Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Blaðsíða 28

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Blaðsíða 28
skipsmanna í góðar þarfir, sprauta má e. t. v. í gegnum loftventla, eða í gegnum slökkvi- kerfi skipsins, ef til er, — og oft má komast að eldinum eftir leiðum, sem ókunnugir þekkja ekki. Elda í vélarrými er venjulegast best að slökkva með fíngerðum vatnsúða, kolsýru eða kvoðu. Oftast er hægt að kæla svo vélarrúm- ið með vatnsúða að hægt er að komast alveg að eldstæðinu eftir stutta stund. Möguleiki er einnig á að komast að eldi í vélarrúmi með því að skríða eftir öxulhúsinu, sem ligg- ur neðst í kili skipsins og fram í vélarrúm. Algengustu skipseldar á íslandi eru í vél- bátum og algengasta orsökin mun vera íkviknun frá olíukyndingu í vistarverum. Slíkir eldar eru oft erfiðir viðfangs vegna þess hve erfitt er að komast að þeim, en oftast er gengið ofan í káetu skipverja niður um þrönga lúgu á þilfari, ofan lóðréttan stiga. Vegna þess hve útgangur er þröngur hefur hiti og reykur ofc safnast þar fyrir og ógern- ingur að komast niður fyrr en búið er að kæla káetuna. Best er að gera það með fín- gerðum vatnsúða, sem látinn er dreifast um káetuna eins ofarlega og hægt er, því þar er hitinn mestur og vatnið hefur þar mest áhrif. Oftast er mikill eldsmatur þar niðri og eldurinn ekki bundinn við neinn sérstakan stað, þess vegna hefur úði þar mest áhrif. Þegar tekist hefur að kæla andrúmsloftið í klefanum nægilega mikið þarf að fara með grannan stút niður og slökkva smáelda og glæður. En mjög varasamt er að fara þannig niður án þess að hafa öndunartæki til að byrja með, eða þar til gengið hefur verið úr skugga um að súrefni sé nægilegt. Ef ógerningur reynist að slökkva eldinn á þennan hátt, má oft komast að honurn með því að brjóta skilrúm milli vélarrúms og káetu. Húseigendur — Húsbyggjendur Tökum að okkur glerísetningar, fræsum fyrir tvöföldu verksmiðjugleri. Skiptum um glugga. Einnig tökum við að okkur alla almenna trésmíða- vinnu, jafnt úti sem inni. Framleiðum glugga, útidyrahurðir og lausfög. Vélavinnum efni af lager samkvæmt pöntum. Einnig útvegum við allt efni sem til þarf. Erum með gler frá ÍSPAN. Tökum mál og gerum tilboð ef óskað er. — Eigum fyrirliggjandi efni til glerísetningar og öll járn á lausafög. Einnig smíðum við sumarbústaði eftir pöntun, eigum teikningar af þremur stærðum og sýningarbústaður er á staðnum. Kynnið yður verð og teikningar. TRÉSMÍÐI S.F. v/Reykjanesbraut, Njarðvík. Símar: 3122 og 3457. 26 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.