Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Síða 22
Núna í nóvember fengum við fyrstu Nomex
kápurnar og Ranger stígvélin, en ætlunin er
að endurnýja hlífðarfatnaðinn á tveim til
þrem árum.
Við höfum einnig slökkvistöð í Hnífsdal, um
4 km frá ísafirði þar er Land Rover slökkvi-
bíll með dælu, 900 1. vatnstank, reykköfunar-
tækjum og ýmsum búnaði. Þetta fyrirkomu-
lag hefur haldist síðan ísafjörður og Hnífs-
dalur voru tvö sveitarfélög. Er af þessu mikið
öryggi, þar sem ekki er óalgengt að vegurinn
á milli lokist vegna skriðufalla og snjóflóða.
Töluvert er til af gömlum útbúnaði t.d. stór
handdæla, strigafötur, handsnúinn lúður sem
notaður var til þess að kalla út slökkviliðið,
reykköfunarhjálmur með langri slöngu hand-
drifinni loftdælu, gaslugtir og ýmislegt fleira,
að ógleymdum gamla Ford og 12 m. stiga á
járnslegnum tréhjólum, og reynum við að
varðveita þennan búnað eftir bestu getu.
Á árinu 1976 voru útköll 25, brunatjón
tæpar 3 millj.
Síðan ég tók við starfi slökkviliðsstjóra
þann 9.8. 1977 eru útköll orðin 11.
Hjá slökkviliði ísafjarðar er einn fastráðinn
maður og er hann slökkviliðsstjóri, eldvarnar-
eftirlitsmaður og áhaldavörður.
Slökkvibíll í Hnífsdal.
20
Jón Ölafur SigurÖsson slökkvistjórinn á tsafiröi
við eina af slökkvibifreiöunum.
Slökkviliðsmenn viö œfingu.
Skýrsla slökkviliðsstjóra fyrir árið 1977
Á árinu voru útköll alls 30 og skiptast þannig:
Hús.......................... 18 útköll
Rusl ......................... 3 —
Skip ......................... 1 —
Bílar......................... 2 —
Utanbæjar..................... 1 —
Göbb ......................... 1 —
Grunur um eld................. 2 —
Utanhúss vegna plastfiskkassa 1 —
Aðstoð við amoniakleka...... 1 —
Æfingar voru 9, eða ca. 20 klst.
Helgarvaktir voru 16 frá 28/5—9/9.
Enginn stórbruni varð á árinu og tóku flest
útköllin um V2—1 klst. Slökkviliðið veitti
ýmsa aðra aðstoð á árinu t.d. við götuþvott,
lán á slöngum, losa stíflur úr ræsum o.fl.
Með bestu kveðju
Jón Ólafur Sigurðsson.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN