Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Page 8

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Page 8
Jónas Marteinsson fulltrúi slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli. 13. Skýrsla gjaldkera Egill Ólafsson las og skýrði reikninga L.S.S. 14. Þingforseti þakkaði Agli og gaf orðið laust um skýrslu stjórnar og reikningana. 15. Fyrstur tók til máls Gísli Lorenzson Akureyri, spurðist hann fyrir um hækkun á póst- og símakostnaði, einnig um dreifingu blaðsins Slökkviliðsmaðurinn og kostnað við bókaútgáfu. 16. Kristján Björnsson benti á að í félaginu Eldborg í Borgarfirði væru menn úr þrem slökviliðum, og bað um að það yrði leiðrétt í reikningum. 17. Egill Ólafsson svaraði spurningum um reikninga L.S.S. og sagði m.a. að komið hefðu fram gallar í þýðingu bókar og útgáfa hennar stöðvast í bili. 18. Halldór Ingi Guðmundsson þakkaði gjaldkera og stjórninni allri vel unnin störf, og spurði hvers vegna reikningar væru tví- skiptir. 19. Jónas Marteinsson ræddi reikninga og var mjög ánægður með þá, sagði þá vera hreint glæsilega. Þá sagðist Jónas sakna slökkviliðsmanna af Snæfellsnesi. 20. Gísli Lorenzson þakkaði gjaldkera greinargóð svör, og óskaði hann eftir að fá blaðið sent á slökkvistöðina, en ekki heim til slökkviliðsmanna. 22. Forseti bar undir atkvæði skýrslu stjórnar og gjaldkera, og voru þær samþ. samhljóða. 23. Þórir Gunnarsson lagði fram tillögu um lagabreytingar, og var þeim vísað til laga- nefndar. Önnur mál 24. Halldór Ingi Guðmundsson Vestmanna- eyjum lagði fram tvær tillögur og var þeim vísað til Félagsmálanefndar og Öryggisnefnd- ar. 25. Kristján Björnsson ræddi launamál m.a. mismun á launum lausráðinna og fast- ráðinna slökkviliðsmanna, einnig spurði hann um tryggingarð slysabætur, innheimtu í fé- lagsgjöldum og bakvaktir. 26. Stefán Steingrímsson Reykjavík ræddi um námskeið, taldi hann það ekki nógu gott fyrirkomulag, heldur vill hann stefna að því að koma á skóla og nefndi hann Bretland sem dæmi, einnig ræddi hann um nefndarstörf. Þá kom hann inn á öryggismál og ræddi þar um reykköfunartæki S.R. og taldi þau alls ekki nógu góð. Óskaði hann eftir liðsinni L.S.S. 27. Gísli Lorenzson ræddi um B.M.S.R. og sagði starfsmenn hennar hafa skilað miklu og góðu starfi. Gísli var á móti því að deilur liðsmanna S.R. við sína yfirmenn væru rædd- Gunnlaugur B. Sveinsson varaformaöur L.S.S. i ræöustól. 6 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.