Smirill - 12.11.1931, Side 3

Smirill - 12.11.1931, Side 3
12 .Nóv. 1931. 1. árg., 1. tbl. SMIRILL ÁVA R P cz C "y mirill er lítill, fallegur, hyggmn og hngaður ránfugl. Þeim, sem standa að blaði því, er hér kemur fyrir almenningssjónir og eftir mikið vafstur hlaut nafnið „Smirill“ í skírn- inni, væri ekki á móti skapi, þótt það „líktist nafni" að einhvérju leyti. Áræðnina vantar að minsta kosti ekki, þegar efnt er til blaðstofnunar á jafn erfiðum tímum og þeim, er nú standa yfir; verður um þá viðleitni „að fara sem fara vill“, og er þá ekki í fyrsta skifti sem blað lognast út af á Islandi. Annars verða þeir sjálfsagt nógu marg- ir, sem spá „Smirli“ hrakspám, þótt útgefendurnir gangi frá, og murium við vissulega láta slíkt hjal fara inn um annað eyrað og út um hitt. Blaðið vill verða gott heimilisblað með myndum, til skemtunar og fróðleiks; tíminn sker úr, hvort sú fyrirællun tekst. Það verður 22 X 32 ctm. að stærð, 16 síður hvert blað, og kemur út 10. hvern dag eða þrisvar sinnum á mánuði. Efni verður haft eins fjölbreytt og kostur er á, og hafa ýmsir menta- og fræðimenn þegar lofað okkur aðstoð sinni; vonum við að fleiri sigli þar í kjölfarið og veitum fúslega viðtöku stuttum greinum um öll málefni milli himins og jarðar að undanteknum stjórnmálum — þau eiga hingað ekkert erindi — og verða hér aldrei rædd. Efni blaðsins verður jafnan raðað niður eftir því sem bezt þykir fara í hvert skifti, og vonum við að lesendur kunni því vel. Árgangurinn kostar 12 krónur (krónu um mánuðinn) og greiðist fyrirfram. Áskrifend- um verður safnað hér í Reykjavík og nágrenni milli þess að 1. og 2. tölublað kemur út; geta menn ]>á ráðið hvort þeir greiða blaðið eftirleiðis fyrir 1, 2, 3, 6 eða 12 mánuði í einu. Nýr árgangur hefst með nýári. Við vonum að „Smirill“ eigi eftir að eignast marga vini og kveðjum yður. Virðingarfylst ÚTGEFENDURNIR.

x

Smirill

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Smirill
https://timarit.is/publication/1427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.