Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Síða 13

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Síða 13
Formaður: Ármann Pétursson Reykjavík. Varaform: Gunnlaugur Búi Sveinsson Akur- eyri. Ritari: Halldór Vilhjálmsson Keflavíkurflug- velli. Gjaldkeri: Egill Ólafsson Sandgerði. Fjármálaritari: Þórður Kristjánsson Keflavík- urflugvelli. Meðstjórnendur: Stefán Teitsson Akranesi, Erling Gunnlaugsson Selfossi. Varamenn: Guðjón Emilsson Flúðum, Guð- mundur I. Waage Borgarnesi, Gunnar Steinþórsson ísafirði, Örn Bergsteinsson Keflavík. Endurskoðendur: Bóas Karlsson Reykjavíkur- flugvelli, Árni H. Guðmundsson. Til vara: Hörður Helgason. Kosning formanns 50. Uppástungur komu fram um Ármann Pétursson og Halldór Vilhjálmsson. Ath. var hve margir hefðu kosningarétt og reyndust þeir vera 40. Gert var 15 mín. hlé til athug- unar á kosningarétti stjórnarmanna. Að hléi loknu var birtur úrskurður laganefndar, og var hann á þá leið að stjórnin hefði kosn- ingarétt. Fór framskrifleg kosning formanns, °g féllu atkvæði þannig: Ármann Pétursson: 26 atkvæði. Halldór Vilhjálmsson: 16 atkvæði. Auðir seðlar: 4. Þingforseti lýsir yfir að Ármann værn rétt- kjörinn formaður. Uppástungur kjörnefndar voru að öðru leyti samþ. samhljóða. Kosning nefnda 51. í blaðstjórn voru kosnir þeir sömu og áður. Karl Taylor, og Hilmar R. Sölvason. í skólanefnd: Gísli Lórenzson, Jón Norð- fjörð, Höskuldur Einarsson. í fræðslunefnd: Karl Taylor, Ástvaldur Ei- ríksson. Onnur mál 52. Fram kom svohljóðandi tillaga: Við undirritaðir gerum það að tillögu okkar að SLÖKKVILIÐSMAÐURINN stjórn L.S.S. athugi með að reyna að koma á degi slökkviliðsins um allt land. Sigurður Halldórsson, Örn Bergsteinsson, Einil Páll Jónsson. z Var hún samþ. samhljóða. 53. Þá flutti Sigurður Þ. Jónsson svohljóð- andi tillögu: L.S.S. beiti sér fyrir því að félag slökkviliðsmanna eigi minnst einn fulltrúa í brunamálanefnd síns umdæmis. Halldór Ingi Guðmundsson, Sigurður Þ. Jónsson, Gísli Lórenzson, Gunnlaugur Búi Sveinsson. Samþykkt samhljóða. 54. Karl Taylor tók til máls og ræddi um blað slökkviliðsmanna og hvatti hann menn til að senda blaðinu efni. 55. Örn Bergsteinsson ræddi lög L.S.S. og skoraði á stjórnina að endurskoða þau. 56. Þórir Gunnlaugsson kom með þá uppá- stungu að slökkviliðsstjórar sendu blaðinu frásagnir af eldsvoðum, eða jafnvel útdráit úr dagbókum. 57. Gísli Lorenzson tók til máls og ræddi hann vítt og breitt um slökkvistörf. 58. Bjarni Eyvindsson árnaði nýju stjórn- inni allra heilla og þakkaði ánægjulegt sam- starf. 59. Ármann Pétursson þakkaði traust það sem sér væri sýnt. Þá afhenti hann Bjarna Eyvindarsyni fána L.S.S., og þakkaði honum góð störf. 60. Jóhannes Þórðarson bauð að næsta þing yrði haldið á Blönduósi. 61. Stefán Teitsson Akranesi ræddi um blaðið og sagði frá reynslu slökkviliðsins á Akranesi í sambandi við sprengiefni o.fl. 62. Að lokum tók til máls þingforseti Egg- ert Vigfússon, þakkaði hann mönnum þing- störfin, og óskaði mönnum góðrar heimferðar. Síðan sagði hann fimmta þingi L.S.S. slitið. Þingforsetar: Eggert Vigfússon. Þingritari: Jón Ól. Sigurðsson. 11

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.