Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Blaðsíða 11
þessa tillögu Vilhjálms og var það
einróma samþykkt. Var þá dagskrár-
málum lokið.
Önnur mál:
4) Ásgerður Ingimarsdóttir kynnti
erindi Umsjónarfélags einhverfra.
Félagið hyggst láta þýða og gefa út
bók um málefni einhverfra í samvinnu
við bókaforlagið Örn og Örlygur.
Félagið fer frarn á að Öryrkjabanda-
lagið veiti ábyrgð að upphæð 500 þús
kr. vegnaútgáfunnar—veraeinskonar
bakhjarl útgáfunnar ásamt félaginu.
Samþykkt einróma.
5) Erindi frá Landssamtökum
hjartasjúklinga. Samtökin mælast til
þess að Ö.B.Í. taki þátt í eða styðji
svonefnda Hjartagöngu 27. júní n.k.
Ásgerður kynnti málið nánar og
greindi frá því sem gert hefði verið í
fyrra. Samþykkt að styðja Hjarta-
gönguna með auglýsingum, þar sem
hvatt yrði til þátttöku. Jafnframt að
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson verði
fulltrúi bandalagsins í undirbúnings-
nefnd göngunnar.
6) íþróttir fyrir alla. íþrótta-
hreyfingin beitir sér fyrir stofnun
samtaka um fþróttir fyrir alla. Ö.B.Í.
er boðið að gerast þátttakandi í stofnun
samtakanna. Málið var kynnt af
Ásgerði sem las upp bréf frá Í.S.Í.
þessa efnis. Aðild var samþykkt og
Sigrún Bára Friðfinnsdóttir valin til
að taka þátt í undirbúningi samtakanna.
7) Kynntur vardómurHæstaréttar
vegna kröfu Öryrkjabandalagsins um
meðalgöngu í svonefndu „Sæbrautar-
máli“. Hæstiréttur hafnaði kröfunni.
8) Umsögn um frumvarp um
barnalífeyri. Flm.: Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir o.fl. Form. falið að hafa
samband við flutningsmann vegna
ákveðinnar rökvillu í frv., en það er
endurflutt frá síðasta þingi.
9) Tillaga frá formanni um
aðalfundardag bandalagsins í haust
og lagt til að meginumræðuefni
fundarins verði: Ferðaþjónusta við
fatlaða á landi hér. Samþ. að þetta efni
yrði valið, sömuleiðis að fram-
kvæmdaráði yrði falið að finna
fundardag. Sömuleiðis lagt til, að inn
í ársskýrslu bandalagsins verði bætt
stuttum skýrslum um starf hvers
aðildarfélags.
Fleira var svo ekki fyrir tekið.
H.S.
Styrkveitingar
Öiyrkj abandalagsins
Á stjórnarfundi Ö.B.Í., sem haldinn var 28. apríl sl. voru eftirfarandi
styrkveitingar samþykktar, annars vegar til félaga bandalagsins til sérstakra
verkefna á þeirra vegum og hins vegar til nokkurra aðila tengdra bandalaginu
eða skyldrar starfsemi. Einstaklingastyrkir urðu engir að þessu sinni, en
umsóknir nokkrar.
Til félaga bandalagsins var úthlutað:
Blindrafélagið:..........................50.000
Félag aðstandenda alzheimersjúklinga...100.000
Félag nýmasjúkra........................200.000
Geðhjálp................................450.000
Geðverndarfélag íslands.................200.000
Gigtarfélag íslands.....................350.000
Heyrnarhjálp............................200.000
LAUF....................................250.000
MS-félagið..............................200.000
Parkinsonsamtökin.......................300.000
SÍBS ...................................450.000
Sjálfsbjörg.............................450.000
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.......300.000
Styrktarfélag vangefinna................450.000
Umsjónarfélag einhverfra................300.000
Umsóknir voru misháar og því býsna örðugt að geraöllum til hæfis. Til
gamans má geta þess að umsóknarupphæðir voru allt frá 2.4 millj. niður
í 50 þús.
Það var framkvæmdaráð bandalagsins, sem gerði tillögur til stjórnar að
vandlega fhuguðu máli og fengu þær tillögur fullan stuðning í stjórninni.
Til annarra fór úthlutun þannig:
Nefnd um útgáfu bæklings
um ferlimál...........................200.000
íþróttasamband fatlaðra...............400.000
Námskeið vegna aðstand. fatl. barna
og ungm...............................100.000
Tölvumiðstöð fatlaðra.................250.000
Samtals námu styrkveitingar bandalagsins 5.2 millj. að þessu sinni.
Mun mörgum koma vel þessi mikilvæga aðstoð til þess að hrinda í
framkvæmd mörgu þörfu verkefni í þágu félaganna.
H.S.
HLERAÐ í HORNUM
Útgerðarmaðureinn sótti um lán til að
lengja bát sinn. Á bankastjórnarfundi
lagðisteinn bankastjórinn sérstaklega
á móti lánveitingu, þar sem báturinn
væri fullveðsettur nú þegar. Beiðninni
var hafnað. Nokkrum dögum síðar
kemur sami bankastjóri inn til félaga
síns fölur og fár og segir: „ Við verðunr
að lána manninum til að lengjabátinn“.
Hinn bað forviða um skýringu á
umskiptunum. „Jú sjáðu, við verðum.
Hann er búinn að saga bátinn sundur,
svo veðið er ónýtt“.
FKÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS