Fréttablaðið - 14.05.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 4 . M A Í 2 0 2 0
NÝTT
– Hagkvæm matarkaup
– Heitar og ilmandi
– Ljúffengar og næringarríkar
– Án allra rotvarnarefna
VIÐSKIPTI Aðgerðir annarra ríkja
og mögulegt f lugframboð til og frá
Íslandi mun ráða miklu um hver
áhrif opnunar landamæra Íslands
verða á ferðaþjónustuna, að mati
Ernu Bjargar Sverrisdóttur, aðal
hagfræðings Arion banka. Flug
framboðið sé lykilatriði við endur
reisn ferðaþjónustunnar.
„Spurningin er því sú hvaða flug
ferðir Icelandair og önnur flugfélög
munu bjóða upp á strax í sumar.
Við höfum séð á síðustu vikum og
mánuðum nokkur f lugfélög skera
niður áætlunarflug til landsins yfir
sumarmánuðina,“ segir hún.
„Flugframboðið mun ef laust
bæði ráðast af fjárhagsstöðu f lug
félaga en ekki síður eftirspurn eftir
flugferðum. Hvenær munu einstakl
ingar treysta sér til þess að ferðast á
nýjan leik?“ nefnir Erna Björg.
– kij / sjá síðu 10
Flugframboðið
er lykilþáttur
ÍÞRÓTTIR Óformlegar þreifingar
hafa átt sér stað milli íslenskra
stjórnvalda, KSÍ og fulltrúa enskra
úrvalsdeildarliða um að æfingar
liða fyrir lokasprett ensku úrvals
deildarinnar fari fram á Íslandi.
Þetta herma heimildir Fréttablaðs
ins sem og að spænsk úrvalsdeildar
lið hafi sýnt sama áhuga. Þær hug
myndir eru styttra á veg komnar.
Útfærslur á æfingum liðanna hafa
verið ræddar nokkuð víða í stjórn
kerfinu meðal annars við sóttvarna
yfirvöld.
Keppni í ensku úrvalsdeildinni
hefur legið niðri síðan 9. mars og því
ljóst að ekki verður flautað strax til
leiks í deildinni. Enskir miðlar tala
fyrst um þriggja til fjögurra vikna
undirbúningstímabil. Það myndi
þýða að enska úrvalsdeildin færi af
stað þegar eitthvað er liðið á júní.
Það er þetta æfingatímabil sem
horft er til að fari mögulega fram
hérlendis hjá að minnsta kosti hluta
liðanna.
Þá er ekki loku fyrir það skotið
að einhverjir leikir milli liða í sjálfri
úrvalsdeildinni fari fram á Íslandi
þó sú niðurstaða sé ólíklegri. Áhugi
hérlendis er mikill enda ljóst að svo
stórt verkefni nú væri mikill fengur
fyrir íslenskt efnahagslíf. Umsvif
liðanna hérlendis yrðu umtalsverð
og kastljós fjölmiðla yrði á land
inu á meðan knattspyrnustjörn
urnar heimsþekktu dveldu hér við
æfingar.
Helsta ástæða þess að Ísland
þykir fýsilegur kostur er hvernig
yfirvöld hafa tekist á við kóróna
veirufaraldurinn sem hefur leitt
til þess að tíðni smits hér á landi er
mjög lág. Þá eru hérlendis góðir inn
viðir og nægt hótelrými.
Annar valkostur er sá að ensku
liðin æfi á sínum æfingavöllum en
öryggisráðstafanir ytra gætu orðið
mjög íþyngjandi.
Boltinn er hjá forsvarsmönnum
ensku úrvalsdeildarinnar sem ræða
þessa dagana stíft um hvernig ljúka
eigi keppnistímabilinu ytra. Næsti
fundur liðanna er þann 18. maí
næstkomandi og þá dregur til tíð
inda. Tíminn er naumur því UEFA,
evrópska knattspyrnusambandið,
hefur gefið deildunum frest til 25.
maí til að ákveða með hvaða hætti
keppni verður lokið eða hvort hún
verði blásin af.
Íslensk yfirvöld munu þó ekki
ráðast í endanlegar útfærslur á dvöl
knattspyrnuliðanna fyrr en form
legar beiðnir berast að utan. – aá, bþ
Skoða æfingar enskra liða hér
Óformlegar þreifingar um komu enskra úrvalsdeildarliða til æfinga hér á landi á næstu vikum hafa átt
sér stað undanfarna daga. Árangur Íslands í baráttunni við kórónaveirufaraldurinn er helsta ástæðan.
Næsti fundur liðanna er
18. maí næstkomandi og þá
dregur til tíðinda.
Laxagildra með teljara sem þjónað hefur í Elliðaánum í um hálfa öld var sett niður í allra síðasta sinn í gærkvöldi. Jóhannes Sturlaugsson, fiskifræðingur hjá Laxfiskum, sem var þar ásamt
mönnum sínum, segir að næsta sumar taki nýr og meðfærilegri teljari við. Verða þá steyptir stöplar í ána svo koma megi gildrunni með teljaranum fyrir með handaf li. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI