Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Page 17
Séra Davíð Baldursson:
HÚS, SEM TEKUR
ÞÉR OPNUM ÖRMUM
Kirkjumiðstöð Austurlands er
samstarfsvettvangur um það bil
30 safnaða á Austurlandi. Til þessa
var stofnað í júní árið 1985 í því
skyni að auka fjölbreytni þeirrar
þjónustu, sem kirkjan veitir og til
þess að koma betur til móts við
ólíkarþarfir og kröfur almennings.
Sex árum síðar eða 25. ágúst árið
1991 varvígðmiðstöðþessastarfs
við Eiðavatnið gegnt orlofsbúðum
BSRB, nær vegi.
Byggingin er um 600 fm. að
grunnfleti á einni hæð og skiptist í
svefnskála með 10 herbergjum,
sem hvert um sig hýsir 4 miðað við
efri kojur (alls 40) eða tvo í rúmum
(alls 20). Einnig er góður krókur í
svefnskála, sem nýst getur sem
setustofa, fundarherbergi eða fyrir
afþreyingu inni við.
Þá er annar skáli, sem geymir
rúmgóðan sal, sem nýtist bæði
sem borðsalur og til almennra nota.
Fullbúið eldhús er þar og einnig
herbergi fyrir starfsfólk (7-8 alls).
Umhverfið utanhúss er frá-
gengið. Stórt svæði fyrir framan
anddyrið er hellulagt og hellulögð
stétt að bílastæði og einnig frá
anddyri meðfram húsinu og að
bakdyrum.
Þá hefur stjórn Kirkjumið-
stöðvarinnar skipulagtgöngustíga
í samvinnu við Svæðisstjórn á
Austurlandi og Þroskahjálp og þeir
aðilar unnið að og kostað þann
þátt að öllu leyti. Ná göngustígar
með bundnu slitlagi frá bygging-
unni niður að vatni, þar sem boðið
er upp á báta til siglinga á vatninu
og einnig nær göngustígur að
íþróttavelli, sem er þar skammt
frá.
Öll hönnun byggingarinnar var
miðuð við hreyfihamlaða og allt
Kirkjumiðstöðin við Eiðavatn.
aðgengi ersamkvæmt ítrustu kröf-
um, enda er mikilvægur þáttur í
starfsemi Kirkjumiðstöðvarínnar
þjónusta við fatlaða og aldraða.
Jafnframt nýtast byggingarnar vel
sem sumarbúðir fyrir börn og
ungmenni og aðra alhliða starf-
semi. Auk heldur hefur áhersla
verið mikil á öryggisþáttinn og er
í húsinu fullkomið brunavarna-
kerfi, sem vaktað er af Securitas.
Nauðsynlegt er að benda á þessi
atriði, vegna þess að stundum er
látið að því liggja, að enn sé lítil
hugsun í þjóðfélaginu á því að
sníða aðgengi innan og utan
bygginga að þörfum hreyfihaml-
aðra. Ekki skal draga yfir það
fjöður, að vissulega er víða pottur
brotinn, en þeim mun ríkari ástæða
til þess að benda á það sem vel er
gert og urnhy ggj a h vað þetta varðar
höfð að leiðarljósi.
Enda þótt þjónusta Kirkju-
miðstöðvarinnar miðist fyrst og
fremst við Austurland, er öðrum
velkomið að nýta þá aðstöðu og
eftiratvikum þann starfskraft, sem
gæti verið þar til staðar.
Dvalargestum stendur margt
til boða, auk aðstöðunnar, sem
fyrir er. Sund (með vissum ann-
mörkum þó), reiðtúrar, veiði í
vatninu, bátsferðir, dagsferðir
(skoðunarferðir í rútu), ásamt
andlegu fóðri bæði í gamni og
alvöru, svo nokkuð sé nefnt.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér þetta enn frekar er bent á að
hafa samband símleiðis við starfs-
mann Kirkjumiðstöðvarinnar
Ásgerði Eddu Jónsdóttur vs. 97-
12349 eða hs. 97-11314 eða
bréflega, utanáskrift: Kirkju-
miðstöðAusturlands,Pósthólf77,
700 Egilsstaðir.
Davíð Baldursson form. KMA.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS