Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 17

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 17
SLÖKKVISTARF i SVEITUM Slökkvistarf í sveitum er yfirleitt mjög frá- brugðið því sem gerist í bæjum og borgum. Þar kema til greina meiri fjarlægðir, tafir á að tilkynna eldinn, erfiðleikar og tafir á skilaboðum, ófærðir og vegleysur, snjóalög á vegum, vatnsskortur, skortur á vinnuafli og æfingaleysi, ásamt tækjaskorti og slæmu við- haldi þeirra. Það verður oft að nýta vatn eins og hægt er, flytja það langar leiðir og notast við granna stúta til að spara vatnið. Oft þarf að viðhafa aðrar slökkviaðferðir, þegar vatn er ekki til staðar, eða þar sem það kemur ekki að gagni. Það þarf að rífa niður hey, grafa skurði til að stöðva sinubruna, notast við sand, mold eða strákústa til að kæfa eld- inn og berja hann niður. Stundum eru eldar látnir brenna út, en verðmæti í hættu varin. Stundum má notast við þau tæki, sem til eru á staðnum, dráttarvélar, jeppa, skurðgröfur eða annað. Oft hefur veður mikil áhrif á slökkvistarf- ið. Þurrkar gera það að verkum að eldar eru tíðir og erfiðir viðfangs, en rigningar geta aðstoðað mikið við slökkvistarf. Þá hefur veður líka mikið að segja í sambandi við vatnsból, sem geta þornað upp, frosið eða horfið undir snjó. Eldur í kjarri, moslendi eða mólendi er oft mjög erfiður viðfangs, því að hann getur brunnið nokkuð djúpt ofan í jarðveginn og leynst þar lengi. Þegar þannig er ástatt þarf að áætla farveg eldsins og hreinsa burt gróð- ur á belti, sem eldurinn nær ekki að fara yfir. Það er erfitt verk og tímafrekt, og krefst margra manna með handverkfæri, ef ekki er hægt að koma jarðvinnsluvélum að. Stundum er hægt að ,,gagnbrenna“ belti eða svæði, en það er gert þannig, að eldur er kveiktur þar sem gott er að hafa hemil á honum, t. d. meðfram vegi eða skurði, og jarðvegurinn þar látinn brenna svæði, sem aðaleldurinn kemst síðan ekki yfir. Slíkir gagnbrunar eru mikið notaðir erlendis við skógarbruna, en kunnáttu og varúð þarf lil þess að þeir nái tilgangi sínum og breiðist ekki út. Gagnbrunar brenna yfirleitt hægar, því að þeir ná aldrei yfir stórt svæði, hitinn nær ekki að sameinast og vindur er minni þar sem gróður er allt í kring. Þess vegna er be'ra að hemja hann með handverkfærum eða litlu vatni. Ef byggingar eru í hættu vegna sinubruna, er slökkvistarf venjulegast aðeins miðað við að bjarga þeim, en sinan látin brenna út. Sér- staklega þarf að verja síma og rafmagns- staura á brunasvæðinu og girðingar eí hægt er. Heybrunar. Heybrunar hafa til skamms tíma verið nokkuð algengir hér á landi, en nokkuð hef- ur dregið úr þeim vegna þess hve algeng súgþurrkun er í hlöðum, en með stöðugum blæstri er oftast hægt að halda heyinu nægi- lega köldu til að ekki kvikni í. Það er kunnugt að sjálfsíkviknun getur hæglega orðið í heyi, sérstaklega ef það er ekki orðið vel þurrt þegar það er látið inn, eða ef það hefur blotnað vegna rigningar eða daggar. Ástæðan er álitin vera sú að lifandi frum- ur í heyinu halda áfram að skipta sér, en við það myndast takmarkaður hiti, sem kemst ekki í burtu vegna einangrunar hey- hlaðans. Hitinn eykst því smá saman, þar til hann er kominn upp í ca. 65°C, sem nægir til þess að efnabreytingar eiga sér stað eða takmarkaður bruni. Við þetta eykst hitinn enn meir og hægur bruni étur sig eftir heyinu, þar til hann nær súrefni úr andrúmsloftinu og brýst út í ljós- um loga. SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 15

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.