Fréttablaðið - 14.05.2020, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 14.05.2020, Blaðsíða 44
Nú styttist í að upp-tök u m á st ut t-my n d i n n i R á n ljúki, en um er að ræða alvestfirska framleiðslu. Söfn- un stendur yfir til að klára frágang á myndinni en þeim, sem leggja henni lið, gefst kostur á að velja hvernig hún endar. Myndin er hug- arfóstur Fjölnis Baldurssonar sem fer einnig með leikstjórn. Rán fjallar landsbyggðardrenginn Gunnar sem þarf að fara í næsta bæjarpláss til að sækja kærustu sína til vinnu. Fer þá af stað æsispennandi atburðarás, þar sem Gunnar hittir meðal ann- ars dularfullan puttaferðalang að nafni Rán. „Þema myndarinnar er mann- legur breyskleiki, freistingar og hvernig ein ákvörðun getur sett allt á annan endann,“ segir Fjölnir. Hugmyndina segist hann hafa fengið frá eigin reynslu af því að ferðast á puttanum. „Ég hef farið í kringum landið og um alla Evrópu á puttanum. Þetta er í raun bara byrjun á sögu, ég var að gera handrit að mynd í fullri lengd. Fannst bara þessi byrjun á myndinni þannig að hægt væri að gera hana sjálfstæða. Smám saman stækkaði sagan, fór á flug og þá bara varð ég að gera hana.“ Hefur lent í ýmsu á vegum úti Hann segir söguna innblásna af atburðum sem áttu sér raunveru- lega stað. „Ég var einu sinni tekinn upp í bíl af konu á besta aldri. Hún var úr sveit og ég var þar eina nótt og lenti í vandræðalegri uppákomu sem ég get ekki sagt nánar frá, án þess að spilla sögunni í myndinni. Myndin er lituð af svörtum húmor með dass af smá erótík,“ segir hann. Hann segist hafa lent í ýmsum ævintýrum á ferðalögum sínum um Evrópu. „Maður lenti í ýmsu, eins og að hoppa út úr bíl á hraðbraut á fullri ferð, líkamsleit af hermönnum í Frakklandi vegna gruns um hryðju- verkastarfsemi og svo auðvitað sagan sem varð mér innblástur við gerð myndarinnar,“ segir Fjölnir. Aðalleikkonan og aðstoðarleik- stjórinn veiktust bæði af COVID-19 en náðu heilsu og losnuðu úr sóttkví áður en að tökurnar hófust. „Við stefnum svo ótrauð á að frumsýna í september og ætlum að hafa eina fyrir sunnan og aðra hjá Dúa í besta bíóinu á Ísafirði,“ segir hann. Þrjár útgáfur Ákveðið var að taka upp þrjár útgáfur af endi myndarinnar. Þeir sem leggja söfnuninni lið fá að sjá allar útgáfurnar og velja endinn sem sem þeim finnst bestur. „Ef menn hafa leikstjóradraum- inn í maganum, þá er þetta ekki vitlaust start,“ segir Fjölnir kíminn. Hann segir það hafa verið lítið mál að manna í stöður við gerð myndarinnar, enda mikið af hæfi- leikafólki að finna fyrir vestan. „Við erum með heimsklassa myndatökumann, hann Baldur Pál, og frábæran hljóðmann sem gerði allt til að ná réttu hljóði. Hann var oft í skottinu við tökur á atriðum inni í bílnum. Svo stóðu allir sig dásamlega. Magnús og Ninna eru að sunnan og smellpössuðu inn í hópinn. Við erum með vel val- inn leikarahóp, ásamt því að hafa menn í aukahlutverkum sem voru bara þeir sjálfir. Hlutverkin voru þá skrifuð fyrir þá,“ segir Fjölnir. Flúði útgöngubannið á Spáni Fjölnir hefur verið með annan fótinn á Spáni, og stefndi á að vera f luttur þangað alfarið, en vegna veikinda í fjölskyldunni var því frestað um ár. „Ég var að fínpússa handritið og sleikja sólina þegar þessi lokun kom á úti. Þetta voru skrítnir tímar, að mega ekki fara út nema í búðina, en maður keypti bara einn hlut í einu og fékk ágætis hreyfingu. Síðan komst ég heim með síðasta f lugi Norwegian til að komast í upptök- urnar. Ég sé fram á að vera áfram á Íslandi og búa til meira bíó.“ Fjölnir hefur starfað sem sjómað- ur um árabil en sinnir sjómennsk- unni nú í hálfu starfi til að geta sinnt ástríðu sinni fyrir kvikmyndagerð. „Sjómennskan er meira en fullt starf, svo nú er ég kominn í hálft starf á sjó. Það ákvað ég til að geta klárað þetta verk og undirbúið stóra kvikmynd sem á að taka upp á næsta ári. Síðustu ár hef ég verið að sanka að mér búnaði til að gera kvikmyndir, sem ég hefði aldrei getað nema af því að ég hef verið á sjó og þénað vel,“ segir hann. Hægt er að leggja söfnuninni lið á karolinafund.com. steingerdur@frettabladid SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is ÉG VAR EINU SINNI TEKINN UPP Í BÍL AF KONU Á BESTA ALDRI. HÚN VAR ÚR SVEIT OG ÉG VAR ÞAR EINA NÓTT OG LENTI Í VANDRÆÐA- LEGRI UPPÁKOMU SEM ÉG GET EKKI SAGT NÁNAR FRÁ, ÁN ÞESS AÐ SPILLA SÖGUNNI Í MYND- INNI. FRÍTT KAKÓ OG KAFFI Í EINUM GRÆNUM Renndu við í næstu verslun okkar og gríptu með þér rjúkandi bolla af kakó eða kaffi í okkar boði. Hlökkum til að sjá þig. Fékk hugmyndina frá eigin reynslu af puttaferðalögum Stuttmyndin Rán er hugarfóstur kvikmyndagerðar- og sjómanns- ins Fjölnis Baldurssonar. Hann er Ísfirðingur í húð og hár og var töku- og leikaraliðið að mestu mannað með fólki að vestan. Nú stendur yfir söfnun til að klára frágang myndarinnar. Fjölnir stefnir á að gera kvikmynd í fullri lengd á næsta ári. MYND/AÐSEND 1 4 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.