Bændablaðið - 17.01.2019, Side 33

Bændablaðið - 17.01.2019, Side 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 33 Páskaveisla í Vínarborg sp ör e hf . Vor 3 Þessi glæsilega páskaferð hefst í Passau sem er við ármót Dónár, Inn og Ilz í Bæjaralandi og margir telja eitt fegursta borgarstæði Evrópu. Þaðan verður farið til Vínarborgar þar sem fagrar byggingar prýða borgina og munum við skoða helstu staði hennar svo sem Schönbrun höllina og hið þekkta hús Hundertwasser. Ferðin endar svo í hinni heillandi München. 13. - 20. apríl Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 214.400 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! fyrir mig að fara í anddyrið því þar voru svo margir sem maður þekkti að biðja mann um að taka sig inn fram fyrir röðina sem var alltaf fyrir utan. Staðurinn var með leyfi fyrir ákveðnum fjölda gesta og þegar var orðinn húsfyllir mátti bara hleypa inn jafnmörgum og fóru út. Síðar breyttist þessi ballmenning mikið þegar pöbbarnir opnuðu hver af öðrum í miðbænum. Túr með Gullfossi „Á meðan ég var lærlingur á Sögu, 1968, hafði Guðmundur bryti samband við mig og spyr hvort ég geti farið einn jólatúr með Gullfossi og reddað öðrum þjóni með mér. Ég fékk félaga minn sem var að læra með mér á Sögu að koma með mér og við samþykktum túrinn með því skilyrði að konurnar okkar kæmu með og það var samþykkt, og var hann mjög skemmtilegur fyrir okkur. Jólatúrinn var árviss og farið til Leith í Skotlandi, Kaupmannahafnar og Hamborgar og sömu leið heim. Siglingin var vinsæl og merkisfólk í þjóðfélaginu sem fór með ár eftir ár. Í þessum ferðum voru kvöldvökur og dansleikir á kvöldin um borð á siglingunni og mjög langur vinnudagur hjá þjónustuliði og hljómsveitinni um borð, við félagarnir tókum flestar morgunvaktirnar og þess vegna urðu vinnudagarnir ansi langir, en skemmtilegar minningar eftir á. Kynntist konunni á Sögu Hörður kynntist Rannveigu Ingvarsdóttur, eiginkonu sinni, á Hótel Sögu þar sem hún var að læra hárgreiðslu. „Rannveig hóf nám í hárgreiðslu sama dag og ég hóf þjónanámið. Það var ball í Sigtúni, gamla Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll, um kvöldið þar sem Dúmbó og Steini voru að spila. Þar dansaði ég við Rannveigu fyrsta dansinn og við höfum dansað saman í 53 ár síðan þá. Margar skemmtilegar uppákomur Að sögn Harðar man hann eftir mörgum skemmtilegum uppákomum í gegnum tíðina. „Ég gæti eflaust skrifað eina eða tvær bækur með skemmtilegum sögum af viðskiptavinum á barnum en við framreiðslumenn erum bundnir þagnarskyldu, eins og læknar og prestar, enda kæmumst við ekki í gegnum starfið ef við værum alltaf að blaðra um kúnnana. Ég lít reyndar svo á að fólk verði að njóta ákveðinnar friðhelgi þegar það er komið inn á skemmtistaði. Árið 1973, þegar Danadrottning kom í opinbera heimsókn til Kristjáns Eldjárn og Halldóru, var haldin veisla fyrir drottninguna í Súlnasalnum. Eins og margir vita reykir Margrét Þórhildur mikið og ég hafði það eina hlutverk um kvöldið að standa, ekki allt of nærri henni, með öskubakka og passa að hún dræpi í sígarettunum í honum. Þegar Margrét kom svo aftur í ár varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að vinna í móttöku fyrir hana í Veröld – Húsi Vigdísar Finnbogadóttur. Henni var sagt þá að ég hefði líka verið í veislunni 1973 og henni fannst það skemmtilegt og tók í höndina á mér og þakkaði mér fyrir. Margir þekktir gestir komu á Sögu á árum áður og er mér sérstaklega minnisstæður leikarinn Alec Guinness, sem kom í nokkur skipti og borðaði alltaf morgunmat við sama borðið á Grillinu. Hann sagði mér að hann kæmi til Íslands til að slaka á og fá að vera í friði með konunni sinni og laus við allt áreiti. Ég afgreiddi líka hér á Sögu meðal annarra Charlton Heston, Ellu Fitzgerald og Louis Armstrong,“ segir Hörður. Dásamlegur tími á skemmtilegum vinnustað „Seinni árin mín á Sögu hef ég lítið verði í beinni þjónustu við kúnnana en því meira í stjórnun og gæðamálunum. Mig langar í lokin að fá að þakka öllu því góða fólki sem ég hef unnið með og kynnst í húsinu fyrir gott samstarf og góð kynni og gildir það jafnt fyrir alla, hvaða starfi sem þeir starfa í húsinu. Þetta er búið að vera dásamlegur tími á skemmtilegum vinnustað og takk fyrir mig.“ /VH Tveir af verðlaunadrykkjum Harðar í kokteilkeppnum Stripper Fyrstu verðlaun 1981 3 cl. vodka 1,5 cl kakólíkjör, ljós 1,5 cl kókoslíkjör barsk. flórsykur Hristur Fyllt með appelsínusafa Skreyting: Ferskur ananas, 2 rauð kirsuber, rör, hræripinni, barskeið Grenadine á toppinn á drykknum. Brodway önnur verðlaun 1982 2 cl Rom Bacardi 1 cl amaretto 3 cl appelsínusafi Trópíkana Dash bananalíkjör Bols Dash bananacolada mix Hristur Skreyting: Sítrónusneið, tvö kirsuber, kokteilpinni Árshátíð í átthagasal Hótel Sögu sem var forveri Sunnusalarins.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.