Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Blaðsíða 11
hann þinginu kveðjur frá slökkviliðsmönnum
á Keflavíkurflugvelli.
Stefán Teitsson ræddi um skólamálin og
styður hann skólatillöguna.
Halldór Ingi Guðmundsson tók aftur upp
skólamálin, og ítrekaði þá skoðun sína að
halda námskeiðin í hverju bæjarfélagi fyrir
sig.
Þórður Kristjánsson lýsti því yfir að hann
væri samþykkur tillögunni um skólamálin, og
ræddi hann síðan um fræðslumálin vítt og
breitt.
Þórir Gunnarsson las upp tillögurnar og
voru þær samþykktar samhljóða.
Laganefnd
46. Kristinn Þórhallsson lagði fram eftir-
taldar 3 tillögur um lagabreytingar:
1. 5 með 12 móti. Viðbót við 9. grein laga
L.S.S. Á eftir síðustu málsgrein komi: Gangi
félag úr sambandinu, hefur það eigi rétt til
inngöngu að nýju fyrr en að tveim árum liðn-
um frá úrsögn.
2. Samþykkt samhljóða. Á undan síðustu
málsgrein 19. gr. laga L.S.S. komi: Stjórn
sambandsins er heimilt að kalla saman for-
naenn aðildarfélaganna til fundar við sig,
telji hún það nauðsynlegt, og kallast slíkur
fundur formannaráð.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
Þingfulltrúar aiö störfum.
3. Samþykkt samhljóða. í fyrstu málsgrein
11. gr. verði orðið almanaksár látið falla
niður, en í stað þess komi: frá 1. sept. til 31.
ágúst, og í annarri málsgrein verði dagsetn-
ingin 1. apríl látin falla niður, en í stað þess
verði 15. september.
Fundarstjóri bað menn ræða tillögur laga-
nefndar. Ármann Pétursson útskýrði tillög-
urnar. Gísli Lorenzson var á móti 1. tillögu
og vildi vísa henni til föðurhúsanna. Bjarni
Eyvindsson kom með þá uppástungu að
slökkvilið yrðu skylduð til að vera í L.S.S.
Þórður Kristjánsson ræddi tillögurnar og
einnig bauð hann velkominn á þingið Hregg-
við Guðgeirsson fyrrverandi slökkviliðsstjóra.
Halldór Ingi tók til máls, og ræddi um til-
lögur laganefndar.
Tillögurnar voru bornar undir atkvæði, og
féllu þau þannig: 1. 5 með 12 á móti.
2. Samþ. samhljóða
3. Samþ. samhljóða.
Kjaranefnd
47. Höskuldur Einarsson formaður nefnd-
arinnar las upp tillögu sem fyrir nefndinni
lá flutt af Kristjáni Björnssyni og er hún svo-
hljóðandi: Kjaranefnd kanni hvernig best sé
komið kjaramálum lausráðinna slökkviliðs-
manna, þannig að tryggt sé að þeir skaðist
ekki fjárhagslega á að mæta á útköll og æf-
ingar.