Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 16

Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201916 Túlípanar eru til í mörgum stærðum, gerðum og litum og þeir eru margbreytilegir hvað varðar blómlögun og blómgunartíma. Árið 1996 var þeim skipt í 15 deildir eða flokka í samræmi við þennan breytileika. Deildir 12 til 15 eru það sem kallast bótanískir túlípanar en það eru túlípanar sem hafa verið lítið framræktaðir og líkjast því villtum túlípönum eins og þeir finnast í náttúrunni. 1. Ártúlípanar sem eru einfaldir og snemmblómstrandi, í byrjun maí. Blómin klukku- eða skálalaga. Stöngullinn milli 20 og 30 sentímetra hár. Harðgerðir og standa lengi. 2. Ártúlípanar sem eru ofkrýndir og snemmblómstrandi, um miðjan maí. Stöngullinn 30 til 40 sentímetra hár. Fremur viðkvæmir. 3. Tromptúlípanar. Snemm- blómstrandi, í lok maí, stöngullinn 45 sentímetra háir. 4. Kjörtúlípanar eða Darwins- túlípanar eru mjög harðgerðir, stöngullinn 60 sentímetra háir. Blómgast í byrjun júní. Líklega algengust túlípanarnir hér á landi. 5. Síðtúlípanar eru einfaldir og síðblómstrandi. Stundum kallaðir kotatúlípanar. Allt að 60 sentímetra háir. Blómgast í lok júní og byrjun júlí. 6. Liljutúlípanar. Upphaflega flokkaðir sem kotatúlípanar en settir sem sérdeild 1958. Stöngullinn 30 til 60 sentímetra hár. Blómblöðin hvöss og blómlögunin svipuð og hjá gömlum tyrkneskum túlípönum. Blómgast í lok júní og byrjun júlí. 7. Kögurtúlípanar. Stöngullinn 30 til 45 sentímetra hár. Krónublöðin kögruð á jöðrunum. Eru komnir af kotatúlípönum og blómgast um sama leyti. 8. Grænblóma. Stöngullinn stinnur, 30 til 60 sentímetra hár. Blómblöðin með grænni slikju. Blómgast fremur seint í júlílok en standa mjög lengi. 9. Rembrandt-túlípanar voru vinsælir í eina tíð en fremur sjaldséðir nú til dags. Blómin oft marglit vegna vírussýkingar sem herjaði á laukinn. Mest ræktaðir af söfnurum og yfirleitt ekki í almennri sölu. 10. Páfagaukstúlípanar. Blómhnappurinn l íkis t páfagauksnefi og krónublöðin kurlast í allar áttir eins og fjaðraskraut. Stöngullinn 40 til 60 sentímetra hár. Stökkbreytingar frá ýmsum síð- eða kotatúlípönum, en blómgast ögn síðar. 11. Bóndarósatúlípanar eða fylltir síðtúlípanar, ofkrýndir og síðblómstrandi. Viðkvæmir og með blómum sem minna á blóm bóndarósarinnar. 30 til 60 sentímetra háir. Blómgast í júlí. Þurfa gott skjól eða stuðning, blómin vilja slitna af í vindi. 12. Kaupmannatúlípanar eru bótanískir túlípanar. Blómið einfalt og opnar sig vel. Stöngullinn 15 til 30 sentímetra hár. Blómgast í apríl og maí. 13. Eldtúlípanar eru bótanískir túlípanar. Upphaflega víxlfrjóvgun milli kaupmanna- og dílatúlípana. Lágvaxinn, 20 til 45 sentímetrar. Blöðin grá- og gljágræn að lit. Blómgast í maí og júní. 14. Dílatúlípanar eru bótanískir túlípanar. Snemmblómstrandi. Stöngullinn 20 til 30 sentímetra hár. Blómgast í maí. 15. Villitúlípanar eru ýmsar bótanískar smávaxnar tegundir. Harðgerðir en lágvaxnir, stöngullinn 10 til 30 sentímetrar á hæð. Fljótir að aðlaga sig og henta í sumarbústaðalönd. /VH STEKKUR Nú í september fer markviss undirbúningur í gang hjá Sigurði Kristni Laufdal Haraldssyni, yfirmatreiðslumanns á Grillinu á Hótel Sögu, vegna Evrópukeppni Bocuse d‘Or sem haldin verður í Eistlandi í júní á næsta ári. Hann telur að langt undirbúningstímabil, sem hann nýtur þess að hafa, geti gert gæfumuninn í keppninni. Evrópukeppni Bocuse d‘Or er einnig undankeppni fyrir stóru keppnina, sjálfa Bocuse d‘Or, sem hefur verið kölluð óopinber heimsmeistarakeppni matreiðslumeistara og haldin er í Lyon í Frakklandi annað hvert ár. Til að komast í gegnum Evrópukeppnina – og inn í stóru keppnina – telur Sigurður að hann þurfi að vera meðal þeirra tíu bestu í Evrópu. Hann setur hins vegar markið hátt og stefnir á verðlaunapallinn í Evrópukeppninni. Keppir í annað sinn Þetta verður í annað skipti sem Sigurður tekur þátt í keppninni, en áður hefur Ragnar Ómarsson tekið tvisvar þátt fyrir Íslands hönd (2005 og 2009). Sigurður náði besta árangri Íslands í forkeppi Bocuse d´Or árið 2012 þegar hann náði 4. sæti og fékk verðlaun fyrir besta fiskréttinn. Íslendingarnir hafa jafnan náð góðum árangri í keppnunum, oftast verið í efri hlutanum frá árinu 1999, þegar Sturla Birgisson keppti í fyrsta sinn í Bocuse d‘Or fyrir Íslands hönd og náði fimmta sæti í aðalkeppninni. Bestum árangri Íslendinga hafa náð þeir Hákon Már Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017, en báðir náðu þeir í bronsverðlaun. Yngstur keppenda Sigurður tryggði sér þátttöku að þessu sinni með sigri í einvígi við Sindra Guðbrand Sigurðsson, sem starfar á veitingastaðnum Silfru á Nesjavöllum. „Já, ég var alltaf með það bak við eyrað að mig langaði til að fara aftur eftir fyrra skiptið,“ segir Sigurður. „Ég var það ungur þegar ég fór í fyrra skiptið árin 2012 og 2013, var 23 ára og líklega yngstur þeirra Íslendinga sem hafa farið í keppnina. Reyndar var ég yngstur allra keppenda í þessum tveimur keppnum; Evrópukeppninni og svo stóru aðalkeppninni. Ég rétt slapp inn fyrir aldurstakmarkið þegar ég tók þátt í fyrri keppninni, sem er einmitt 23 ára aldurinn. Ákvörðunin þá var tekin með mjög stuttum fyrirvara. Ég hafði auðvitað hugsað um það að það væri gaman að fá að taka þátt einhvern tíma, en þegar þetta stóð til boða þótt fyrirvarinn væri stuttur ákvað ég bara að kýla á þetta og fara þetta á áhuganum og drifkraftinum. Núna er ég miklu betur undirbúinn fyrir þetta; bæði andlega og svo er svigrúmið mun meira og betra. Það er auðvitað mikils virði að hafa farið í gegnum allt ferlið einu sinni áður, það tekur hluta af óvissunni í burtu sem getur verið óþægileg. Svo er ég búinn að afla mér dýrmætrar reynslu líka í störfum á veitingastöðum í Helsinki og Kaupmannahöfn, þar sem ég starfaði áður en ég kom á Grillið með mönnum sem hafa starfað í kringum þessa keppni og náð mjög langt í henni,“ segir Sigurður. Staðurinn í Helsinki heitir OLO og er með eina Michelin-stjörnu og í Kaupmannahöfn starfaði hann á þriggja stjörnu Michelin-staðnum Geranium. „Eigandi finnska staðarins var dómari í Bocuse fyrir Finnland og í Kaupmannahöfn var yfirkokkurinn Rasmus Kofoed með talsverða keppnisreynslu úr Bocuse; hafði keppt þrisvar og náð í brons fyrst, síðan silfur og loks gull. Þjálfarinn bronsverðlaunahafi „Í æfingaferlinu sem núna er fram undan nýt ég þess að þjálfarinn minn er Viktor Örn Andrésson, sem náði einmitt þriðja sæti árið 2017, auk þess sem allt stuðningsnet er eins og best verður á kosið. Þess vegna er ekkert annað í stöðunni en að stefna hátt og mér finnst ég eiga alveg möguleika í toppsætin. Þetta hefur verið hálfgerð þráhyggja hjá mér núna frá því að ég tók þátt síðast,“ segir Sigurður. Í teymi hans, ásamt Viktori Erni, verða meðal annarra aðstoðarmennirnir Gabríel Bjarnason og Sigþór Kristinsson. „Svo er mikill stuðningur hér frá hótelinu – allir einhvern veginn mjög vel stemmdir fyrir þessu. Siggi Helga er til dæmis hérna í húsinu – sem var yfirkokkur á Grillinu á undan mér – og hann hefur líka farið í þessa keppni,“ segir Sigurður. Hann játar því að lokum að hann láti sig dreyma um að einn daginn kræki Grillið sér í Michelin-stjörnu. /smh Túlípanar Sigurður Laufdal, yfirmatreiðslumaður á Grillinu, fer í annað sinn í Bocuse d‘Or: Stefnir hátt með reynslubankann og gott bakland í farteskinu – Býr að reynslu af samstarfi við sigurvegara keppninnar á þriggja stjörnu Michelin-stað í Kaupmannahöfn LÍF&STARF Sigurður Laufdal stendur yfir pottunum á Grillinu, með fallega rabarbarastilka í lúkunni. Mynd / smh Mikilvægt að geta greint æta sveppi frá óætum – Skýrslu ætlað að stuðla að því að neytendum bjóðist öryggir sveppir Það má enn tína góða matsveppi í náttúru Íslands – og í raun er hægt að tína þá marga þangað til fyrst frystir. Matvælastofnun beinir þeim tilmælum til sveppaáhugafólks að tileinka sér næga þekkingu til að geta greint ætisveppi frá þeim óætu. Matvælastofnun bendir á nýútkomna skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um ætisveppi sem ætluð er matvælafyrirtækjum, verslunum og opinberu matvælaeftirliti. Markmiðið að tryggja neytendum örugga sveppi til neyslu Markmið skýrslunnar er meðal annars að tryggja að neytendum bjóðist sveppir sem eru rétt tegundagreindir og öryggir til neyslu. Skýrslan er í tveimur hlutum og er fyrri hlutinn aðgengilegur á íslensku en seinni á ensku í gegnum vef Matvælastofnunar. Fyrri hlutinn inniheldur norrænan spurningalista, ásamt leiðbeiningarlistum yfir ætisveppi sem selja má á markaði. Í seinni hlutanum er að finna almennar bakgrunnsupplýsingar um sveppina, ásamt áhættumati fyrir yfir 100 tegundir af sveppum með tilliti til eiturefnainnihalds og hvort öruggt sé að neyta þeirra. Einnig er vísað til fræðslubæklings Náttúrufræðistofnunar um sveppi, sem nálgast má í gegnum vef stofnunarinnar á slóðinni https://ni.is/ midlun/utgafa/baeklingar. /smh Ungur kóngsveppur í greniskógi. Mynd / smh Gagnlegar upplýsingar úr skýrslunni, þar sem varað er við því að hið hættulega kadmíum geti safanast upp í mókempu.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.