Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Page 19

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Page 19
því þær þekkja hann oftast og hann á hæg- ara með að stjórna þeim. Ef eldur er í eða nálægt hesthúsi verða hestar oft svo hræddir við eldinn að erfitt er að ná þeim út. Þá er gott að breiða poka eða annað yfir augu þeirra á meðan þeir eru leiddir út. Ef nauðsynlegt reyæist að taka þá ut með valdi er best að fara fram fyrir þá, grípa fast í nasaholur þeirra og ýta þeim aft- ur á bak út. Kýr er oft erfiðara að eiga við, en vel get- ur þó verið að þær fari út sjálfkrafa, ef þær eru leystar og fjósdyrnar opnaðar. Ef nauð- synlegt er að beita valdi þá er best að draga þser á eyrunum því að þar eru þær viðkvæm- astar. Eftir að kýr hafa verið reknar út þarf að gæta þess að þær fari ekki inn í fjósið aft- ur, því reynsla sýnir að það getur komið fyr- ir. Vatn. Víða hagar svo til slökkvistarfs að vatn er af skornum skammti nálægt bæjum. Þess Vegna er nauðsynlegt að hafa strax samband við kunnugt fólk á staðnum til að fá upp- lýsingar um hvar best muni að ná í vatn og kemur sér þá vel, ef maður frá slökkviliðinu hefur farið á undan tækjunum til að gera sér grein fyrir aðstæðum í sambandi við það og annað. Þar sem sýnilega er lítið um vatn og langt að fara þarf að fara eins sparlega með það og unnt er. Þó er ótrúlegt hvað gera má við lítinn læk, og slökkviliðsmenn undrast oft hve mikið vatnsmagn er hægt að fá úr slík- um vatnsbólum. Ef lækurinn er grunnur má grafa ofan í hann gryfju, þar sem vatnið safnast fyrir, og dæla því þaðan, eða byggja upp stíflu á góðum stað. Til stíflugerðar má gjarnan nota þakjárnplötur, timbur, torf og grjót eða annað sem hendi er næst. Ef vill má byggja tvær stíflur, fljótgerð stífla lekur ávallt einhverju vatnsmagni, sem neðri stífl- an tekur við. Athugandi er að hafa nokkra tóma strigapoka á bílnum, sem fylla má með sandi til stíflugerðar. Þá má oft nota það vatn, sem rennur frá eldinum, og grafa gryfju til að safna því saman. Sparneytnir stútar eru að sjálfsögðu æski- legir þar sem vatn er af skornum skammti, stútar, sem hægt er að loka, þegar ekki er þörf fyrir vatn. Úðastútar nýta kælimátt vatnsins best og eru jafnframt sparneytnastir, en þurfa töluverðan þrýsting til að koma að gagni. Ef langar slöngulagnir milli elds og vatns eru nauðsynlegar er best að leggja strax eina slönguleiðslu, en ef fleiri slöngur eru til er rétt að leggja aðra lögn alla leið eða hluta af leiðinni vegna þess að tvær slöngulagnir veita mikið minni mótstöðu (minna þrýstings- tap) en ein. Ef tvær dælur eru til staðar er oft betra að raðtengja þær (hafa dæluna miðja vegu milli hinnar dælunnar og elds- ins) en að láta þær dæla samsíða, þvi að í löngum slöngulögnum verður mótstaðan svo mikil að þrýstingur og vatnsmagn minnkar verulega á leiðinni. Guðmundur Karlsson. Uppsátur— Nýsmíði— Viðgerðir— Efnissala 2 dráttarbrautir og 20 skipastæði skapa hagkvæm skilyrði fyrir fljóta og góða þjónustu. SKIPASMÍÐASTÖÐ NJARÐVÍKUR Strandgötu 6—10 Ytri-Njarðvík Sími 1250 — 1725 _ SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 17

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.