Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 41
Framtíðarhorfur í kúa-
búskap, kvóti eða frjáls
framleiðsla?
Nú líður að kosningum, vilja
kúabændur búa áfram við
framleiðslustýringu á mjólk eða
fella kvótann niður eins og gert
var í Evrópusambandinu?
Þessar kosningar eru fyrsta
skrefið í endurskoðun núgildandi
búvörusaminga, en líklegt má telja
að þeir hafi verið samþykktir vegna
loforðs um atkvæðagreiðslu um
framtíð kvótakerfisins.
Hver er framtíðarsýn
mjólkurframleiðenda?
Undanfarin ár hafa markast af
sveiflum í mjólkurframleiðslunni.
Íslenskir kúabændur og íslensku
mjólkurkýrnar hafa sýnt fram á
að hægt er að framleiða hér miklu
meiri mjólk en það sem íslenskir
neytendur og erlendir ferðamenn
geta torgað.
Afurðir úr
umframmjólk
hafa því verið
fluttar út en því
miður hefur
umframmjólkin
verið keypt of
háu verði af
bændum. Því
hriktir í afkomu
afurðastöðva,
verðlagið hefur
einnig vakið
upp of miklar
v æ n t i n g a r
hjá einstaka
bændum sem
hafa farið
út í dýrar
fjárfestingar.
Að okkar
m a t i e r
stjórnun framleiðslunnar með
kvótakerfi nauðsynleg svo ætíð
sé tryggð hæfileg framleiðsla fyrir
innanlandsmarkað. Umframleiðslu
á aðeins að kaupa á því verði sem
erlendir markaðir eru reiðubúnir
að greiða hverju sinni. Hvernig
stjórnunin á að vera og hvernig færa
má framleiðsluheimildir milli búa
er verkefni sem verður að útfæra í
takt við þarfir hvers tíma.
Framleiðsla án stýringar hefur
reynst íslenskum bændum illa.
Kartöflubændur hafa td. lengi
mátt þola miklar afkomusveiflur,
flestir sjá hvaða áhrif aftenging
framleiðslustýringarinnar hefur
haft á sauðfjárframleiðsluna.
Rétt er líka að líta til þróunarinnar
í Evrópu eftir að kvótinn var felldur
niður. Afkoma kúabænda versnaði
mjög og margir hafa lagt upp
laupana. „Við sterkustu og stærstu
lifum“ sagði danskur stórbóndi
vinur okkar, hann var sannspár þar
eins og oft áður.
Niðurfelling kvótans hefur
einnig haft mikil áhrif á
afurðastöðvar í Evrópu og þar
með afkomu bænda. Dæmi eru
um að afurðastöðvar hafi sagt upp
innleggjendum sínum, við höfum
séð svipað hér hjá sláturhúsum.
Svínabændur hafa iðulega liðið
fyrir þetta, kúabændur þekkja
mikla bið eftir slátrun og sl. haust
neituðu einstaka sláturhús að taka
við nýjum sauðfjárinnleggjendum.
A u k i n n
innflutningur á
mjólkurafurðum
eykur enn á
þrýstinginn um
samstöðu bænda
um nákvæma
s t j ó r n u n
framleiðslunnar.
Mikil hagræðing
hefur orðið
hjá afurða-
s t ö ð v u n u m ,
brýnt er að þar
verði haldið
áfram góðu
þróunars ta r f i
og framleiðslu
f j ö l b r e y t t r a
afurða sem
neytendur vilja
og velja.
O k k a r
framtíðarsýn er að hag okkar sé
best borgið með kvótastýringu
mjólkurframleiðslunnar. Við
hvetjum bændur til að hugsa til
framtíðar og samstöðu, þannig
getum við tekist á við komandi
áskoranir.
Sveinn Ingvarsson
bóndi og fv. varaformaður BÍ,
Katrín Andrésdóttir
fv. héraðsdýralæknir,
Ingvar Hersir Sveinsson og
Melissa Boehme
verðandi kúabændur í
Reykjahlíð á Skeiðum
Ö ll erum við sammála umað hlutverk kúabænda
sé að sjá neytendum fyrir
úrvals mjólkurafurðum sem
framleiddar eru í sátt við
umhverfið og velferðar dýranna
sé gætt í hvívetna.
Sömuleiðis verður afkoma
bænda að vera þannig tryggð
að hægt sé að skipuleggja
reksturinn til lengri tíma og
eðlileg endurnýjun geti orðið
í stéttinni.
Tímarit Bændablaðsins 2019
Tryggðu þér auglýsingapláss í tíma
Þann 8. mars 2019 kemur út Tímarit Bændablaðsins.
Tímaritið tekur á helstu málefnum landbúnaðarins og eru efnistökin fjölbreytt. Það
verður prentað í 8.000 eintökum og dreift til allra áskrifenda, á öll lögbýli landsins
og í fyrirtæki sem tengjast landbúnaðinum.
Lengd ritsins er yfir 100 síður og það er prentað á glanstímaritapappír í stærðinni A4.
Þetta er kjörinn vettvangur til að koma starfsemi
og nýjungum á framfæri. Tímaritið liggur á borðum
landsmanna svo mánuðum skiptir og því má segja
að auglýsingar í slíkum blöðum séu langlíf.
Við bjóðum upp á hefðbundnar auglýsingar í ritinu
en í seinni hluta þess er pláss fyrir kynningarefni frá
fyrirtækjum sem unnið er í samvinnu við blaðamenn.
Verðskrá auglýsinga :
Heilsíða: 160.000 kr. án vsk.
Hálfsíða: 95.000 kr. án vsk.
Opna: 230.000 kr. án vsk.
Baksíða: 250.000 kr. án vsk.
Lógó/styrktarlína: 25.000 kr. án vsk
Verðskrá kynninga:
- Vinsamlegast pantið fyrir 1. febrúar
Heilsíða: 130.000 kr. án vsk.
Hálfsíða: 85.000 kr. án vsk.
Opna: 210.000 kr. án vsk.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563-0303
og gegnum netfangið ghp@bondi.is
Hægt er að skoða fyrri Tímarit
Bændablaðsins á bbl.is
-
LESENDABÁS
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4980
www.yamaha.is
YAMAHA VENTURE
MULTI PURPOSE PZ50
Yamaha Venture Multi Purpose er einn
áreiðanlegasti og fjölhæfasti vélsleði
sem er í boði í dag, hvort heldur sem
vinnutæki eða til ferðalaga.
• Hagkvæmur í rekstri og viðhaldi
• 500cc fjórgengismótor
• Tveggja manna, rúmgott farþegasæti
með góðu baki
• Hiti í handföngum
• Bakkgír
• Rúmgóð farangursgrind
TILBOÐSVERÐ:
KR. 1.990.000,-
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Dreift í 32 þúsund eintökum á yfir 420 dreifingarstaði
og öll lögbýli á Íslandi
Þorraþræll Líflands 2019
Lífland hefur síðustu ár staðið
fyrir fræðslufundum fyrir
bændur. Hefur fyrirtækið fengið
til liðs við sig sérfræðinga frá
sínum helstu fóðurráðgjöfum hjá
Trouw Nutrition í Hollandi.
Hollensku sérfræðingarnir hafa
staðið að öflugu rannsóknar- og
þróunarstarfi í fóðurfræði nautgripa
um allan heim og hefur fyrirtækið
verið einn helsti ráðgjafi og bakhjarl
Líflands er varðar fóðrun á Íslandi í
meira en áratug.
Stein- og snefilefnaskortur er
algengt vandamál í íslenskum
landbúnaði. Því er mikilvægt fyrir
búfjáreigendur að hyggja vel að
bætiefnagjöf sem samræmist best
því gróf- og kjarnfóðri sem gefið
er hverju sinni. Lífland býður
upp á fjölbreytt úrval bætiefna
og fóðurtengdra hjálparefna fyrir
búfénað, meðal annars við kálfaskitu,
selenskorti, doða, súrdoða og öðrum
þekktum kvillum.
Að þessu sinni munu
fræðslufundirnir vera með áherslu á
mikilvægi stein-, snefil- og bætiefna
fyrir mjólkurkýr, kálfa og naut. Þá
verður einnig, í stuttu máli, farið
yfir það vöruúrval sem er í boði
í dag, notkun og sérstöðu þeirra.
Gestir Þorraþræls verða leystir
út með veglegum bætiefnapakka
að lokinni fræðslu auk þess sem
boðið verður upp á léttar veitingar
á fræðslufundinum.
Fundirnir verða haldnir á
eftirfarandi stöðum 28.–31. janúar
2019:
Mánudagur 28. janúar
• 20.30 Verslun Líflands á
Hvolsvelli
Þriðjudagur 29. janúar
• 11.30 Hótel Flúðum
• 20.30 Verslun Líflands í
Borgarnesi
Miðvikudagur 30. janúar
• 20.30 Verslun Líflands á
Blönduósi
Fimmtudagur 31. janúar
• 11.30 Hótel Varmahlíð
• 20.30 Verslun Líflands á
Akureyri
LÍF & STARF