Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 10
GuOni J. Guöbjartsson slökkinliSsstjóri Ljósafoss
í ræöustól.
og kjörum í Hveragerði og þakkaði gjaldkera
vel unnin störf.
42. Egill Ólafsson afhenti Guðmundi Har-
aldssyni borðfána með merki L.S.S. að gjöf,
og þakkaði honum fyrstu formennsku og vel
unnin störf. Einnig færði hann slökkviliði
Miðneshrepps samskonar fána fyrir frábær
störf v/happadrættis.
43. Þórir Gunnarsson tók til máls, og frest-
aði fundi til kl. 13.30 á sunnudag.
Suimudagur 9. okt. kl. 13.30
44. Nefndarálit og umræður.
Fjárhagsnefnd: Jónas Marteinsson.
Nefndin kom saman strax eftir þinghald í
gær en engin tillaga var til umfjöllunar.
Rædd voru fjármálin, almennt voru menn
sammála um að þau væru í góðu lagi, og væri
þar fyrst og fremst að þakka happdrættinu.
Nefndin var sammála um að hækka ekki
aðildargjöld sambandsins, heldur að reyna
að finna aðrar fjáröflunarleiðir. Nefndin telur
að umfang stjórnar L.S.S. sé orðið það mikið
að athugandi sé hvort ekki sé orðið tímabært
að ráða launaðan starfsmann til að sjá um
blaðaútgáfu happdrætti o. fl. þ. h. Engin um-
ræða var um skýrslu Félagsnefndar.
45. Félagsmáladeild: Gísli Lorenzson.
Svohljóðandi tillaga var lögð fram: Vegna
framkominnar tillögu á þingi L.S.S. 8. og 9.
okt. 1977. Samþykkir L.S.S. að kosin verði 5
manna nefnd til að athuga með stofnun skóla
fyrir slökkviliðsmenn, 3 verði kosnir af L.S.S.
1 tilnefndur af B.M.S.R., og 1 af Menntamála-
ráðuneytinu. En þar til að skóli hefur verið
stofnaður beinir L.S.S. því til B.M.S.R. að
hún gangist fyrir námskeiðum fyrir slökkvi-
liðsmenn einu sinni á ári í hverjum lands-
fjórðungi.
Önnur tillaga: Félagsmálanefnd beinir því
til stjórnar L.S.S. að hraðað verði eins og
hægt er útgáfu fræðslubóka sem eru í þýð-
ingu á vegum L.S.S.
Þórir Gunnarsson tók til máls og bauð orð-
ið laust um tillögur Félagsmálanefndar. Egg-
ert Vigfússon tók til máls, og vildi hann vísa
fyrri tillögunni til stjórnar L.S.S.
Halldór Ingi Guðmundsson ræddi um nám-
skeið og skóla almennt og taldi hann nám-
skeið úti um land gott fyrirkomulag, og að
menn lærðu á sín eigin tæki.
Gísli Lorenzson ræddi um skóla og tækja-
búnað og taldi hann að það tæki 10—15 ár að
stofna skóla.
Karl Taylor ræddi fjárhagsmál, og vill
hann launa stjórn L.S.S. Einnig bókamálin,
og vill hann auka fræðsluna. Að lokum færði
Armann Pétursson formaður L.S.S. setur 5. þing
sambandsins.
8
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN