Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Blaðsíða 28

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Blaðsíða 28
Rósa Björg Helgadóttir eurythmisti: Umfjöllun um kenningar Rudolfs Steiner og hiynjandilist Rudolf Steiner höfundur og upphafsmaður hrynjandilistar fæddist þann 27. febrúar 1861 á landamærum Mið- og AusturEvrópu, nánar tiltekið í Kralljevik. Það tilheyrði á þeim tíma Ungverjalandi en í dag Júgóslavíu. Foreldrar Steiners voru austurrrískir. Faðir hans starfaði sem járnbrautarsímritari við austurrísku járnbrautina. Vegna starfsins þurfti fjölskyldan oft að flytjast á milli landshluta og ólst því Steiner upp á mörgum stöðum í Austurríki. Árið 1879 lauk hann stúdentsprófi 18 ára gamall. Síðan hóf hann nám við Tækniháskóla Vínarborgar og lagði stund á náttúruvísindi og heimspeki og lauk þaðan námi. Nokkrum árum síðar eða 1891 varði hann doktors- ritgerð í heimspeki. Á þessum árum kynntist Rudolf Steiner mörgum af þekktustu listamönnum og heimspek- ingum sem héldu uppi hámenningu Evrópu, þar á meðal Nietzsche og Hegel. Rudolf Steiner var það sem kallað er á þýsku „Geisteswissenschaftler" sem er skilgreint sem vísindamaður andans og hinna andlegu heima. Hugtakið „Anthroposophie“ sem þýðir „mannspeki eða viskan um manninn“ er það nafn sem hann gaf heimspeki sinni. Eftir hann liggja ógrynni bóka og fyrirlestra urn margvísleg efni svo sem ritsmíð hans sem ber titilinn „Heimspeki frelsisins", ennfremur „Hvernig öðlastmaðurþekkingu æðri heima“. Þessi rit innihalda meginatriði um andlega veru mannsins. í flesum löndum Evrópu og mörgum löndum utan Evrópu eru skólar og barnaheimili, sem byggja á kenningum hans urn uppeldi barna. Einnig sjúkrahús, heimili fyrir vangefna og lyfjafyrirtæki og listaskólar, en á öll um þessum sviðum og fleirum kom Steiner með vísbendingar og opnaði nýjar leiðir. Víðsvegar um sveitir Evrópu eru lítil samfélög þar sem reynt er að Rósa Björg Helgadóttir. samræma iðkun lista, hagkerfi og lífefliræktun byggðum á kenningum Steiners. Ennfremur eru starfandi bankar sem lána fé á öðrum forsendum en tíðkast. í arkitektúr og listum kom Steiner einnig við sögu. Hann teiknaði m.a. sjálfur byggingu undir háskóla andlegra vísinda. Háskólinn heitir Goetheanum og er staðsettur í Domach í Sviss. Hér verð ég að láta staðar numið urn Steiner og byrja að fjalla um það sem ég ætlaði að leggja aðal- áherslu á hér en það er „Eurythmie“ eða „Hrynjandilist“. Eurithmie er grískt orð en það þýðir fallegur taktur. Ég hef reynt að þýða þetta hugtak á íslensku með orðinu „hrynjandilist“ eða hrynjandi. Hrynjandi er hreyfilist eða sjáanlegur söngur eins og Rúdolf Steiner vill nefn þetta listform. Tilurð þess var þannig, að fólk kom að máli við hann og spurði hvort ekki væri hægt að göfga danslistina. Hrynjandi er og verður fyrst og fremst listgrein, eins og allar aðrar listgreinar, já, jafnvel fremur en aðrar listgreinar. Hrynjandi er ekki dans eða látbragð, heldur hreyfilist, sjáanlegur söngur, sköpun andans, sem með fjölbreytilegum hreyfingum handa og fóta, með litbrigðum búninga, blæja og ljósa, ákveðnu sviðsmunstri og táknum eða hreyfingum sem aftur er gerð með mannslíkamanum gerir mál og tóna sýnilega. Þannig er leitast við að tjá innra eðli viðfangsefnisins, hvort sem það er í formi ljóðs eða tónverks. Hrynjandi er sköpun andans og verður eingöngu að skiljast sem slík. Hljóð- og tónhrynjandi eru tvær mismunandi listgreinar þó náskyldar séu. Báðar hafa að markmiði að opinbera og gera sjáanlegt það sem andlegt er og ekki sjáanlegtmeð okkar venjulegu augum. Ef við ætlum að njóta hrynjandi áþann hátt sem Rudolf Steiner upphafsmaður hennar ætlaðist til, verðum við að láta hana verka á okkur handan vitsmunasviðsins. Það ætti því ekki að koma á óvart, að hrynjandi hefursterkan lækningamátt. Lækningahrynjandi er víðtækt svið út af fyrir sig og frá þeirri hlið hrynjandi greini ég síðar. Munurinn á hljóð- og tónhrynjandi er fyrst og fremst fólginn í mismun á eðli talaðs máls og tónlistar. Talað mál er tjáning sálarinnar í sérhljóðum og samhljóðum sem eiga upptök sín í hljóðum á mismunandi svæðum talfæra okkar. Hljóðhrynjandi er tjáning hvers einstaks hljóðstafs, tjáning sambands þessara hljóða innbyrðis, svo og tjáning á merkingu þess sem viðfangsefnið inniheldur. Við skynjum ekki aðeins listræna tjáningu þegar við horfum á hljóðhrynjandi úr hreyfingum þess sem tjáir sig með hreyfingu, heldur einnig eðli, merkingu, hrynjandi, málfræðilegt samhengi og skáldlega uppsetningu ljóðsins eða textans sem hreyfður er. Til að þetta geti orðið, þarf sá sem hrynjandi iðkar að leggja í hreyfingu sína allan þann ákafa og alla þá ást sem tengir hann í svo ríkum mæli við listina að enginn sjáanlegur

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.