Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 35
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | | 20 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 7 0
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
BÆNDUR ATHUGIÐ
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
kallar eftir umsóknum 2019
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300
Framleiðnisjóður landbúnaðarins er leiðandi stuðningsaðili
við þróunar- og nýsköpunarstarf landbúnaðarins og kallar nú
eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði nýsköpunar og
þróunar á bújörðum á vegum bænda (B flokkur).
Forgangs njóta þau verkefni sem fela í sér verulega nýbreytni,
sem líkleg eru til að leiða af sér umtalsverða atvinnusköpun og
þar sem stuðningur sjóðsins hefur verulega þýðingu.
Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem
er að finna á heimasíðu sjóðsins, www.fl.is.
Mikilvægt er að vanda til gerðar umsókna og gera grein fyrir
öllum efnisatriðum sem farið er fram á í umsóknareyðublöð-
unum. Sjóðurinn leggur ríka áherslu á að vanda skuli til gerðar
fylgigagna umsókna, s.s. stofnkostnaðar- og rekstraráætlana.
Umsóknafrestur er til 7. febrúar 2019 (póststimpill gildir).
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes. Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu sjóðsins. Sími 430-4300 / netfang fl@fl.is.
www.bbl.is
Erfðafræðingum hefur tekist
að klóna og rækta græðlinga
úr stubbum elstu og stærstu
rauðaviðartrjánum sem
er að finna Oregon-ríki í
Bandaríkjunum Norður-
Ameríku.
Samkvæmt frétt sem
fréttaritari Bændablaðsins
í San Francisco sendi
fyrir skömmu hefur hópi
p l ö n t u e r f ð a f r æ ð i n g a ,
garðyrkjumanna og
skógfræðinga tekist að
klóna og rækta græðlinga
af stubbum rauðaviðartrjáa,
Sequoia sempervirens,
sem voru felld á síðustu og
þarsíðustu öld.
Trén fimm sem verið er að klóna
og rækta voru sum hver um 3.000
ára gömul og rúmir 90 metrar að hæð
og tíu metrar að þvermáli þegar þau
voru felld.
Trén sem búið er að klóna voru
valin með tilliti til stærðar og aldurs
þeirra. Skógarhöggsmenn fyrr á
tímum völdu yfirleitt stærstu og
fallegustu trén til að fella þar sem
þeir fengu mest fyrir þau. Á sama
tíma var oft og tíðum verið að fella
trén með besta erfðaefnið og eftir
stóðu lakari einstaklingar.
Erfðaefnið sem notað var til
að klóna trén fannst í lifandi vef
í rótum trjánna og einstaka
sinnum í lifandi rótarskotum
eða greinum sem trén höfðu
sent frá sér eftir að þau voru
felld.
Auk þess sem erfðaefni
til klónunar var tekið úr
rauðaviðartré sem kallast
General Sherman og er eitt
af allra stærstu trjám í heimi
í dag.
Búið er að gróðursetja 75
slíka græðlinga í Presidio
þjóðgarðinum skammt frá
San Francisco-borg þar sem
þeir dafna vel. Eitt hundrað
græðlingum hefur líka
verið plantað í Cornwall á
Bretlandseyjum í samvinnu
við Eden-plöntugarðinn. Á næstu
misserum stendur til að gróðursetja
rauðaviðargræðlinga í að minnsta
kosti níu öðrum löndum.
Trén sem um ræðir geta vaxið
um allt að þrjá metra á ári og binda
gríðarlega mikinn koltvísýring úr
andrúmsloftinu á líftíma sínum. /VH
Undur erfðatækninnar:
Klóna forna rauðaviði
UTAN ÚR HEIMI
Sagan segir að tréð á myndinni ha verið fellt árið
1890 vegna veðmáls sem var gert á fylliríi og snerist
um það hvort hægt væri að koma 40 manns eða eiri
fyrir á stofni þess.