Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Qupperneq 6

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Qupperneq 6
TekiO á framhaldsstofnþingi. komið fram óánægju raddir frá atvinnu- slökkviliðsmönnum um að fyrir þá sé raun- verulega ekkert gert, þetta er rétt að því leiti að sem ein heild hefur það ekki verið gert en fyrir einstök félög hefur sambandið þó unnið, enda hafa þessi félög þá óskað eftir því við sambandsstjórn. Það er eitt af stefnumálum sambandsins að fá rétt til að vinna kjaralega að málefnum atvinnuslökkviliða, en hvenær það fæst er ekki hægt að tímasetja. Það má eflaust finna margt að í stjórn og framkvæmd sambandsins, en sá þáttur er menn geta áreið- anlega verið sammála um er útgáfa á blaði sambandsins Slökkviliðsmanninum og frétta- bréfi. Þeir sem unnið hafa að þessum málum fyrir sambandið eiga mikinn heiður skilið og að öðrum ólöstuðum þá á Karl Taylor stærsta þáttinn í útgáfu á Slökkviliðsmanninum frá upphafi. Eitt helsta mál sambandsins á næst- unni verður að fylgja eftir ályktunum síðasta þings sambandsins um skóla fyrir slökkviliðs- menn, en í hvaða mynd hann verður mun tíminn leiða í ljós. Ein mesta viðurkenning sem sambandið hefur fengið frá stofnun þess var er félagsmálaráðherra fól L..S.S. að til- nefna mann í stjórn Brunamálastofnunar Rík- isins á síðasta ári. Það er von núverandi stjórnar að áfram verði haldið á sömu braut samkvæmt markmiði sambandsins, en með auknum þunga og ákveðni. Vonandi verður sambandið enn stærra og öflugra á tíu ára af- mæli þess. Á.P. Uppgjör æpti bossinn Viðlag: Uppgjör æpti bossinn, og undir eins i dag, það eru að koma áramót og allt þarf að fást i lag. Og kalli þessu hlýddi blint hans blýantsnagarlið, þeir hentu frá sér Mogganum og hrukku illa við. J innheimtunni óðu þeir í nótum uppí hné. En skrifstofustjórinn pípti hátt og panikpolka sté. Og bókararnir æstu sig , æðisgengið skap, þeir fórna urðu jólunum og færa þau á tap. Og einkaritarinn hamaðist svo villt á vélinni, að rafmagnslaust varð óðara allt í næsta nágrenni. Einn blókarræfilinn hætti á að biðja um stundarfrí, hann rekinn var úr djoppinu, —• og svo aftur i. Og gjaldkerinn í uppnáminu óður tók á rás, í auraskápinn skrelð hann inn og skellti hurð í lás. Og rukkarinn var sendur alla reikningana með, það hefur enginn maður siðan heyrt til hans né séð. Einn gæinn sat í svitabaði og glugga upp hann lauk en trekkurinn náði i uppgjörið, sem út um gluggann fauk. Og blöðin flugu vítt og breytt á vængjum andvarans. þau bárust út fyrir yztu sker og beint til andskotans. ÍAtvecjurn hversUonar tœUi ocf búnab til slöUUvistarfa •a <5f°r0 J*\mundason SUÐURLANDSBRAUT 10 SI'MI 81180 4 SLÖKKVIUÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.