af lágum jarðstöngli sverðburknans vex fjöldi langra laufblaða sem veita plöntunni lögun og form sem minnir á framandi gróður regnskóga og hitabeltis. Margskipt laufblöðin eru ljósgræn með fjöldamörgum hrokknum blöðkum, sem aftur geta skipst í enn fínlegri smáblöðkur. Laufkrónan er fagurlega sveigð og myndar glæsilegt, nærri hnöttótt form sem sómir sér hvarvetna vel, jafnt á borði og blómastandi, í gluggakistu sem og í hengipotti. Þarf að úða reglulega með vatni Þótt umhirða sverðburkna sé ekki flókin þarf að uppfylla nokkur atriði til að hann nái góðum þrifum. Loftraki þarf að vera nokkru hærri en algengt er í flestu húsnæði. Til að mæta því þarf að úða hann reglulega með fínum vatnsúða við stofuhita og koma honum ekki fyrir nærri ofni eða öðrum hitagjöfum. Miða mætti við 80% loftraka til að honum líði vel. Sverðburkni þolir vel venjulegan stofuhita en hann getur einnig þrifist við hita allt niður í 10°C um tíma án þess að hljóta skaða af. Ef hitastigið er í hærra lagi þarf sérstaklega að huga að því að úða plöntuna með vatni til að halda nægilega háum loftraka. Birtukröfurnar eru hóflegar eins og títt er um burkna. Því má velja sverðburknanum stað þar sem nokkurs skugga gætir. Á of dimmum stað dregur þó töluvert úr vexti og fram geta komið blaðskemmdir. Vöxturinn getur verið hraður frá vori og fram eftir sumri. Búast má við að plantan tvöfaldi umfang sitt árlega fyrstu tvö til þrjú árin en eftir það verður vöxturinn hægari. Umpottun á útmánuðum er ætíð til bóta til að tryggja góð þrif. Veljið rakaheldna pottamold sem gjarnan má innihalda dálítið af safnhaugamold. Auðvelt að fjölga Auðvelt er að fjölga plöntunum um leið og umpottun er framkvæmd. Hliðargreinar með smárótum eru þá teknar af og komið fyrir í litlum pottum og þeim haldið vel rökum fyrstu vikurnar. Huga þarf vel að vökvun og gæta þess að pottamoldin þorni aldrei um of. Á mesta vaxtartímanum er sverðburkninn vökvaður tvisvar–þrisvar í viku með daufri áburðarblöndu í annað hvert skipti. Til dæmis má miða við að nota algengan blómaáburð, einn tappa af áburði í 2 l af vatni. Á veturna er haldið áfram að vökva þannig að moldin í pottinum þorni aldrei alveg, en áburðargjöf er óþörf í mesta skammdeginu. Fallegur sverðburkni er mesta híbýlaprýði, sem veitir fersk og hlýleg hughrif. Ingólfur Guðnason, brautarstjóri garðyrkju- framleiðslusviðs GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM Fallegur sverðburkni er híbýlaprýði Sverðburkni. REKI EHF EFTIR FARSÆL 30 ÁR HORFUM VIÐ STOLTIR FRAM VEGINN. SÍMI: 562 2950www.reki.is VIÐ ÞÖKKUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR 30 FARSÆL ÁR Í REKSTRI OG HORFUM STOLTIR FRAM VEGINN. 110 REYKJAVÍKHÖFÐABAKKA 9 fráa Ha hf i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.