Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201922
Verkefnið SeaCH4NGE sem unnið
er að á vegum Matís miðar að því
að draga úr losun metans (CH4)
frá nautgripum og auka gæði
afurða. Verkefninu á að ljúka 31.
desember 2019, en unnið er að
framlengingu.
Hjá Matís er verið að kanna
möguleika mismunandi tegunda
þangs sem fóðurbætiefnis til að
draga úr metangasframleiðslu hjá
nautgripum. Einnig er verið að
kanna hvaða áhrif þangát hefur á
velferð dýra og gæði afurða. Er
verkefnið styrkt af EIT Food sem
er stórt evrópskt þekkingar- og
nýsköpunarsamfélag um matvæli og
nýsköpun í matvælaiðnaðinum. EIT
Food er leiðandi nýsköpunarframtak
í Evrópu sem vinnur að því að
gera matvælakerfið sjálfbærara,
heilnæmara og auka traust neytenda.
Rannsóknir af þessum toga
víða um heim hafa verið tengdar
áhyggjum manna af losun gróður-
húsa lofttegunda. Jórtur dýr eins og
kýr sem alin eru til mann eldis eru
sögð valda 37% þeirrar losunar
gróðurhúsalofttegunda sem raktar
eru til umsvifa mannsins. Talið er
að ein kýr losi um 70 til 120 kg af
metangasi á ári sem hún ropar að
mestu upp um leið og hún meltir
fæðuna. Á jörðinni eru um 1,5
milljarðar nautgripa svo umfang
losunarinnar er þá áætlað að nemi
frá 105 til 180 milljónum tonna á ári.
Grasfóðruð jórturdýr bæta engu
kolefni við í lofthjúpnum
Í þessu gleymist þó gjarnan að
geta þess að gróður nýtir metan
og koltvísýring í sínu vaxtarferli og
bindur koltvísýring líka í verulegu
magni í jarðvegi. Þannig hefur í
bandarískri úttekt verið sýnt fram
á að grasfóðruð jórturdýr sem
beitt er eingöngu á graslendi bæti
nákvæmlega engu nýju kolefni
við magn gróðurhúsalofttegunda
í andrúmsloftinu. Kolefnið sem
frá þeim kemur í formi metans
kemur úr plöntum og hverfur
til baka í hringrás vaxtarferils
gróðurs á jörðinni. Doktor Frank
Mitloeher, loftgæðasérfræðingur
við Kaliforníuháskóla, hefur m.a.
útskýrt þetta ferli með einföldum
hætti í myndbandi sem mikið hefur
verið deilt á YouTube.
Í forsíðufrétt í jólablaði Bænda -
blaðsins 2018 kom einnig fram
að losun á metangasi frá búfé er
ekki eins mikill áhrifavaldur á
hlýnun loftslags eins og haldið
hefur verið fram. Vissulega
veldur fóðursöfnun með vélum
þar ákveðinni mengun, en
auðvelt ætti að vera að jafna
það t.d. með skógrækt. Endur-
skoðun vísindamanna í Oxford
á aðferðarfræði við útreikninga
á áhrifum metangass sem
gróðurhúsa lofttegundar benda til
að útreikningar til þessa kunni að
hafa afvegaleitt umræðuna. Var
þessi úttekt kynnt í júlí 2018.
Mikil áhugi fyrir
að draga úr losun
Þrátt fyrir þetta er umræðan enn
hávær um hættuna sem lofthjúp
jarðar stafi af jórturdýrum. Vegna
þess er mikill áhugi á að skoða hvort
hægt sé að draga úr losun jórturdýra
á metangasi. Ef það reynist
hagkvæmt, gæti það t.d. mögulega
nýst ágætlega við að draga úr losun
frá nautgripum í fóðrunarstöðvum
sem ekki er beitt á graslendi og eru
að mestu aldir á korni.
Talið er að pláss sé á markaði fyrir
vörur sem valda minni umhverfis-
áhrifum en hingað til hefur þekkst
og er vakning meðal neytenda um
slíkt sem eykst hröðum skrefum.
Verkefnið gengur vel
Ásta Heiðrún Pétursdóttir, sérfræð-
ingur hjá Matís, segir að verkefnið
gangi vel.
„Við erum að skoða úrval af alls
konar stórþörungum, sem flestir eru
frá Íslandi. Þeir þörungar sem við
höfum valið til fóðurtilrauna eru
íslenskir.
Við höfum skoðað þó nokkuð
margar tegundir stórþörunga á
tilrauna stofu og höfum séð að þeir
geta dregið úr losun á metani.“
Fyrsti áfangi SeaCH4NGE
verkefnisins er að kanna og
vinna úrval af þangafurðum hjá
Matís. Í öðrum áfanga verða
afurðirnar skimaðar í „in-vitro“
kerfi á rannsóknastofu háskólans
í Hohenheim. Þetta eru, með
öðrum orðum, örtæknirannsóknir í
tilrauna glösum og á „Petridiskum“
sem stundum eru líka kallaðar
„test-tube experiments“.
Í þriðja áfanga munu vænlegustu
afurðirnar verða prófaðar á naut-
gripum hjá Reading háskóla í
samvinnu við ABP Food. Þar verða
rannsökuð áhrif þangblöndunar í
fóður á framleiðslu metans (CH4)
hjá nautgripum.
Í framhaldsáfanga verður lögð
áherslu á að meta framleiðni, gæði
vöru og samsetningu með ítarlegri
greiningu. Ásta segir að sótt hafi
verið um áframhaldandi styrk til
að skoða áhrif þörunga á dýrin og
afurðir þeirra.
Vonast er til að niðurstöður þessara
rannsókna leiði til þróunar söluhæfra
afurða fyrir þang framleiðendur og
bændur.
Áströlsk rannsókn
þótti gefa góðar vonir um
áhrif þangs í fóður
Bændablaðið greindi í mars 2016 frá
því að rannsóknir sem framkvæmdar
voru í Norður- Queensland í Ástralíu
sýna að hægt er að draga verulega úr
loftmengun í landbúnaði, ekki síst á
metangasi frá nautgripum og öðrum
jórturdýrum, með því einu að gefa
þeim þang.
Rocky De Nys, prófessor í
sjávarlíffræði við James Cook-
háskólann í Townsville, hafði
þá verið að rannsaka hvaða áhrif
blöndun þara í fóður nautgripa
getur haft á metangasmyndun
í meltingarfærum þeirra. Vann
hann að þessum rannsóknum með
ríkisrannsóknastofnuninni CSIRO
(Commonwealth Scientific and
Industrial Research).
Sagt var að þessar rannsóknir
hafi leitt í ljós að með því að blanda
tiltölulega litlu magni af þurrkuðu
þangi í nautgripafóður, væri hægt að
draga úr metanframleiðslu gripanna
um allt að 99%. Samkvæmt frásögn
Rocky De Nys prófessors var
byrjað á að gera tilraunir með 20
tegundir af þangi. Flestar voru
þær að minnka metangasmyndun
um 5,10 eða 15%, en svo hafi þau
dottið niður á eina tegund sem olli
straumhvörfum í tilraununum. Það
er rautt þang af tegund sem nefnd er
„Asparagopsis taxiformis“ og skilaði
í tilraunum allt að 99% minnkun
á metangasmyndun. Var þanginu
safnað við strönd Queensland.
Sambærilegar rannsóknir hafa síðan
verið endurteknar víða um heim,
m.a. í Bandaríkjunum.
„Asparagopsis taxiformis“
finnst ekki við Ísland
Í umfjölluninni í Bændablaðinu kom
fram að áhrifamesta þangtegundin
í rannsókninni, „Asparagopsis
taxiformis“, finnist að öllum
líkindum ekki við Ísland. Hins
vegar lágu þá ekki fyrir neinar
rannsóknir á þangi hér við land sem
miðuðu að því að draga úr losun
metans í meltingarvegi jórturdýra.
Ásta Heiðrún Pétursdóttir staðfesti
í samtali við blaðið að þessi
þörungategund finnst ekki hér við
land.
TÆKNI&VÍSINDI
DSD fjósainnréttingar sem
framleiddar eru í Hollandi eru
sérsmíðaðar fyrir íslenskar
kýr og hafa þegar sannað gildi
sitt í íslenskum fjósum.
Innréttingarnar eru hannaðar
og prófaðar eftir ströngustu
gæðakröfum og miða að velferð
bæði dýra og manna. Áralöng
reynsla hefur leitt af sér
innréttingakerfi sem auðvelt er
að aðlaga nánast öllum þörfum
nútímafjósa.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
byko.is
FJÓSAINNRÉTTINGAR
Matís rannsakar virkni íslenskra þörunga við að draga úr losun á metangasi í meltingarvegi nautgripa:
Íslenskir þörungar gætu mögulega dregið
úr gróðurhúsaáhrifum frá jórturdýrum
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Ásta Heiðrún Pétursdóttir, sérfræðingur hjá Matís, með hráefni til rannsóknar í kassavís í SeaCH4NGE verkefninu.
Þar er m.a. reynt að finna út hvaða tegundir þörunga sem finnast við strendur Íslands virki best til að draga úr
losun á metangasi sem myndast í meltingarvegi nautgripa. Myndir / Matís-ÁHP
Ásta Heiðrún segir að ekki hafi tekist
að einangra þau efni úr þanginu
sem valdi minnkun á losun metans
í meltingarvegi dýra. Leitt hefur verið
líkum að því að bromoform hefði
þar áhrif, en ekki liggi þó fyrir nein
vissa um hvort virknin sé af völdum
bromoforms eða í samspili þess og
annarra efna.