Bændablaðið - 17.01.2019, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201934
Þótt Íslendingar megi
oft kallast tæknióðir
og séu nýjungagjarnir
og fljótir til að nýta
sér margvíslega tækni,
þá er þar margt sem
ekki rekur á okkar
fjörur. Þar á meðal
má nefna síams tví- og
þríbura-dráttarvélar og
jarðýtur.
Ein slík símas tvíbura-
jarðýta var af gerðinni
Caterpillar Twin D8.
Einungis munu hafa verið
smíðaðar þrjár slíkar
vélar og því ekki skrítið
að þær hafi ekki ratað til
Íslands.
Var fyrsta slíka vélin smíðuð af
Peterson Caterpillar í Kaliforníu
fyrir verktaka sem vann við að
ryðja skógi við gerð Hungry
Horse-stíflunnar í Montana í
Bandaríkjunum 1949. Var hún
stundum nefnd „Super Pusher
Cat“, eða súperýta. Hún var að
öllum líkindum notuð til að draga
slóða eð stóra stálkúlu sem fest var
við keðjur og víra til að rífa niður
tré á byggingarsvæði stíflunnar.
Einnig mögulega til að draga
plóg og eða jarðvegsskrapara
[scraper] líkt og notaður var við
gerð Ísafjarðarflugvallar í upphafi
sjöunda áratugar síðustu aldar.
Önnur símastvíburavélin fór til
kolaorkuvers í Ohio og var ætlað
að ryðja upp stórum kolahaugum
fyrir orkuverið og var hún með
hefðbundinni en risastórri ýtutönn
(22 fet) og með vírahífingu.
Líklegt er að þessi sama vél hafi
verið notuð við gerð á Garrison-
stíflunni á árunum 1950 til 1959
og sjá má á póstkorti frá þeim tíma.
Þriðja síamsvélin af Caterpillar
D8 gerð var smíðuð fyrir King
Ranch í Texas. Hún var útbúin
með eins konar trjáruðningsplóg
[Holt Funnel] sem smíðaður var af
Holt Caterpillar umboðsaðilanum í
Texas og var beitt með vírahífingu
en ekki glussatjökkum. Var vélin
notuð til að rífa upp mesquite
tré og rótarhnyðjur á King
Ranch búgarðinum. Seinna mun
Caterpillar D9G hafa tekið við
þessu hlutverki tvíbura vélarinnar.
/HKr.
UTAN ÚR HEIMIFURÐUVÉLAR&FARARTÆKI
Ein af þremur Caterpillar Twin D8 síamstvíburavélum sem smíðaðar voru af Peterson Caterpillar í Kaliforníu
árið 1949 og síðar.
Síamstvíbura-jarðýtur
Caterpillar Twin D8 að aftan.
Fyrsta Caterpillar Twin D8 fór til
að ryðja skóg við Hungry Horse
stí una í Montana í Bandaríkjunum.
Uppgerð Caterpillar Twin D8 í jarðvegsvinnu.
Póstkort af Caterpillar Twin D8 við Garrisson stí ugerðina, sennilega
sama vél og var notuð við að ryðja kolum fyrir kolaorkuver í Ohio.
Þriðja síamsvélin af Caterpillar D8 var smíðuð fyrir King Ranch í Texas.
Hún var útbúin Holt Funnel trjáruðningsplóg. Hér er hún og líklega er það
sonur ýtustjórans sem hér sést stoltur í forgrunni á sinni leikfangaýtu.
Holt Funnel trjáruðningsplógur var
hannaður til að rífa upp mesquite
tré og rótarhnyðjur á King Ranch
búgarðinum.
Hús máltíðarinnar lyftir
matvælum á hærra plan
Matvælastofnunin
Nofima i Noregi er ein
af stærstu stofnunum
í Evrópu innan rann-
sókna og þróunar
sem sérhæfir sig í
fiskeldi, sjávar útvegi
og matvælaiðnaði.
Stofnunin lætur frá
sér viðurkenndar
alþjóðlegar rann-
sóknar niður stöður og lausnir sem
gefur atvinnu lífinu samkeppnis-
forskot í allri virðis keðjunni.
Velta Nofima á ári er í kringum 7
milljarðar íslenskra króna og eru
starfsmennirnir hátt í 400 talsins
sem starfa í húsi máltíðarinnar
(Måltidets hus) á fimm ólíkum
stöðum í Noregi.
Höfuðstöðvar stofnunarinnar
eru í Tromsø í Norður-Noregi en
rannsóknarhlutinn fer fram á fimm
ólíkum stöðum, í Ási, Bergen,
Tromsø, Sunndalsøra og Stavanger.
Stofnunin skilar rannsóknum til
stórra aðila í matvælageiranum eins
og mjólkursamlagsins Tine og Orkla
en einnig verkefni fyrir iðnaðar- og
sjávarútvegsráðuneytið til að veita
ráðgjöf um vélar og umbúðir sem
dæmi.
„Hér í Stavanger, í Måltidets
Hus, er deild sem sérhæfir sig í
aðferðartækni. Deildin hér sérhæfði
sig áður fyrr í að þjónusta iðnað
sem framleiðir afurðir úr sjó og að
finna leiðir til að auka geymsluþol
fiskmatvæla. Hér er því unnið með
að viðhalda og lengja hráefnisgæðin
með notkun á aðferðartækni. Okkar
hlutverk er að bæði rannsóknartengd
kunnátta og reynslutengd kunnátta
matreiðslumeistara sé tengt saman
þegar nýjar vörur og ferlar eru
þróaðir. Rannsóknir hjá okkur ná yfir
allt frá klassískri hitameðhöndlun
og því að varðveita matvælin með
sótthreinsun og gerilsneyðingu yfir
í nýlegri ferla eins og sous-vide
tæknina, hraðri hitameðhöndlun,
pökkunartækni, örbylgjum og
vinnslu með miklum þrýstingi,“ segir
Morten Sivertsvik, rannsóknarstjóri
í Stavanger.
Rannsóknarferlið verður
að söluvöru
Tilraunaherbergi og rannsóknar-
stofur sem stofnunin hefur yfir að
ráða eru í kringum þúsund fermetrar
að stærð og gefur örlitla sýn á hversu
stór starfsemin er. Deildunum er
skipt í fiskihöll, rannsóknarhöll,
pökkunarhöll, hitameðhöndlun og
rannsóknarstofur.
„Samstarf okkar við
matvælafyrirtækið Fjordland er
skólabókardæmi í því hvernig
rannsóknarhlutinn hjá okkur gefur
raunhæfar niðurstöður á matvælum
sem fara beint á markað. Fyrirtækið
selur meðal annars tilbúna rétti sem
urðu til eftir rannsóknir á sous-vide
tækninni hérna hjá okkur þar sem
maður sýður matinn í þar til gerðum
vaccum-pokum,“ segir Morten og
bætir við:
„Við vildum iðnvæða sous-vide
ferlið og taka það frá pottinum
og yfir í stórframleiðslu. Eftir
tveggja ára rannsóknir var byrjað
að framleiða Fjordland-réttina og
nú í dag, 17 árum eftir að þessu var
komið á, eru nú 40 mismunandi
tilbúnir réttir til sölu í verslunum
frá fyrirtækinu og deild Nofima
innan aðferðartækni hefur tekið þátt
í þróun á mörgum þeirra. Það er
engin spurning að við það að safna
saman sterku faglegu fólki í eitt
hús, eins og hús máltíðarinnar er,
þá verður til sameiginlegt svæði þar
sem tengslanet skapast, hugmyndir
og vörur þróast og niðurstöðurnar
verða að söluvöru. Með því er
markmiði með starfseminni náð.“
/ehg
Við No ma-matvælastofnunina í Noregi starfa um 400 manns á 5 starfsstöðvum
víðs vegar um landið sem sérhæfa sig í rannsóknum á sviði matvæla.