Bændablaðið - 17.01.2019, Síða 32

Bændablaðið - 17.01.2019, Síða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201932 Hörður Sigurjónsson, gæða- og sölustjóri veitingasviðs Hótel Sögu, hefur starfað í veitingabransanum í 53 ár, lengst af sem þjónn. Hörður, sem hætti störfum í dag, segir þjónsstarfið afskaplega skemmtilegt en á köflum hefði ekki sakað að hafa gráðu í sálfræði eða heimspeki til að grípa til samhliða barþjónustunni. „Ég byrjaði á Hótel Sögu sem nemi í framreiðslu 1. maí 1966 og útskrifaðist 1969. Fékk frí frá Hótel Sögu til að taka að mér hótelstjórastarf á Hótel Stykkishólmi og stjórnaði því fyrstu tvö árin og kom svo aftur á Hótel Sögu, og starfaði sem þjónn á Sögu til 1981, eða þar til ég söðlaði um og fór til Ólafs Laufdal sem var að opna Broadway í Mjódd. Var yfirþjónn á Broadway í Mjódd frá því að staðurinn var opnaður 6. nóvember 1981 og flutti síðan á Hótel Ísland í Ármúla 9, þegar sá staður var opnaður sem stærsti skemmtistaður Íslands og tók allt að 1.200 gesti í mat.“ Hörður starfaði sem þjónn á Naustinu í nokkur ár og sölustjóri á Restaurant Reykjavík og FoodCo sem rak á þeim tíma staði eins og Lækjarbrekku, Sjávarkjallarann, Greifann á Akureyri og nokkra skyndibitastaði, eins og til dæmis American Style. Oft kvöld- og næturvinna Hörður réði sig svo aftur á Hótel Sögu og hefur starfað þar síðan þá og hefur því alls starfað um þrjátíu ár á hótelinu. „Samkvæmt kennitölunni átti ég að hætta að vinna fyrir nokkrum árum en hótelstjórinn, Ingibjörg Ólafsdóttir, sagði að ég mætti vinna eins lengi og ég vildi, en núna er kominn tími til að hægja á eftir 53 ár. Þjónsstarfið felur oft í sér óreglulegan vinnutíma en fyrstu árin mín á Sögu vann ég mest á Grillinu og þá vorum við búnir á kristilegum tíma. Þetta voru morgun- og kvöldvaktir og vinnutíminn þá oftast undir miðnætti og maður var kominn heim fljótlega eftir það. Eftir að ég flutti mig á Broadway breyttist vinnutíminn mikið og alltaf opið til þrjú á nóttunni um helgar og maður oft ekki kominn heim fyrr en undir fimm til sex á morgnana.“ Skemmtilegt á Astralbarnum „Af minni reynslu er mjög skemmtilegt að vinna sem þjónn. Sérstaklega fannst mér gaman að starfa sem barþjónn á Astrabarnum á Sögu sem var opinn í hádeginu og á kvöldin þar sem ég var í mörg ár. Á þeim tíma var maður mikið í spjallinu meðfram því að skenkja í glös. Það voru minni læti á barnum á þeim tíma og menn komu til að fá sér drykk. Það var mikið um fastakúnna sem komu til að spjalla og þá hefði oft verið gott að hafa gráðu í sálfræði og jafnvel heimspeki meðfram þjónsreynslunni, sérstaklega þegar umræðurnar urðu þungar. Sama stemning var oft til staðar á Naustinu. Stemningin var aftur á móti önnur á Broadway sem var stór skemmtistaður og satt best að segja urðu einhvers konar straumhvörf í veitingabransanum með tilkomu staðarins. Með opnun Brodway í Mjódd skapaðist stemning fyrir því að mæta klukkan sjö og fá sér að borða, síðan var sýning, oft með frægum erlendum skemmtikröftum, og ball á eftir. Oft skiptist kúnnahópurinn um það leyti sem böllin voru að hefjast. Fólk sem kom í mat og á sýninguna fór iðulega milli ellefu og hálf tólf eftir að hafa tekið nokkra snúninga og í þeirra stað kom balltraffíkin með yngra fólki og biðröð dauðans fyrir utan. Oft kom það fyrir að ég þekkti svo marga sem voru að bíða eftir að komast inn að það þýddi ekkert LÍF & STARF – Hörður Sigurjónsson kveður vinnufélagana á Hótel Sögu og segist hafa átt þar dásamlegan tíma á skemmtilegum vinnustað Hörður Sigurjónsson, gæða- og sölustjóri veitingasviðs Hótel Sögu, lætur af störfum í dag eftir 53 ára starf í veitingabransanum. Mynd / HKr. Hörður ásamt Rannveigu Ingvarsdóttur, eiginkonu sinni, í afmæli nnsku barþjónasamtakanna um borð í ferju á siglingu milli Helsinki og Stokkshólms. Hörður var á þessum tíma formaður Barþjónaklúbbs Íslands. Formenn Norrænu barþjónasamtakanna í 30 ára afmælishó Barþjónaklúbbs Íslands sem var haldið á Naustinu 1993. Hörður nýbyrjaður í námi hjá Grillinu á Sögu árið 1966.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.