Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 21
Stökkvdih
ísafjarða.r
Lög um stofnun slökkviliðsins á ísafirði
voru sett þann 28. nóv. 1883. Árið 1938 var
liðið svo endurskipulagt, og kom þá fyrsti þíll-
inn Ford 1929 og er hann til enn og í góðu
lagi en þó ekki í notkun. Núverandi slökkvi-
stöð var byggð 1938 og er hún löngu orðin of
lítil, og efst á baugi hjá okkur núna er stækk-
un hennar, og hafa undirtektir bæjaryfirvalda
verið jákvæðar.
Núverandi tækjabúnaður slökkviliðsins er
þessi: Ford F600 árg. 1964 með 500 g.p.m.
Darley þriggja þrepa dælu og vatnstank. Ford
F600 árg. 1961 tækjabíll, í honum eru slöngur,
300 g.p.m. clymax dæla (færanleg), reykköf-
unartæki, súrefnistæki, úlpur, hjálmar og
stígvél. 34 volta rafstöð og ýmislegt fleira.
Hafnsögubúturinn Þytur er útbúinn til slökkvi-
starfa. 1 honum er 350. gpm. dœla, total froðutrekt,
tvö sett reykköfunartœki og slöngur og stútar.
SLÖKKVIUÐSMAÐURINN
Slökkvistööin á Isafirði.
Bedford dælubíll 1000 g.p.m. og t.h. 'Ein 400
g.p.m. dæla á vagni.
S.l. vetur var keyptur olíubíll af Esso, og
útbúinn sem vatnsbíll fyrir slökkviliðið.
Kaupverð var 350 þús., breytingar kostuðu
700 þús. fyrir utan sjálfboðavinnu slökkviliðs-
manna sem var um 400 klst.
Lýsing á tankbíl:
Bedford diesel með drifi á öllum hjólum,
5500 1. vatnstank og 430 1. tank f. froðuefni.
í bílnum er 300 g.p.m. clymax dæla og einnig
er hægt að nota olíudæluna sem var í bílnum,
til vara. Fjögur 2“ úttök með krönum og
slöngutengjum, slönguskápur með fjórum 30
m 2“ slöngur. Vatnsbyssa með stillanlegum
stút. Total millifroðutrekt, og einnig er hægt
að fá froðu úr vatnsbyssunni, þá er í bílnum
eitt sett af reykköfunartækjum.
Fyrst í stað var ætlunin að bíllinn yrði að-
eins vatnsbyrgðabíll, en þar sem við áttum
dælu og ýmislegt fleira var ákveðið, að útbúa
hann þannig að hann gæti unnið alveg sjálf-
stætt, og gæti það komið sér vel, því að hér
gerir stundum slíka ófærð að ekkert verður
komist nema á bílum með drif á öllum hjól-
um.
Við eigum 5 sett af reykköfunartækjum og
jafn mikið af varakútum, en loftdælu vantar
okkur og er hún ofarlega á óskalistanum. Þá
erum við að byrja að kaupa talstöðvar, og er
komin talstöð á slökkvistöðina og í einn bíl-
inn. Einnig eigum við tvær labb rabb stöðvar.
19