Bændablaðið - 12.09.2019, Side 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201954
Upplýsingar í síma
694-3700 / gk@velafl.is
694-3800 / hh@velafl .is
www.velafl.is
Hyundai R260LC-9A
Árg. 2014, 5.800 vst.
Smurkerfi, fleyglagnir
og tennt skófla.
Verð: 9.000.000 + vsk.
Dieci Zeus 37,7
Árg. 2018, 200 vst.
Hraðtengi, gafflar og skófla.
Verð: 7.900.000 + vsk.
Hyundai R60CR
Árg 2018, 600 tímar
HKS tilt og 4 skóflur
Verð 7,800,000 + vsk
Hyundai R160LCD-7
Árg 2004, 10,000 tímar
Smurkerfi, Powertilt og 2 skóflur
Góður undirvagn
Verð 4,500,000 + vsk
Hyundai R55W-9
Árg. 2012, 6.100 vst.
Smurkerfi, fleyglagnir og hraðtengi.
Verð: 2.900.000 + vsk.
Caterpillar D4H LGP
Árg. 1990, 13.400 vst.
Mótor keyrður 4.000 tíma.
Nýlegur undirvagn.
Verð: 4.900.000 + vsk.
MAN 26-430 6x2
Árg. 2006, ekinn 527.000 km.
Vökvakerfi fyrir vagn og góð dekk.
Verð: 2.200.000 + vsk.
Skógarhlíð 10, Reykjavík
www.bilasalaislands.is
Sími 510 4900
Síðan 1995
Toyota Land Cruiser 150 GX
Traustur jeppi með góða þjónustusögu.
Árgerð 5/2010, dísel, 173 hö, slagrými 2.982 cc, sjálfskiptur,
ekinn 261.000 km. Túrbína, hraðastillir, álfelgur, tauáklæði,
dráttarkrókur, þakbogar, þjónustubók o.m.fl .
Verð: 3.590.000 kr. Fleiri myndir á bilasalaislands.is
Rnr. 221843.
Til sölu gæðingur
Rúllugreip fyrir tvær rúllur.
Glussaopnun. Verð kr. 330.000
m/vsk. (kr. 206.000 án vsk.) H.
Hauksson ehf. S. 588-1130.
Rafstöðvar með orginal Honda-
vélum og Yanmar dísil á lager.
Stöðvarnar eru frá Elcos Srl. á
Ítalíu, www.elcos.net. Eigum einnig
hljóðlátar stöðvar fyrir ferðavagna.
Við bjóðum upp á allar gerðir af
rafstöðvum. Mjög hagstætt verð.
Hákonarson ehf. www.hak.is - s.
892-4163, netfang: hak@hak.is
Til sölu
Plast í f járhúsgólf og stíur.
Bása- og drenmottur, útileik-
tæki, gúmmí hellur og gervigras.
Heildar lausnir á leiksvæðum.
Netfang: jh@johannhelgi.is og
s. 820-8096.
Harmonikkur til sölu. Excelsior
ítölsk 96 bassa. Verð 370.000 kr.
Goldencup kínversk 72 bassa.
Verð 195.000 kr. 20 ára gamlar, lítið
notaðar og vel með farnar. Einnig
með íslenskan stál rafmagnspott
75 lítra. Verð 30.000 kr.
Uppl. í síma 861-1155.
Til sölu SAC láglínukerfi 2x5 ásamt
mjólkurmælum og ryðfrí innrétting.
Uppl. í símum 486-6034, 774-6034
og 898-6034.
Til sölu fjögur nagladekk 235/60
R18. Lítið notuð. Seljast ódýrt. Uppl.
í síma 892-3305.
Lítill plastbátur til sölu. 3,60 m
langur, 2.5 hp mótor fylgir. Uppl. í
síma 892-5206, Jóhannes.
Fjósbitar frá Andersbeton. Flat-
gryfjur frá Bosch beton. Ben. Hjalta
s. 894-6946.
Til sölu fjórþætt kjötvinnsluvél, sem
hakkar, býr til snitsel, pylsur og saxar
grænmeti. Er fjögurra ára, lítið notuð.
Uppl. í síma 864-9797.
Lagerhreinsun. Ljósgrá trapissu-
klæðning 0,45 mm 50 plötur x
5.660 mm. 52 plötur x 1.350 mm.
18 plötur x 1.650-4.050 mm. Alls 444
m². Verð alls kr. 459.000 m/vsk. H.
Hauksson ehf. S. 588-1130.
Lagerhreinsun. Hvít trapissu klæðning
0,5 mm 40 plötur x 3850 mm.
26 plötur x 4200-5800 mm. Alls 312
m². Verð alls kr. 375.000 m/vsk. H.
Hauksson ehf. S. 588-1130.
Timbur lagerhreinsun 26 stk. 63 x 225
mm x 5,1 m. Verð alls kr. 98.000 m/
vsk. H. Hauksson ehf. S. 588-1130.
Timbur-Lagerhreinsun. 196 stk.
25 x 150 mm x 5,7 m. kr. 209 lm.
187 stk. 32 x 100 mm x 5,1 m. kr. 260 lm.
74 stk. 50 x 150 mm x 4,2 m. kr. 500 lm.
50 stk. 50 x 150 mm x 4,8 m. kr. 500 lm.
10 stk. 50 x 200 mm x 4,8 m kr. 665
lm. H. Hauksson ehf. S. 588-1130.
Rafstöð 3 kW. 4 hjól f. hlaupakött.
Burðargeta 5 tonn. Á sama stað
óskast haglabyssa nr. 16 og Hornet.
Uppl. í síma 892-5023.
Óska eftir
Ég kaupi frímerki, póstgengin
umslög, gömul skjöl, póstkort,
gamlar ljósmyndir, seðla og mynt.
Ef þú lumar á einhverju af þessu og
vilt koma því í verð eða fá ókeypis
verðmat þá ekki hika við að hafa
samband. Mbk, Magnús, sími 896-
1987, rvkauctions@gmail.com
Atvinna
Par frá Spáni óskar eftir vinnu við
bústörf í aprílmánuði 2020 í nálægð
við Reykjavík. Upplýsingar í s. +34
663254603 og gegnum netfangið
marialc_95@hotmail.com
Ég óska eftir að komast í sveitavinnu
fram að 15.-20. desember. Ég er 16
ára og er mikill sveitastrákur. Ég
er vanur dráttarvélum. Endilega
hafið samband í gegnum síma hjá
mömmu, s. 867-9481.
Gefins
Baðker, 1,6 m á lengd, gefins ef þú
losar það. Inga Rósa sími 863-0269.
Leiga
Til leigu eða sölu 1.500 fermetra
minkahús í Skagafirði. Nánari uppl.
í síma 864-9731.
Til leigu 3ja herbergja 95,² m² íbúð
að Grænumörk 2, Selfossi. Í húsinu
búa 50 ára og eldri. Stæði fyrir bifreið
í bifreiðastæðakjallara. Lyfta er í
húsinu. Nánari uppl. í síma 897-5994.
Tilkynningar
Ertu með þróunarverkefni í garð-
yrkju, nautgriparækt eða sauðfjár-
rækt í huga? Mundu að umsóknar-
frestur um þróunarfé búgreina
rennur út 1. okt. nk. Nánari upp-
lýsingar á ww.fl.is/þróunarfé.
Lumar þú á verkefni til stuðnings
ný sköpunar, vöruþróunar,
kynningar og/eða markaðsstarfi til
stuðnings íslenskri sauðfjár rækt?
Þá er Markaðs sjóður sauðfjár-
afurða málið! Umsóknarfrestur
1. okt. nk. Nánari upplýsingar á
ww.fl.is/markaðssjóður.
Þjónusta
Tek að mér viðgerðir á flestum
tegundum sjálfskiptinga. Hafið sam
band í síma 663-9589 til að fá uppl.
og tilboð. HP transmission Akureyri,
netfang einar.g9@gmail.com, Einar G.
Tökum að okkur hönnun á öllum
byggingum. Íbúðar hús, sumar-
hús, ferða þjónustu byggingar,
iðnaðar hús, skemmur og
gripahús. BK Hönnun ehf. s.
865-9277 - www.bkhonnun.is
birkir@bkhonnun.is
Set upp lyftibílskúr og rennihurðir,
sé um breytingar og frágang. Uppl.
í s. 694-1818.
Úrbeining. Tek að mér að úrbeina,
hakka, pakka, laga kjötfars og bjúgu.
Get sótt kjötið í SS Selfossi eða Hvols-
velli. Uppl. í síma 868-0544, Smári.
Landsvirkjun gerir athugasemdir við fyrirhugaðar friðlýsingar umhverfis- og auðlindaráðuneytis:
Telur afmörkun friðlýstra svæða of umfangsmikla
Landsvirkjun hefur sent
umhverfis- og auðlindaráðuneyti
athugasemdir vegna fyrirhugaðra
friðlýsinga svæða í verndarflokki
2. áfanga rammaáætlunar. Í rétta-
tilkynningu sem Landsvirkjun
sendi frá sér 11. september segir
að miklir annmarkar séu á túlkun
umhverfis- og auðlindaráðuneytis
á því hvernig slík friðlýsing eigi að
eiga sér stað.
Landsvirkjun segir að hún styðji
samt heilshugar við markmið
rammaáætlunar og þar með talið
friðlýsingu verðmætra landsvæða,
en segir síðan:
Afmörkun friðlýstra svæða of
umfangsmikil
„Með svo víðtækri friðlýsingu
sem lögð er til er verið að koma
í veg fyrir orkunýtingu á stórum
svæðum um ókomna framtíð. Á
viðkomandi svæðum geta verið
aðrir virkjunarkostir sem ekki hafa
verið skoðaðir en væru ásættanlegir
m.t.t. áhrifa á umhverfi og samfélag.
Í greinargerð með lagafrumvarpinu
um rammaáætlun er það skýrt tekið
fram að verndun heilla vatnasviða
þar sem virkjunarkost í verndarflokki
er að finna sé alls ekki sjálfgefin.
Landsvirkjun hefur síðustu ár
margítrekað bent á þessa annmarka
í samskiptum við stjórnvöld og á
opinberum vettvangi.“
Ítrekaðar athugasemdir
Landsvirkjunar
„Í friðlýsingarferlinu um
virkjunarkosti í verndarflokki
annars áfanga rammaáætlunar
sendi Landsvirkjun inn umsagnir
um virkjunarkosti á sínum svæðum
sem og inn almenna umsögn um
annmarka á friðlýsingarferlinu.
Landsvirkjun fjallaði ekki sérstaklega
um friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum.
Þegar tillögur Umhverfisstofnunar
í friðlýsingarferlinu lágu fyrir
sendi fyrirtækið umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu bréf í ágúst
síðastliðnum. Eftirfarandi eru
aðalefnisatriði þess:
Miklir annmarkar eru á
undirbúningi að friðlýsingu svæða á
grundvelli flokkunar virkjunarkosta
í verndarflokki rammaáætlunar.
Landsvirkjun telur að málsmeðferð
fylgi ekki ákvæðum laga um
rammaáætlun. Í athugasemdum við
lagafrumvarpið er það skýrt tekið
fram að verndun heilla vatnasviða
þar sem virkjunarkost í verndarflokki
er að finna sé alls ekki sjálfgefin.
Það er meginregla stjórnsýslu-
réttarins að íþyngjandi ákvarðanir
þurfa að eiga sér skýra lagastoð. Að
mati Landsvirkjunar er ljóst að skýr
lagastoð er ekki fyrir hendi. Í ljósi
réttaráhrifa friðlýsingar og þeirra
ríku hagsmuna sem eru undir er
brýnt að hafið sé yfir allan vafa að
lagafyrirmælum sé fylgt.
Mikilvægt er að vandað sé til
verka við undirbúning friðlýsingar
og framkvæmd hennar og tryggt að
málsmeðferð við ákvörðunartöku
sé lögum samkvæmt og að gætt sé
meðalhófs.
Samkvæmt lögum um ramma-
áætlun sem og lögskýringargögnum
er gert ráð fyrir að Alþingi flokki
ekki einungis virkjunarkosti
heldur eigi það jafnframt að
afmarka þau landsvæði sem ástæða
þykir til að friðlýsa gagnvart
orkuvinnslu. Landsvirkjun hvetur
því umhverfis- og auðlindaráðherra
til að leita fulltingis Alþingis
varðandi afmörkun svæða og að
gera þær breytingar á lögum sem
nauðsynlegar teljast áður en farið
er að friðlýsa víðfeðm landsvæði
gagnvart orkuvinnslu,“ segir í
tilkynningu Landsvirkjunar. /HKr.
Jökulsá á Fjöllum og Réttarfoss. Mynd / HKr.