Bændablaðið - 12.09.2019, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 43
hve mikilvæga stöðu landbúnaður
í Hollandi skipar.
14 milljarðar lítra
Árleg mjólkurframleiðsla Hollands
er um 14 milljarðar lítra en á bak
við þá framleiðslu standa nærri 18
þúsund kúabú með um 1,7 milljónir
kúa. Hvert bú er því að jafnaði með
rétt tæplega 100 kýr og rétt rúmlega
780 þúsund lítra framleiðslu. Þessi
mikla landsframleiðsla mjólkur
setur Holland í fjórða sæti yfir
mestu mjólkurframleiðslulönd
Evrópusambandsins, rétt á eftir
Stóra-Bretlandi, Frakklandi og
svo Þýskalandi sem er með mestu
framleiðsluna. Það er einnig
áhugavert að sjá hvernig mjólkin er
notuð hjá afurðastöðvum landsins
en 56% hennar fer til framleiðslu
á ostum, 14% í mjólkurduft, 7%
í ferskvöruframleiðslu eins og
drykkjarmjólk og rjóma svo dæmi
sé tekið. Þá fer 6% af mjólkinni í
mjólkurþykkni, 2% í smjörgerð og
svo fer afgangurinn í ýmsa aðra
framleiðslu.
Mörg heimsþekkt fyrirtæki
Þó svo að þegar talað er um
mjólkurframleiðslu og útflutning
mjólkurvara þá komi fyrst og
fremst upp eitt fyrirtækjanafn,
þ.e. nafn samvinnufélagsins
FrieslandCampina, þá eru
fleiri fyrirtæki í öðrum geirum
landbúnaðarins sem hafa
beintengingu við mjólkurfram-
leiðsluna.
Þannig má nefna fyrirtækið Lely,
sem er bæði í framleiðslu vinnuvéla
og mjaltaþjóna. Kynbótafyrirtækið
CRV er heimsþekkt innan
nautgriparæktar og eitt af tveimur
stærstu fyrirtækjum heimsins
á þessu sviði. Þá er hollenski
samvinnubankinn Rabobank
heimsþekktur fyrir bæði faglega
dýpt og þekkingu á landbúnaði og
fullyrða má að engin fjármálastofnun
í heiminum sé á áþekkum stað þegar
horft er til landbúnaðar og síðast en
ekki síst mætti hér nefna háskólann í
Wageningen sem er talinn einn allra
besti landbúnaðarháskóli í heimi.
Ýmis önnur fyrirtæki og stofnanir
mætti nefna en þessi einfalda
upptalning sýnir einfaldlega hve
faglega sterkt landið er á þessu sviði.
Sterkari saman
Það var einmitt hin auðsjáanlega
faglega sterka staða ótal aðila í
Hollandi sem ýtti úr vör hugmynd
hjá nokkrum starfsmönnum
Wageningen háskólans á sínum
tíma. Hugmyndin var að kanna hvort
hægt væri að fá alla þessa aðila til að
vinna saman með einhverjum hætti
jafnvel þótt sumir þeirra væru e.t.v.
í samkeppni sín á milli.
Ákveðið var að stofna
samstarfsvettvanginn Dairy
Campus sem er sjálfstæð stofnun
sem bæði er með eigin tekjur vegna
landbúnaðarstarfsemi og auk þess
fær stofnunin rekstrarfé frá þeim ótal
aðilum sem að stofnuninni standa en
núna eru meira en 40 meðlimir, bæði
fyrirtæki og stofnanir sem eru með
aðild að Dairy Campus.
Byggðu nýja aðstöðu
Markmiðið með Dairy Campus var
að samtvinna rannsóknir, kennslu,
nýsköpun og þróun með því að skapa
sameiginlegan vettvang fyrir alla þá
aðila sem að stofnuninni stóðu og
standa. Til þess að gera þetta þurfti
að byggja upp nýja aðstöðu og úr
varð að halda til sveitarfélagsins
Leeuwarden í Frísland-fylki í
norðurhluta landsins og byggja þar
allt frá grunni. Dairy Campus fékk
úthlutað rúmlega 300 hektara jörð
og svo var ráðist í framkvæmdir
sem báru með sér að byggja 6
mismunandi fjósbyggingar til að
hýsa allar 550 kýrnar sem þangað
átti að flytja auk gripa í uppeldi.
Hin nýja aðstaða var tekin í notkun
í maí 2016.
Ástæða þess að ekki var byggt
eitt stórt fjós var vegna ólíkra þarfa
þeirra sem að stofnuninni koma.
Sumir vilja sérhæfðar rannsóknir á
sótspori framleiðslunnar, aðrir vilja
láta skoða fóðurefni, enn aðrir atferli
og svona má lengi telja. Þessum ólíku
þörfum er erfitt að fullnægja með
einu fjósi og því voru byggð minni
og sérhæfðari einingar. Þannig er t.d.
eitt fjósið með afar fullkominn búnað
fyrir mælingar á umhverfisáhrifum
framleiðslunnar og kúnna og annað
fjós er með sérhæfðan búnað fyrir
fóðrunarrannsóknir svo dæmi sé
tekið. Þá er á Dairy Campus einnig
afar glæsileg aðstaða fyrir ráð-
stefnur, kennslu og námskeiðahald
auk sérstakrar aðstöðu fyrir bæði
meistara- og doktorsnema og enn
fremur er á Dairy Campus mjög fín
móttökuaðstaða fyrir gesti.
Kennsla, rannsóknir,
nýsköpun og þróunarstarf
Hjá Dairy Campus, sem í dag er stýrt
af Íslandsvininum Kees de Koning, er
nú til einstakur samvinnuvettvangur
kennslustofnana, rannsóknaaðila,
fyrirtækja og hagsmunaaðila innan
mjólkurframleiðslunnar og þrátt
fyrir ungan aldur stofnunarinnar
hefur þetta samstarf þegar leitt til
þróunar á nýjungum og búnaði.
Fyrirtæki sem vilja prófa
nýjungar sínar eða breytingar
á fyrri tækni geta þarna fengið
prófun í fullum trúnaði og þá
geta háskólarnir fengið inni fyrir
rannsóknir sínar með ódýrari hætti
en skólarnir ella gætu þar sem þeir
þurfa þá ekki að vera með fjós í
rekstri. Þá hefur kennsluaðstaðan
virkilega staðið undir nafni og
bæði skólar og fyrirtæki nýta sér
aðstöðuna reglubundið fyrir kennslu
og námskeiðahald. Þó svo að
Dairy Campus leggi áherslu á
alla virðiskeðju mjólkurinnar,
þ.e. frá grasi í glas, þá eru það
samt kýrnar sem höfuðáhersla
er lögð á. Þær gera nefnilega mun
meira en að að framleiða mjólk,
þær framleiða mikið af gögnum á
hverjum degi sem er safnað með
atferlismælum og öðrum búnaði.
Með fullkomnum tölvubúnaði er
hægt að afla mikilvægra gagna
sem eru í raun mikil verðmæti fyrir
stofnunina og einn lykillinn að því
að fyrirtæki og rannsóknaaðilar vilja
nýta sér aðstöðuna og borga fyrir
þjónustuna.
Stefna að alþjóðlegu samstarfi
Hollendingar eru afar framsýnir og
þó svo að Dairy Campus sé í dag
fyrst og fremst með aðild hollenskra
fyrirtækja og stofnana þá er stefnt
að því að víkka út hópinn og bjóða
erlendum aðilum að slást í hópinn.
Það geti ekki gert neitt annað en að
styrkja starfsemina og efla til lengri
tíma litið.
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
Öll aðstaða í tilrauna- og rannsóknafjósum Dairy Campus er hreint til fyrirmyndar. Hér er t.d. fóðurrannsóknadeildin,
þar sem hægt er að fylgjast með af mikilli nákvæmni hve mikið kýrnar í lausagöngunni éta.
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá