Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Síða 22
Þorsteinn Jóhannsson framkv.stj.:
Náms- og kynnisferð
til Hollands á vegum Sambands verndaðra vinnustaða
Ferðin var skipulögð af hollenska
sambandinu fyrir vemdaða vinnu-
staði NOSV og voru tveir starfsmenn
sambandsins með í ferðum.
Ferðalangarvoru 14,10 forstöðumenn
frá 7 vernduðum vinnustöðum og 4
makar. Frá Öryrkjabandalagi Islands
fóru forstöðumenn Saumastofu og
Örtækni, þau Guðrún Ólafsdóttir og
Einar Aðalsteinsson, ásamt undirrit-
uðum.
Flogið var til Amsterdam þriðju-
daginn 28. september og síðan haldið
til Groningen, sem er borg í Norður-
Hollandi. Fyrirtækin sem heimsótt
voru eru öll á svokölluðu Groningen-
svæði, sem kalla mætti Groningen-
sýslu til samlíkingar við íslenska
staðhætti.
Miðvikudaginn 29. september var
dagurinn tekinn snemma og farið
í fyrsta fyrirtækið í ferðinni,
WEDEKA-Veendam. Hér var fyrst
farið yfir hollenska kerfið fyrir
verndaða vinnustaði, og skal því lýst
hér í grófum dráttum. Starfsmenn
vinnustaðanna eru fólk með líkamlega
fötlun, geðræn og félagsleg vanda-
mál.
Á hverju svæði (sýslu) í Hollandi
vinna bæjarfélögin saman að mál-
efnum fatlaðra og sameinast um rekst-
ur vernduðu vinnustaðanna sem ann-
ars eru reknir eins og hver önnur fyrir-
tæki í landinu. Fyrirtækin eru í eigu
sveitarfélaganna.I landinu öllu eru 102
verndaðir vinnustaðir með samtals
83.000 öryrkja í vinnu auk 8.100
starfsmanna í stjórnunarstöð-
um.Vinnustaðireru starfræktiríöllum
helstu greinum iðnaðar, með eigin
framleiðslu eða sem undirverktakar, í
þjónustu ýmiss konar og verkefnum
fyrir sveitarfélögin. Hvert fyrirtæki er
sjálfstætt með eigin sölustarfsemi á
frjálsum markaði, eigin stjórn, fram-
kvæmdastjóra og aðra stjómendur, þar
sem m.a. sitja í stjórn fulltrúar þeirra
sveitarfélaga sem aðild eiga að
viðkomandi fyrirtæki. Á hverju svæði
Þorsteinn Jóhannsson.
(sýslu) starfa svæðisstjórnir undir
stjórn NOSV, sem er yfirstjórn allra
vinnustaðanna. INOSV eru 11 stjórn-
armenn sem jafnframt eru formenn
svæðisstjómanna.
Hlutverk NOSV er m.a. að safna
upplýsingum sem varða öryrkja,
annast rannsóknir, móta stjórnar-
stefnu, gerð þjálfunar„prógramma“,
efla og halda vörð um atvinnu öryrkja
og annast kynningarstarf.
r
AGroningen-svæðinu eru 8
móðurfyrirtæki með fjölda minni
fyrirtækja innan sinna vébanda og er
Wedeka eitt þeirra með 1.450
starfsmenn, auk 135 í stjórnunarstörf-
um á 10 vinnustöðum/verksmiðjum.
WEDEKA rekur pökkunarfyrir-
tæki, framleiðslu á rafeindabúnaði,
vélaverkstæði, vélsmiðjur, samsetn-
ingarverksmiðjur margskonar, fata-
verksmiðjur, bólstrun og framleiðslu
húsgagna, hönnun og smíði eining-
arhúsa, hönnun, byggingu og viðhald
garða, rekstur dýragarðs, gróðurhús,
garðrækt, skurðahreinsun, hreingern-
ingar og ræstingu.
í WEDEKA-Veendam sem nú var
skoðað eru margar deildir í mismun-
andi starfsemi. Skal þar fyrst nefna
samsetningu álæsinga- og veltibúnaði
fyrir glugga, lóðning, vírun og sam-
setning á rafeindabúnaði, samsetning
á gúmmíreimum og hosuklemmum,
samsetning töflukassa og pökkun.
Þarna er fullkomið véla- og blikk-
smíðaverkstæði með tölvustýrðum
vélbúnaði, ásamttækjumtil yfirborðs-
meðhöndlunar á málmhlutum.
Frá WEDEKA-Veendam var
haldið í dýragarð og útivistarsvæði í
Groningen. WEDEKA er undirverk-
taki hjá borginni og sér alfarið um
rekstur svæðisins. Þarna vinna 8
starfsmenn við umhirðu á dýrunum
og garðinum sjálfum.
Á öðrum svæðum í Groningen
starfa 120 starfsmenn á vegum
WEDEKA við hreinsun og viðhald
garða og útivistarsvæða. Fyrirtækið
fær greitt samkvæmt samningi fyrir
viðhald og vinnu á hverju svæði.
Næsti viðkomustaður var
WEDEKA-Stellingen. Þar vinna
120 starfsmenn, 70 smiðir og 50 verka-
menn í verksmiðju sem framleiðir
skrifstofuhúsgögn úrfuru. Þessi verk-
smiðja sér um alla þætti framleiðsl-
unnar, allt frá hönnun til tilbúinnar
vöru í eigin framleiðslu og undir-
verktakastarfsemi.
Framkvæmdastjóri þessa fyrir-
tækis tjáði mér, að ef þessi verksmiðja
með 120 starfsmenn væri útbúin með
fullkomnustu tæki í sjálfvirkni, mætti
reka verksmiðjuna með 25 starfs-
mönnum. Þar sem fyrirtækið er vel
samkeppnishæft í verðum og gæðum,
eru engin áform uppi um meiri sjálf-
virkni í framleiðslunni, enda mark-
miðið að skapa sem flest störf.
Síðasti viðkomustaðurþennan dag
var borgarvirkið B ourtange, sem byggt
varárið 1742. Innan virkismúrannaer
bæjarfélag, þar sem flestir íbúanna
eru eldri borgarar. Þarna eru auk íbúð-
arhúsanna, varðturnar hermanna og
fallbyssur, kirkja, bænahús Gyðinga,
klaustur, hveitimylla, fyrrverandi
bústaðirhermanna, verslanir, kaffihús,
hótel og veitingahús, söfn, vinnustaðir
ýmissa listamanna, þjónustumiðstöð
fyrir ferðamenn o.fl. WEDEKA sér
um rekstur á ferðaþjónustu, sölu