Bændablaðið - 12.09.2019, Síða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201926
LÍF&STARF
Morgunfrú ræktuð á tveimur stöðum úti með Eyjafirði:
Íslensk morgunfrúarolía í snyrtivörugerð
– Góð uppskera í sumar og ekki þarf lengur að flytja morgunfrúarolíu inn frá útlöndum
Morgunfrú er ræktuð á tveimur
skikum í Hörgársveit, á Búlandi
og við Hjalteyri. Blómin eru
þurrkuð og unnin úr þeim
morgunfrúarolía sem síðan er
nýtt í framleiðsluvörur Purity
Herbs á Akureyri.
Fyrirtækið framleiðir yfir 50
mismunandi húð- og snyrtivörur.
Félagið hefur starfað á Akureyri
í um aldarfjórðung og notar
eingöngu náttúruleg efni í sínar
vörur, íslenskar jurtir og vatn, allar
jurtir eru handtíndar og umgengni
við þær þannig háttað að gæðin
skili sér út í framleiðslu ferli
vörunnar.
„Uppskeran var það góð í
sumar að hún dugar okkur í fram-
leiðsluna allt árið og ríflega það,“
segir Ásta Sýrusdóttir hjá Purity
Herbs á Akureyri, en hún býr ásamt
eiginmanni, Jóni Þorsteinssyni, á
Búlandi þar sem þau hafa komið
sér upp reit til að rækta morgunfrú.
Annar reitur álíka stór er hjá góðum
vini þeirri og reynslubolta í ræktun,
en sá er staðsettur á Hjalteyri.
Morgunfrúarolía er notuð
sem grunnur í svo gott sem allar
framleiðsluvörur fyrirtækisins. Hún
hefur fram til þessa verið flutt inn
frá útlöndum.
„Það er ánægjulegur áfangi sem
við höfum náð með því að rækta og
búa til okkar eigin morgunfrúarolíu
og við erum himinlifandi með þann
árangur,“ segir hún.
Nær allar jurtir tíndar
á Norðurlandi
Þegar Ásta og Jón keyptu jörðina
Búland á sínum tíma sáu þau strax
fyrir sér að hægt yrði að nýta hana
að hluta til ræktunar fyrir fyrirtæki
sitt, Purity Herbs. Jörðin er um
100 hektarar að stærð. Stór hluti
þeirra jurta sem fyrirtækið þarfnast
í framleiðsluvörur sínar koma af
Búlandsjörðinni, m.a. vallhumall,
hlaðkolla, blóðarfi og blóðberg,
maríustakkur og víðibörkur svo
eitthvað sér nefnt. „Þetta hefur
reynst okkur gjöfult land þegar að
jurtatínslu kemur,“ segir Ásta, en
hún ásamt starfsfólki fyrirtækisins
taka nokkra daga yfir sumarið í
jurtatínslu.
Nær allar jurtir sem notaðar eru í
framleiðslu Purity Herbs eru tíndar
á Norðurlandi, eða um 98%, en það
sem upp á vantar fá þau hjá fólki
sem tínt hefur jurtir fyrir félagið
árum saman.
Uppskera eykst ár frá ári
Nýliðið sumar var hið þriðja í
röðinni þar sem Ásta spreytir sig
á að rækta morgunfrú og segir
að hin fyrri tvö hafi ekki gengið
áfallalaust fyrir sig.
„Það voru ýmsir byrjunar örðug-
leikar í þessu hjá okkur, en miðað
við hve uppskeran var góð í sumar
sem leið tel ég að við höfum slitið
barnsskónum og verðum hér eftir á
góðu róli,“ segir hún. Fyrsta sumarið
var uppskeran afar léleg, örlítið
meiri í fyrrasumar og ljómandi góð,
sem fyrr segir, núna. „Við kunnum á
þessu tökin núna og vitum hvernig
á að bera sig að.“
Fluttu olíuna áður inn
Morgunfrúarolía hefur fram til
þessa verið keypt frá útlöndum,
en nú hefur þeim áfanga verið
náð að fyrirtækið ræktar sjálft
sína eigin olíu og er það að sögn
Ástu umtalsverður ávinningur.
„Við getum verið alveg viss um
að gæðin eru fyrsta flokks,“ segir
hún en að auki sparist við þetta
fyrirkomulag gjaldeyrir þegar ekki
þarf lengur að flytja vöruna inn.
Ásta segir að klippa þurfi blómin
af á hárréttum tíma til að ná sem
allra bestu gæðum. Eftir að blómin
hafa verið klippt af vaxa þau aftur
og hægt að nýta blóm af hverri jurt
nokkrum sinnum yfir sumarið.
Blómið er því næst forþurrkað
heima á Búlandi í skemmu sem til
stendur að betrumbæta, en þurrkun
lýkur í höfuðstöðvum Puriy Herbs
á Akureyri.
Vörur Purity Herbs eru seldar
víða um heim og nú virðist nýr
og spennandi markaður vera
að opnast að sögn Ástu en tvær
sendingar hafa þegar farið utan.
„Við vonum að það geti orðið
byrjun á mikilvægu samstarfi og
auknum útflutningi,“ segir Ásta.
/MÞÞ
Morgunfrúarolía er notuð sem grunnur í svo gott sem allar framleiðsluvörur fyrirtækisins. Hún hefur fram til þessa
verið flutt inn frá útlöndum.
Uppskeran var góð í sumar. Ásta segir að klippa þurfi blómin af á hárréttum tíma til að ná sem allra bestu gæðum. Eftir að blómin hafa verið
klippt af vaxa þau aftur og hægt að nýta blóm af hverri jurt nokkrum sinnum yfir sumarið.