Bændablaðið - 12.09.2019, Page 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201938
Talsverð reynsla komin á gasknúna mótora í sendi- og vörubílum frá IVECO:
Enn er beðið eftir að gasknúnar
dráttarvélar komi á markað
– Nú talar CNH, móðurfélag New Holland, um markaðssetningu slíkra véla árið 2022
Stöðugt er verið að endurbæta
vélbúnað fyrir landbúnað og
dráttarvélar eru þar engin
undantekning. Orkuskipti er
eitt vinsælasta orðið í munni
stjórnmálamanna um þessar
mundir án þess þó að skilgreint
sé nákvæmlega hvað það þýðir í
raun nema að hætt verði notkun
jarðefnaneldsneytis og skipt yfir
í eitthvað annað.
Á Íslandi og víða í öðrum löndum
er orðið orkuskipti helst tengt við
rafbílavæðingu, en minna fer oft
fyrir umræðunni um aðra kosti
sem eru oft mun raunhæfari fyrir
margar greinar eins og landbúnað
og jarðvinnslu.
Þar er m.a. um að ræða dráttarvélar
sem knúnar eru metangasi sem auk
þess er mögulegt að framleiða á
búunum sjálfum. Slík umskipti
hefðu marga kosti. Í fyrsta lagi gæti
notkun á metangasi dregið mjög úr
losun gróðurhúsalofttegunda, bæði í
vélunum sjálfum og vegna flutninga
á eldsneyti um þúsundir kílómetra
með skipum og bílum.
80% minni mengun
Heildarmengun frá gasknúnum
dráttarvélum er sögð um 80%
minni en af dísilknúnum vélum.
Losun sótagna er nánast engin, eða
um 1%, og koltvísýringslosun er
um 10% minni en í sambærilegum
dísilvélum. Þá eru metanknúnar
vélar um 50% hljóðlátari en
sambærilegar dísilvélar, þrátt
fyrir að í grunninn séu vélarnar
mjög svipaðar. Ekki sakar að
rekstrarkostnaður gasknúinna
véla er talinn vera um 30% minni
en hefðbundinna dísilknúinna
dráttarvéla.
Miðar hægt en tæknin er til
Um allan heim hefur landbúnaðurinn
beðið með óþreyju eftir að
eitthvað raunhæft gerðist í þessum
málum. Þar hefur FPT Industrial,
sem er hluti af CNH Industrial
samsteypunni sem framleiðir m.a.
New Holland dráttarvélarnar, verið
í fararbroddi í þróun gasknúinna
dráttarvéla um 20 ára skeið.
Keppinautarnir hafa verið ósparir
á að kalla þetta sýndarmennsku
sem ætlað sé að ganga í augun
á umhverfisverndarsinnum og
stjórnmálamönnum. Vélar sem
kynntar hafi verið séu ekki
ætlaðar til brúks við raunverulegar
aðstæður heldur séu þær einungis
sýningargripir. Eigi að síður
hefur New Holland haldið áfram
þessari vinnu og í janúar fékk New
Holland hönnunarverðlaun (Good
Design award) fyrir gasknúinn 180
hestafla traktor. Voru verðlaunin
frá Museum of Architecture and
Design í Chicago og European
Centre for Architecture Art
Design and Urban Studies. Var það
niðurstaða dómnefndarmanna frá
47 löndum.
Markaðssetningu seinkar frá
fyrri áformum
Fulltrúar New Holland höfðu
áður gefið það út árið 2018 að
gasknúin New Holland yrði komin
á almennan markað innan þriggja
ára. Það þýðir væntanlega að vænta
megi kynningar á slíkri vél á næsta
ári. Í apríl var svo greinilega búið
að seinka þessu og er nú talað
um árið 2022 og þá miðað við
vélar sem bæði ganga á metan- og
propangasi. Gasknúnar stórar New
Holland hjólaskóflur eiga svo að
koma á markað 2024. Þangað til
einbeita sérfræðingar New Holland
sér að því að bæta bruna enn frekar
í hefðbundnum dísilvélum til að
draga úr mengun. Einnig að draga
úr CO2 losun um allt að 60% við
framleiðslu slíkra véla.
Tæknin vel þekkt, líka á Íslandi
New Holland, eða móðurfélag þess,
CNH, er ekki að finna upp hjólið í
þessum efnum. Notaður gasknúinn
mótor sem þegar er komin mikil
reynsla af en hann er smíðaður
af Fiat Powertrain Technologies
(FPT). Slíkir mótorar eru þegar í
yfir 22 þúsund IVECO trukkum sem
eru í notkun víða um heim. Hefur
fyrirtækið markaðssett breiða línu
gasknúinna atvinnubíla, allt frá
3,5 tonnum upp í 40 tonna trukka.
Gasknúnir IVECO sendibílar eru
m.a. komnir á göturnar á Íslandi og
þykja undratæki.
Búist er við að gasknúnu New
Holland dráttarvélarnar verði heldur
dýrari í innkaupum til að byrja með,
eða á meðan framleiðslan er ekki
komin á fullt skrið. Frumgerðin
af þessari vél er með gastank sem
er sagður duga til stanslausrar
notkunar í 5–6 klukkustundir. Gert
er ráð fyrir að hægt verði að bæta
við gastönkum.
Lítið mál er að dæla eldsneytinu
á en innviðir vegna dreifingar á gasi
eru þó ekki til staðar í sveitum á
Íslandi enn sem komið er. Þar þyrfti
að fara í verulegt átak ef einhver vilji
er til að nýta þessa tækni. Enn sem
komið er telja framleiðendur mjög
óraunhæft að vera með rafknúnar
stærri dráttarvélar til brúks úti á
ökrum sökum lélegs úthalds og langs
tíma sem fer í hleðslu rafgeyma.
Ekki er þó útilokað að slíkt væri
gerleg á heimatúnum í íslenskum
sveitum þar sem notkunartími er
mjög takmarkaður. Ólíklegt er þó
að framleiðendur horfi sérstaklega
á þarfir slíks örmarkaðar. /HKr.
New Holland 180 hestafla gasknúin dráttarvél hefur hlotið hönnunarverðlaun
Architecture and Design í Chicago og European Centre for Architecture Art
Design and Urban Studies. Ekki er þó búist við markaðssetningu slíkra véla
fyrr en árið 2022.
TÆKNI&VÍSINDI
Flutningafyrirtækið Datrans Holland:
Draga úr losun CO2 með kaupum á Volvo LNG trukkum
Flutningafyrirtækið Datrans
Holland í þorpinu Wanssum,
í hollenska héraðinu
Limburg, hefur bætt við
tveimur Volvo FH 420 LNG 4
× 2 dráttarbílum í flota sinn.
Fyrirtækið vill leggja sitt af
mörkum til hreinni flutninga.
Afgerandi þáttur í því að
fjárfesta núna í Volvo LNG
vörubílum er sú staðreynd
að ekki þarf að greiða
vörubifreiðartoll af þeim
(Maut) í Þýskalandi. Þarna
stendur LNG sem skammstöfun
fyrir fljótandi náttúrugas sem er að
uppistöðu til metangas sem sett er
í fljótandi form með kælingu niður
í 162° frost.
Datrans Holland sérhæfir sig í
flutningum frá og til Sviss.
„Í Þýskalandi þarf ekki að
greiða Maut fyrir LNG vörubíla
fram til 2020, sem gerir okkur
áhugavert að kaupa þessa
vörubíla núna,“ segir Laura
Hagens frá Datrans í Hollandi.
Hún segir að þeir noti
bílana mest í akstri í
Þýskalandi.
Datrans lítur einnig
á flutninginn á LNG
flutningabílum sem tækifæri
til að draga úr CO2 fótsporinu.
„Við erum ánægð með að
stuðla að hreinna umhverfi
og þessir flutningabílar gefa
frá sér 20% minni CO2 en
dísilbílar. Þegar það kom að
stefnumörkun, þá kom Volvo
best út. Þar fengum við mest fyrir
peningana og þess vegna völdum
við Volvo vörubíla.“ /HKr.
IVECO S-WAY nýr metanknúinn flutningabíll frá CNH Industrial
IVECO S-WAY er fyrsta
ökutækið í nýja IVECO WAY
þungaflutningasviðinu. Bíllinn
er þróaður með áherslu á
ökumanninn sjálfan, þjónustu,
sjálfbærni og háþróaða tækni
sem gerir mönnum kleift að
sérsniðna þjónustuna fyrir hvern
og einn viðskiptavin.
Boðið er upp á IVECO
S-WAY í jarðgasútgáfu (CNG)
og fyrir fljótandi gas (LNG) sem
kosti í staðinn fyrir dísilknúna
flutningabíla. Greint var frá þessu
á NGV Global News nú í júlí.
IVECO S-WAY var hleypt af
stokkunum á alþjóðlegri sýningu í
Madríd og tóku þátt samstarfsaðilar
frá Amazon, Shell og Microsoft.
Hubertus Mühlhäuser,
forstjóri CNH Industrial, kynnti
stefnumótandi sjónarmið og
framtíðarsýn CNH Industrial á
viðburðinum.
Mühlhäuser sagði að innan CNH
Industrial samsteypunnar væri
IVECO hluti af einhverju stærra
og nýtti þannig samlegðaráhrif
innan samstæðunnar. Þetta nýja
flaggskip þungaflutningabifreiða
væri ekki aðeins mikilvægt afrek
fyrir IVECO sem tegundarheiti,
heldur væri það einnig mikilvægur
áfangi fyrir CNH Industrial í heild
sinni.
Í fréttinni segir að fyrir
flutningafyrirtæki sem vilja
keyra „græna“ flota sé IVECO
S-WAY Natural Power enn eini
LNG flutningabíllinn sem býður
allt að 1.600 km drægni með 460
hestafla vél. Með þessu farartæki
munu menn njóta góðs af öllum
kostum náttúrulegs gass. Það sé
eini valkosturinn í þessum flokki
bíla sem á boðstólum er strax í
þungaflutningageiranum sem skili
minni mengun í stað dísilknúinna
bíla.
Sáralítil mengun
Með honum dragi úr losun sótagna
um 99% og hann skili um 90%
minni NO2 losun. Þegar notað sé líf-
metan verði CO2 um 95% lægra en
í dísilbíl, eða nærri núlli. Þá sé ekki
verra að heildar rekstrarkostnaður
sé lægri en af útgerð dísilknúinna
flutningabíla.
Nýju Volvo gastrukkarnir hjá Datrans í Hollandi.
VOLVO FM-LNG.
Nýi IVECO S-WAY flutningabíllinn sem gengur fyrir gasi.