Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 39
GRÆNT ALLA LEIÐ
Vélvirki, blikksmiður, húsasmiður og bifvélavirki
Launafl ehf. óskar að ráða iðnaðarmenn eða menn með sambærilega menntun til starfa í deildum fyrirtækisins á
Reyðarfirði.
Meðal helstu verkefna:
Viðhald og viðgerðir á ýmsum búnaði og húsakostum
Nýsmíði
Bilanagreiningar
Almenn viðgerðarvinna
Samskipti við viðskiptavini
Hæfniskröfur:
Sveinspróf eða sambærileg menntun
Frumkvæði og sjálstæði í vinnubrögðum
Góð íslenskukunnátta
Skipulögð vinnubrögð
Almenn tölvuþekking
Launafl er iðnverktakafyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gildi Launafls: ÖRYGGI – ÁREIÐANLEIKI - VIRÐING
Nánari upplýsingar um störf gefur Birkir Hauksson, framkvæmdastjóri s. 840-7230 og birkir@launafl.is eða
Adda Björk Ólafsdóttir Starfsmannastjóri gsm. 840-7213 og adda@launafl.is
Áhugasamir fylli út atvinnuumsókn á vef fyrirtækisins, www.launafl.is / sækja um starf eða sendi póst á
starfsmannastjóra.
Austurland er góður kostur og býður uppá mikla fjölbreytni, kynntu þér það nánar á www.austurland.is
Launafl ehf. – www.launafl.is – sími 414-9400
Arctic Trucks Ísland ehf.
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
Sími 540 4900
Netfang info@arctictrucks.is
Vefur www.arctictrucks.is
JEPPADEKK.IS
Vönduð amerísk jeppadekk sem
henta frábærlega fyrir íslenskar
aðstæður. Stærðir 29”-44”.
38” radíaldekk
sem hefur
margsannað
sig á hálendi
Íslands.
44” radíal.
Hannað í
samstarfi
Arctic Trucks
og Nokian.
35” radíal.
Frábært
neglt
vetrardekk!
kr. 39.900,- kr. 39.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,-
FELGUR
Gott úrval
Margar stærðir
LESENDABÁS
Matvælaframleiðsla á Íslandi
hefur nær alla okkar sögu verið
bæði til neyslu innanlands og til
útflutnings. Þáttur útflutnings
hefur orðið mjög gildur. Á tímum
loftslagsbreytinga og sístækkandi
mannheima getur hann vaxið
verulega. Náttúrufar, þekking,
mannafli og auðlindir á borð við
neysluvatn, endurnýjanlega orku
og dýrastofna ásamt gróðri, eru
rammi matvælaframleiðslunnar.
Við getum framleitt hráefni í
matvæli eða fullunna neysluvöru
til að svara kalli tímans. Það
bergmálar kröfuna um sjálfbærni
og hagkerfi sem hvílir á
endurvinnslu, vöruhringrás og
völtu jafnvægi milli náttúrunytja og
náttúruverndar. Og því til viðbótar:
Á skyldu til að seðja fleiri munna
en okkar eigin, ef vel á að fara.
Vaxtarmöguleikar
Lykilorð í matvælaframleiðslu á
Íslandi, hvað vöruflokka varðar,
eru svipuð og víða í strandaríkjum:
Fiskur, ýmiskonar hryggleysingjar
í sjó, sjávargróður, kjöt, egg,
mjólkurvörur, korn og grænmeti,
auk ávaxta, aðallega ýmis konar
berja. Lega landsins, í hlýnandi
heimi, setur okkur skorður.
Fiskveiðar á heimsvísu hafa
næstum náð þolmörkum. Hörfun
hafíss getur breytt því að einhverju
leyti nyrst og syðst. Reynslan hefur
sýnt að nýting sjávarspendýra er
aðeins kleif að mjög takmörkuðu
leyti, í þágu jafnvægis vistkerfa.
Vöxtur fiskneyslu felst í fiskeldi
að stærstum hluta. Framleiðsla
dýraafurða, sjálfbær og byggð á
dýravernd, verður ávallt takmörkuð
hér vegna aðstæðna. Kornrækt
verður einnig takmörkuð en
aðrar matvörur úr gróðri geta náð
miklum hæðum og magni vegna
hreinleika lofts og vatns og aðgengi
að jarðvarma.
Nýsköpun
Löngu er komið fram að nýsköpun
er helsti lykillinn að öflugri
matvælaframleiðslu til að seðja
okkur sjálf og til vöruþróunar
vegna útflutnings. Gildir einu
hvort bent er á ný fæðubótarefni,
endurbætt byggyrki, tölvukerfi
í mjólkurvöruframleiðslu eða
hátæknigræjur í fiskverkun.
Erlend nýsköpun, til dæmis við
hönnun gróðurhúsa og rekstrarkerfi
þeirra kemur líka við sögu.
Nýsköpun getur gert okkur að
matvælaframleiðendum á allstóran
mælikvarða í samfélagi þjóðanna.
Matvælaþörf heimsins
Margvíslegar tölur eru til um
matvælaþörf heimsins, þar sem enn
sveltir sægur manna. Þær rek ég
ekki. Oft er til þess tekið að þolmörk
hnattarins leyfi mannkyn af
stærðargráðunni 11 til 12 milljarða
manna. Leyfum okkur að telja að
vel fari og sú verði smám saman
raunin á næstu áratugum og öldum.
Ísland getur leikið mikilvægt
hlutverk í þessum efnum. Við að
miðla þekkingu á matvælaöflun,
einkum í þróunarlöndum, og við að
framleiða matvæli til útflutnings en
líka til heimabrúks. Fólksfjölgun
á Íslandi verður mun hraðari en
núverandi spár birta, meðal annars
vegna vinsælda meðal þjóða með
háar eða meðalháar rauntekjur á
mann.
Atvinnuþróun á Íslandi
Frumframleiðsla allra samfélaga
er mikilvæg. Okkar byggir á
fáum en góðum auðlindum og
snýr fyrst og fremst að orku
og matvælum. Í mínum huga
verðum að afmiðja samfélagið
og einnig vöruframleiðslu að
nokkru marki. Það gerist ekki
með valdboðum heldur hvötum.
Ég á við styrkari og stærri byggðir
utan SV-hornsins, eflingu lítilla og
meðalstórra framleiðslueininga,
styttri flutningsleiðir, greiðari
samskipti, skilvirkari gæðastýringu
og betri tækifæri til menntunnar
á landsbyggðinni. Þannig getum
við skotið stoðum undir aukna
frumframleiðslu og nýsköpun betur
en með endalausri hagræðingu.
Þjónusta og verslun fylgja þessari
þróun, jafn mikilvægar og þær eru.
Matarholan Ísland er ekki tálsýn.
Mikil framleiðsla til útflutnings
á að vera markmið og eitt helsta
keppikefli samfélagsins, samhliða
kolefnishlutlausu landi fyrir 2040.
Framtíðarsýn
Kjötrækt og annar matur búinn til
með frumuræktun er fjarlæg sýn.
Hún á að aftengja mann og náttúru,
hver svo sem tilgangurinn er. Við
náttúrunytjar eftir ólíkum land-
og hafsvæðum hljóta matvæli að
vera bæði úr jurta- og dýraríkinu.
Fita, prótein og kolvetni eiga við
mannfólkið og öll náttúran er undir
við öflun þeirra. Vistspor eru ávallt
fyrir hendi en sjálfbærni, hvarf frá
jarðefnaeldsneyti og kolefnisjöfnun
mótvægið. Grænmeti úr sjó og af
landi getur seint eða aldrei frelsað
fólk frá lifandi próteingjöfum úr
sjó eða af landi. Vissulega sum
okkar (og það er ágætt) en aðeins
hluta mannkyns. Meginástæðan
er þessi: Haf þekur 2/3 jarðar en
land 1/3. Við verðum að sjá til
þess að víðerni, skógar, fjölbreytt
landvistkerfi og vötn hafi nægt
rými til viðbótar við fólk og aðrar
lífverur á þurrlendinu sem að hluta
er óbyggilegt vegna hæðar yfir sjó.
Hafið, sem seint verður heimkynni
manna, er gríðarlega mikilvægt sem
uppspretta fæðu, einkum próteins
og fitu.
Ari Trausti Guðmundsson,
Höfundur er þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboðs
Matvælaframleiðsla
á Íslandi
Ari Trausti Guðmundsson.
Bænda
bbl.is Facebook