Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Blaðsíða 7

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Blaðsíða 7
Þetta er frá námskeiðunum hennar Kristínar. Þar eru allir í sólskinsskapi. Sjá næstu síðu. öryggisbeltin, var tilkynnt á nokkrum tungumálum. Einnig var sagt hvað flogið yrði í mikilli hæð. Svo fór vélin á loft. Eftir nokkum tímakom maturinn. Þau voru öll orðin svöng. Eftir matinn sofnaði Guðmundur. Hann svaf lengi. Þegar hann vaknaði gaf flugfreyjan honum appelsín og hann borðaði súkkulaði með. Svo kom að því að þau lentu í Ástralíu. Þegar þau stigu út úr vélinni kom heitt loft á móti þeim. Þegar þau voru búin að fá töskumar kom íslenskur læknir að sækja þau. Hann var við nám í sjúkrahúsinu þar sem pabbi Guðmundar ætlaði að vera. Hann heilsaði þeim öllum og sagðist heita Einar. Bíllinn hans beið fyrir utan. Þau settust inn í bílinn og Einar ók þeim heim í nýja húsið þeirra. Hann sagðist búa við hliðina á þeim. Það þótti Guðmundi gaman. Einar átti átta ára gamlan son. Einar hafði tekið á móti flutningnum og komið öllu saman fyrir inni í íbúðinni. Þau urðu heldur en ekki hissa þegar þau sáu að allt var í röð og reglu. Guðmundur fékk stórt og mjög sólríkt herbergi og þar var búið að koma fyrir rúmi, borði og stól. Hann settist niður og fór að skoða myndabók sem amma hans hafði gefið honum áður en hann fór. Einar bauð þeim í mat til sín. Það þótti Guðmundi mjög gaman. Konan hans Einars tók mjög hlýlega á móti þeim. Þau voru þar um nóttina, en morguninn eftir fóru þau yfir í nýja húsið. Uti í garðinum var heitur pottur, borð og stólar. Guðmundur fékk að borða úti á hverjum degi þegar sólskin var. Eina nótt dreymdi hann að Jesú kæmi til sín, snerti eyrað á honum og segði: — Guðmundur minn, þú munt fá heym á eyranu af því að þú hugsar svo fallega. Þegar hann vaknaði heyrði hann alveg jafnvel með báðum eyrum. Hann sagði mömmu sinni drauminn og batann. Mamma hans varð svo glöð að hún fór með hann til Einars og sagði honum fréttirnar. Þau fögnuðu öll og Einar gaf Guðmundi lítið vasaútvarp. Þennan dag borðuðu þau öll úti og Einar og fjölskylda hjá þeim. Þau voru öll mjög hamingjusöm. Eftir matinn fóru þau öll í dýragarðinn og voru þar allan daginn. S vo komu jólin. Þá komu gjafir frá ömmu og afa og skyldfólki þeirra. Einar og fjölskylda skemmtu sér með þeim á jólunum. Viðar fékk bæði bíl og bók frá foreldrum sínum. Strákurinn hans Einars hét Viðar og þeir léku sér alltaf saman. Um vorið komu afi og amma í heimsókn og voru hjá þeim í tvo mánuði. Það þótti þeim öllum gaman. Þau skemmtu sér vel, ferðuðust um, fóru í búðir og versluðu. Nú lýkur þessari sögu. Fjóla Björk. Björn G. Eiríksson sérkennari Tvö smáljóð: HVÍLD Leggur aö landi lítil bára. Fauskur úr grasi fýkur. Gárar viö grænan bakka glettinn árstraumur. Lítil lækjarsytra líöur niður, Ijúfur ilmur úr grasi. Þýtur úr skógi sunnanvindur úr vestri. Svo hefur Austurland sætast heilsað. Senn til fjalla sígur sólin bjarta. Sofa fuglar smáir sefur bára á sjó. Sefur gras á túni sefur síli í læk. Hljótt fellur húm yfir húsin lágu. Svefn sígur á brár. B.G.E. VORKOMA Yfir hæðir háar himinn Ijómar skær. Daggir sindra smáar sytrar lækur tær. Loft um þeyrinn þýtur þrymurfossinn hár. Klakabrynju brýtur brestur ísinn klár. Lóur kátar kvaka kætast börnin smá. Fiskar vötnin vaka vorið kemur þá. Snjór í lautum leysist lyftast grösin smá. Vatn úr giljum geysist gaman veröur þá. B.G.E. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALACSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.