Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Síða 41

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Síða 41
Friður sé með ykkur hvíslar hann svo undurlágt í hjörtum okkar að við eigum auðvelt með að heyra það ekki meðan við örkum stíf á leðurstígvélum með glitrandi hár skinnklædd á leið til jólamessu. Lítum svo undan þegar við rekumst á manninn með hækjurnar sínar og aleiguna í plastpoka. Hann enn einu sinni óhreinn með plastpokann. Meira að segja hérna. Maður er á leið til messu og rjúpan bíður í pottinum rjúpan af heiðinni potturinn logagylltur frá mangaranum sem mylur gullið mest í desember Það blæðir úr roðanum í austri en stjarnan barnsins í jötunni skín þó enn. Við sögubúar lítum ekki við bókum nema á jólaföstu sellófanið skellihlær inni í ofskreyttum jólapappír og slauffuseni undir jólatrénu. Frið og jafnrétti hrópaði Hann og Hann kastaði borðum mangaranna í allar áttir. Ófreskjur skríkja í pökkum elsku barnanna okkar stríðshetjur sem þeim er kennt að stjórna. En jatan var svo smá. Best er nú að slappa af á hóteli við gylltan sand í sól - sól - sól og liggja sem sardínur á ströndinni. Hér í Guðs eigin landi hvílum við þreyttar sálir okkar og viljum ekki muna að gömlu einmana fátæklingarnir slafra í sig kanínuogkattamat úr dósum í hreysunum sínum. Hér er hægt að tifa til kirkju jólakvöldið á leðurbandaskóm í skrautmussum. Hún hér á sjálft jólakvöldið skökk í skökkum hjólastólnum og synir hennar í gatslitnum lörfum rogast með stólinn upp kirkjutröppurnar. Að kirkjunnar þjónar skuli leyfa annað eins. Skítapakk ekki einu sinni friður á jólunum. En jatan var svo smá. Við kinkum kollum hátíðlega þegar presturinn talar um skotgrafir um eldgömul jól um lífsgæðakapphlaup og biður svo fyrir sjúkum og einmana. Þetta er hans starf veslings mannsins hugsum við og hangikjötið bíður í eldhúsi hótelíbúðarinnar góðu. Jatan var svo smá og ekkert rúm í gistihúsinu. Nína Björk. Þetta fallega og athyglisverða Ijóð gaf hún Nína Björk Fréttabréfinu. Kærar þakkir. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJAB ANDALAGSINS Tn

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.