Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 9
ar á þingi L.S.S. Einnig ræddi hann um skóla
fyrir slökkviliðsmenn og taldi varla tímabært
að stofna hann. Þá ræddi hann um reykköf-
unartæki og erfiðleika við hleðslu á loftkút-
um.
28. Jónas Marteinsson gerði fyrirspurn til
Stefáns um hvað hefði bilað í reykköfunar-
tækjunum.
29. Stefán svaraði Jónasi og sagði hann að
MAND'ED DUO 3000 tækin væru t.d. í Dan-
mörku ætluð til skammtímabrúks.
30. Þá tók til máls Ármann Pétursson, og
sagðist hann ekki geta rekið Snæfellinga til
þess að mæta á þingi L.S.S. Þá ræddi hann
um tryggingar- og kjaramál almennt. Reyk-
köfunartækjamálið sagðist hann helst vilja
leysa innan S.R.
31. Halldór Vilhjálmsson ræddi um skipun
Eggerts Vigfússonar í stjórn B.M.S.R. Sagði
hann það mikla bót fyrir slökkviliðsmenn, þá
ræddi hann um að gott væri ef nefndir gætu
starfað milli þinga. Einnig skýrði hann frá
erfiðleikum á að hafa stjórnarmenn úr sitt
hvorum landshluta. Síðan skoraði hann á
þingið að vinna að stofnun slökkviliðsmanna-
skóla.
32. Næstur tók til máls Gunnlaugur Búi
Sveinsson og ræddi hann um launamál, og
taldi það óhæft að lausráðnir slökkviliðs-
menn lækki í launum við útkall.
Egill ólafsson afhendir GuOmundi Haraldssyni
fyrsta formanni L.S.S. fána sambandsins.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
Þingfulltrúar aO störfum.
33. Kristján Björnsson lagði fram tillögu
um launamál, og var henni vísað til kjara-
nefndar.
34. Guðni Guðbjartsson ræddi um reyk-
köfunartæki, og spurði hvort B.M.S.R. skipti
sér ekkert af innflutningi þeirra.
35. Örn Bergsteinsson Keflavík ræddi um
kjaramálin, taldi hann eðlilegast að viðkom-
andi félög slökkviliðsmanna semdu beint við
viðkomandi bæjar- eða sveitarstjórnir, lýsti
hann síðan kjörum slökkviliðsmanna í Kefla-
vík.
36. Sigurður Þ. Jónsson gerði grein fyrir
kjörum slökkviliðsmanna í Vestmannaeyjum.
37. Höskuldur Einarsson Reykjavík ræddi
reykköfunarmálið, og útskýrði hvað hefði
komið fyrir DUO 3000 tækin og upplýsti
hann að nánast allir hlutar tækjanna hefðu
bilað.
38. Ármann Pétursson sagði frá bréfi
B.M.S.R. þar sem DUO 3000 tækin eru sam-
þykkt.
39. Sigurður Magnússon ræddi um skipun
Eggerts Vigfússonar í stjórn B.M.S.R. og lagði
til að kosin yrði 5 manna nefnd til þess að
styrkja Eggert í starfi.
40. Þórir Gunnarsson las upp tillögu um
kaup á tækjum til slökkviliða, og var henni
vísað til Öryggismálanefndar.
41. Bjarni Eyvindsson sagði frá bakvöktum
7