Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Síða 38
Jóna Sveinsdóttir iv. formaður ÖBÍ:
Endurminningar frá formanns-
tíð í Öiyrkjabandalagi íslands
að var árið 1975 sem ég kom inn
í stjórn Öryrkjabandalags íslands
sem fulltrúi Foreldra- og styrktarfélags
heyrnardaufra, en félagið mitt gekk í
bandalagið nokkrum árum áður. Eg
hafði því verið í stjórn Öryrkjabanda-
lagsins í 4 ár, þegar ég var kosin
formaður á aðalfundi í október 1979
og gegndi ég því embætti til 31. des-
ember 1981. Það var ekki talið ráðlegt
að skipta um formann á aðalfundi eins
og venja var, því að ,,Ar fatlaðra" var
1981 og ekki heppilegt að skipta um
formann áður en árið var liðið. Þess
má geta að á þessum árum var sá hátt-
ur hafður á að hvert aðildarfélag átti
rétt á að „eiga formanninn“ í 2 ár og
fór það eftir röð. Það var því komið að
mínufélagi 1979 - 1981 ogþarmeðá
því merkisári „Ári fatlaðra“.
Ég mun núna á eftir geta helstu
atriða frá minni formannstíð, en ég
mun dvelja lengst við „Ár fatlaðra“,
því að það er mér mjög minnisstætt og
ekki úr vegi að rifja upp allt það mikla
starf sem ÖBI lagði af mörkum á
þessu merkisári.
Frá árinu 1980 eru nokkur atriði
minnisstæð eins og t.d. „Ráðstefna
um mennta- og atvinnumál“, sem hald-
in var dagana 11.-12. október 1980 í
Hagaskóla. Öryrkjabandalag Islands
og Landssamtökin Þroskahjálp stóðu
sameiginlega að ráðstefnunni og gæti
ég trúað að það hafi verið fyrsta verk-
efnið sem þessi samtök unnu saman
að.
Á þessari ráðstefnu voru margir
aðilar sem fluttu stutt erindi og ávörp
eins og þáverandi félagsmálaráðherra
Svavar Gestsson, menntamálaráð-
herra sem var Ingvar Gíslason, læknar,
sérkennarar, félagsráðgjafi, sálfræð-
ingur og aðilar frá Öryrkjabanda-
laginu, Þroskahjálp, Endurhæfingar-
ráði, Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
B.S.R.B., A.S.Í. ogV.S.Í.
Síðan var unnið í umræðuhópum
og komu margar góðar tillögur og
ályktanir frá þeim. Ráðstefnan þótti
takast vel og var haft viðtal í útvarpi
Jóna Sveinsdóttir.
við formenn beggja samtaka, þar sem
helstu niðurstöður voru kynntar.
Síðla árs eða þann 13. nóvember
1980 voru fyrst kynnt fyrir ráða-
mönnumí stjórn ÖBÍ. „Drög að frum-
varpi til laga um aðstoð við fatlaða,
þroskahefta og öryrkja“, eins og það
hét þá. Þetta voru fyrstu drögin að
„Lögum um málefni fatlaðra“ eins og
þau nefndust síðar. Það voru s vo haldn-
ir margir fundir, þar sem fjallað var
um þessi drög að iögum. I febrúar
1981 fékk ÖBÍ einn fulltrúa í nefnd
þeirri sem gekk frá frumvarpinu um
„Lög um málefni fatlaðra“, og síðar
urðu nefndarfulltrúar ÖBÍ. þrír. Ég
tók saman hve oft var fjallað um þetta
frumvarp að lögum um málefni fatl-
aðra á stjórnarfundum ÖBI. frá því í
nóvember 1980- 1981 ogvarþaðá 15
fundum eða nær því á hverjum fundi,
svo að það sést að þetta tiltekna mál
hefur tekið stóran hluta af tíma stjórn-
arinnar enda mikið í húfi að vel tækist
til.
Á árinu 1980 var byrjað að undir-
búa „Ár fatlaðra“ ’ 81 og átti ÖBÍ. full-
trúa í Alfanefndinni sem sá um undir-
búninginn. Það var á árinu 1980 að
það barst afar mikil og höfðingleg
gjöf frá Reykjavíkurborg til uppbygg-
ingar tækinvinnustofu Öryrkj abanda-
lagsins eða í vinnustofusjóð, en þá var
hafin bygging tengiálmunnar milli
Hátúnshúsanna, en þar urðu svo vinnu-
stofurnar til húsa ásamt öðru tengt
starfsemi ÖBÍ.
Þessi gjöf var að upphæð 300
milljónir gamalla króna, sem voru
verðtryggðar og greiddar 100 milljónir
g.kr. á ári í 3 ár. Stjórn ÖBI hafði síðan
móttöku fyrir borgarráð 28. apríl '81
á ári fatlaðra í tilefni þessarar rausnar-
legu gjafar, sem kom sér vel og var vel
þegin.
Á þessum árum átti Öryrkj abanda-
lagið sjálft ekkert sérstakt fundar-
herbergi, en hafði fundaraðstöðu í
húsnæði Endurhæfingarráðs að Hátúni
12, en það breyttist með byggingu
tengibyggingarinnar og þá fékk ÖBÍ.
bæði fundarherbergi og rúmgóða
skrifstofuaðstöðu, þó að fundaraðstaða
sé að verða í þrengsta lagi núna eftir
að aðildarfélögum fjölgaði.
á mun ég víkja að „Ári fatlaðra“
1981. Það má segja að það hafi
verið þegjandi samkomulag hjá þeim
sem voru í forystu bandalagsins að
þetta ár skyldi nýtt eins og framast var
kostur til að auka kynningu á hinum
ýmsu fötlunum og þeim málum sem
Öryrkjabandalagið taldi brýnast fyrir
öryrkja.
Með tilliti til þessa ákváðum við
að taka þátt í öllum þeim kynningum
og fundum, þar sem við vorum beðin
að koma fram og flytja mál okkar og
að neita engri slíkri málaleitan enda
má segja að árið hafi verið annasamt
og óneitanlega mæddi þar mikið á
formanninum, en ég vissi fyrirfram að
þetta yrði mikið starf.
Þessi upprifjun verður því nokkurs
konar annáll ársins 1981 séður með
augum formanns Öryrkjabandalags-
ins.
Árið hófst þann 12. janúar með
upptöku á útvarpsþætti, sem var
umræðuþáttur um málefni fatlaðra í
tilefni Alþjóðaárs fatlaðra ’81. Þar
ræddu málin og kynntu sín samtök
undir stjóm Margrétar Margeirsdóttur