Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Blaðsíða 23
minjagripa í virkinu, ásamt hreinsun,
garðvinnu og allri umhirðu á svæðinu.
Að loknum erilsömum degi var
snæddur kvöldverður á veitingahúsi í
Bourtange í boði WEDEKA.
Fimmtudaginn 30. september var
haldið í Zodiak fyrirtækið, sem
rekur 3 vinnustaði með samtals 150
starfsmenn, sem eru prentsmiðja, aug-
lýsingagerð, myndatökur, tölvu-
vinnsla, bókhald, pökkun og póst-
sendingaþjónusta.
Næst var haldið til Nienoord,
sem erfjölskyldu- og skemmtigarður,
sem rekinn er af Novatec- fyrirtækinu,
sem er móðurfyrirtæki nokkurra fyr-
irtækjaíjám- og tréiðnaði, pökkun og
sérhæfðum fyrirtækjum í málningu
og yfirborðsmeðhöndlun. í þessum
skemmtigarði, sem er opinn á sumrin,
er herragarður frá árinu 1525 og höll
frá árinu 1700, leikvöllur fyrir börn,
safnjámbrautarlestafyriráhugamenn,
siglingar fjarstýrðra báta, bátsferðir,
ferðir á hestvögnum og jámbrautar-
lestum, minigolf, sundlaug, tjaldstæði,
dýragarður, veitingahús o.fl.
Á svæðinu eru flestir starfsmenn
öryrkjar, sem sjá um þjónustu við
gesti, viðhald húsa, tækja og umhirðu
garðsins.I garðinum starfa einnig 120
sjálfboðaliðar á aldrinum 17-70 ára
og er nokkur hluti þeirra unglingar á
aldrinum 17-20 ára sem þarna eru í
endurhæfingu eftir erfiða æsku eða
hafa lent einhverra hluta vegna
utangarðs í lífinu.
Að loknum hádegisverði í
Nienoord var haldið til Novatec-
Tolbut, þar sem vinna 350 starfsmenn.
Fyrst var skoðuð framleiðsludeild fyrir
húsgögn úr furu, sem eingöngu eru
framleidd eftir pöntunum, vélsmiðja,
þar sem saman fór vinna allt frá handa-
vinnu eingöngu og upp í alsjálfvirkar
tölvustýrðar suðuvélar og rennibekki.
Bólstrun á setum í stóla, fullkominn
búnaður til hreinsunar og málningar á
málmhlutum, ásamt málningu og
yfirborðsmeðhöndlun á húsgögnum.
Pökkunardeild fyrir kornvöru og
átöppun á olíum til matar. Loks skal
nefna nokkuð stóra deild, þar sem
unnið er að flokkun á gömlum fatnaði
til endurvinnslu. Fatnaðurinn er flokk-
aður eftir efnum, tölur og aukahlutir á
flíkunum voru skomirfrá, en þær síðan
skornar niður í búta í ákveðnum
stærðum. Flver efnisgerð var síðan
pressuð í balla til útflutnings sem filt
og stopp í húsgögn o.fl.
Að lokum var skoðuð kirkja frá
árinu 1200, sem Novatec er með í
endurbyggingu. Fyrirtækið annast
verkið, allt frá vinnu arkitekta til
smiða, málara, múrara, verkamanna
og smíði innréttinga. Um kvöldið þáðu
forráðamenn NOS V ogfyrirtækjanna
sem heimsótt voru í ferðinni kvöld verð
í boði okkar ferðalanganna, þar sem
skipst var á gjöfum.
Föstudaginn 1. október var síðasti
dagur heimsóknarinnar. Þá var
heimsótt Synergon fyrirtækið, sem er
móðurfyrirtæki margra verksmiðja
með samtals um 1000 starfsmenn. Þeir
reka fyrirtæki í málmiðnaði, sem fram-
leiða m.a. reiðhjól, fjaðrir og gorma
ýmiss konar, í fata- og pappírsiðnaði,
þar sem framleidd eru áklæði og
fataefni, fatasaumur og sníðavinna,
prentun, bókband og framleiðsla á
pappírsvörum. Fyrirtæki í byggingar-
iðnaði sem skila fullbúnum húsurn
með garði og öllu saman, ásamt verk-
smiðju í svepparækt. Eftir fyrirlestur
um starfsemi Synergon var skoðuð
verksmiðja sem framleiðir fullbúna
húshluta í einingahús, ásamt verk-
smiðju í svepparækt í 3.300 m2 hús-
næði sem framleiðir 15 tonn af svepp-
um á viku fyrir hollenska markaðinn
og til útflutnings. Þó svo að mikið af
svepparæktinni sé vélvædd, er þarna
mjög mikil vinna sem ekki er hægt að
vélvæða, svo sem hreinsun á tækjum,
tínsla á sveppunum, hreinsun, pökkun
og umönnun.
Að lokum skal fjallað um mjög
merkilega starfsemi Synergon,
sem er greiningar- og þjálfunarstöð
fyrir fatlaða. Áður en fatlaðir komast
í vinnu á vernduðum vinnustöðum,
þurfa þeir að fara í gegnum greiningu,
þar sem fundið er út hverjar þarfir
hvers og eins eru, hvaða starf hentar
eða hvort viðkomandi hefur getu til að
sinna einhverju starfi. Greining tekur
6-10 daga og hefst á því að líkamlegt
og andlegt ástand er kannað eftir
sérstökum aðferðum. Þannig er fundið
út hvaða hæfni viðkomandi hefur yfir
að ráða með tilliti til að stunda
líkamlega erfiða vinnu eða vinnu þar
sem athygli og hugsunar er þörf,
útivinnu eða innivinnu, sitjandi eða
standandi vinnu o.s.frv. Næsta stig
greiningar er að prófa viðkomandi í
þeim störfum sem álitin eru koma til
greina út frá takmörkunum eða hæfni.
Það er einnig gert í greiningarstöðinni
á mörgum misstórum vinnustofum í
mörgum greinum byggingar-, málm-
, véla- og rafeindaiðnaðar, auk ýmissa
starfa í samsetningarvinnu. Þarna fær
viðkomandi að reyna sig á staðnum
og þannig er fundið út hvaða starf
henti og þjálfun ákveðin. Þegar búið
er að finna út hvaða starf hentar
hverjum einstaklingi og grunnþjálfun
lýkur, er honum útveguð vinna við
hæfi á einhverjum hinna fjölmörgu
vinnustaða á svæðinu.
Ef einstaklingar sem hafa fengið
greiningu og þjálfun í einhverju
ákveðnu starfi, en fá ekki starf við sitt
hæfi strax, eiga þeir möguleika á
tímabundnu starfi ígreiningarstöðinni
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS