Fréttablaðið - 14.05.2020, Side 4
ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
FÁRÁNLEGA LÁGT VERÐ Á NÝJUM DEKKJUM!
Við bjóðum upp á takmarkað magn af hjólbörðum fyrir fólksbíla, minni jeppa,
stærri jeppa og pallbíla. Ný og ónotuð dekk á ótrúlegu lágu verði.
Uppgefið verð er heill umgangur eða 4 DEKK MEÐ VSK.
Þekkt merki í boði s.s.: Michelin, Goodyear, Pirelli, Bridgestone, Firestone, Continental,
Kumho og Falken. Hér fyrir neðan má sjá dæmi um hvaða dekk og stærðir eru í boði:
225/55R18 - 4 stk. sumardekk - 59.000 kr.
225/60R17 - 4 stk. sumardekk - 59.000 kr.
225/70R17 - 4 stk. sumardekk - 59.000 kr.
215/60R17 - 4 stk. sumardekk - 49.000 kr.
265/60R18 - 4 stk. sumardekk - 80.000 kr.
265/50R20 - 4 stk. sumardekk - 99.000 kr.
275/70R18 - 4 stk. sumardekk - 69.000 kr.
285/60R20 - 4 stk. sumardekk - 99.000 kr.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ISBAND.IS, DEKK@ISBAND.IS OG Í SÍMA 620-2321
FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ
DÓM S M ÁL Sigrún Guðmunds-
dóttir, dómari við Héraðsdóm
Reykjavíkur, hafnaði í gær kröfu
um að hún víki sæti sem dómari í
máli Erlu Bolladóttur gegn íslenska
ríkinu. Í málinu gerir Erla kröfu
um að úrskurður endurupptöku-
nefndar um synjun á beiðni hennar
um endurupptöku á hennar þætti
í Guðmundar- og Geirfinnsmálum
verði felldur úr gildi.
Krafa Erlu um að Sigrún víki
sæti byggir á því meðal annars að
afstaða hennar til sönnunargagna
í málinu liggi fyrir og af því leiði
að úrslit málsins séu ráðin áður en
málið er f lutt og dómtekið en Sig-
rún sýknaði íslenska ríkið nýverið
í bótamáli Guðjóns Skarphéðins-
sonar.
Í úrskurði sem Sigrún kvað upp
í gær segir meðal annars að þótt
dómari taki afstöðu í einu máli til
sönnunaratriðis eða sönnunar-
gagns geri það hann ekki vanhæfan
til að taka rökstudda afstöðu til
sömu atriða eða gagna í öðru máli.
Ragnar Aðalsteinsson segir í sam-
tali við Fréttablaðið að úrskurður-
inn verði kærður til Landsréttar.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá eru lögmenn Kristjáns Viðars
Júlíussonar og dánarbús Tryggva
Rúnars Leifssonar einnig ósáttir við
að málum skjólstæðinga þeirra hafi
verið úthlutað til Sigrúnar eftir að
dómur í máli Guðjóns var kveðinn
upp en þeir hafa gert sambærilegar
bótakröfur og ríkið var sýknað af í
máli Guðjóns.
Þetta þýðir að öllum eftirmálum
sýknudóms Hæstaréttar í Guð-
mundar- og Geirfinnsmálum, sem
ratað hafa aftur til dómstóla hefur
verið úthlutað til sama dómara.
Í dómstólalögum er kveðið á um
að dómstjóri hvers og eins héraðs-
dómstóls annist úthlutun mála til
dómara. Í lögunum segir að gæta
beri að því að starfsálag á dómar-
ana sé sem jafnast og skal leitast
við eftir föngum að tilviljun ráði
hvaða dómari fær mál til meðferðar.
Er reglunni meðal annars ætlað að
tryggja að mál séu flutt fyrir óháð-
um og óhlutdrægum dómstól. – aá
Dómari hafnar kröfu um að víkja sæti vegna vanhæfis í máli Erlu Bolladóttur
DÓMSMÁL Áralangur málarekstur
hefur staðið yfir innan þjóðkirkj-
unnar um fyrirhugaða kirkju-
byggingu á Hvolsvelli. Kirkjuráð
samþykkti að veita úthlutanir úr
jöfnunarsjóði sókna árin 2009 til
2011, samanlagt 30 milljónir króna,
sem voru þó ekki greiddar út úr
sjóðnum, og vilyrði fyrir 20 millj-
óna króna árlegum greiðslum árin
2012 til 2015.
Sóknin, Stórólfshvolssókn, sótti
eftir því í upphafi árs 2015 að 10
milljónir yrðu greiddar út, sam-
kvæmt áætlun til þess að klára
teikningar. Var því svarað á þá leið
að skilyrði hefðu ekki verið uppfyllt
og síðar sama ár ákvað kirkjuráð að
fella greiðslurnar niður.
Halldór Gunnarsson, eða Hall-
dór í Holti eins og hann er gjarnan
kallaður, er nú formaður byggingar-
nefndar Stórólfshvolssóknar. Hann
var í kirkjuráði þegar úthlutanirnar
voru samþykktar en nýtt ráð tók við
árið 2011 sem setti viðauka við.
„Ég tel að hrunið sé ástæða fyrir
þessu. Kirkjuráð vildi spara og
fresta greiðslunni,“ segir Halldór,
aðspurður um þennan viðsnúning.
„Það var farið fram á að leysa þyrfti
úr þessu og laga þetta og þetta,
sem sóknarnefndin gerði en gafst
síðan upp. Þegar ég f lutti á Hvols-
völl og var kosinn formaður bygg-
ingarnefndar vissi ég nákvæmlega
hvernig staðið var að þessu máli og
vildi ekki una meðferðinni sem ég
taldi ólöglega.“
Stórólfshvolssókn fór með málið
fyrir úrskurðarnefnd kirkjunnar og
vann. En kirkjuráð vísaði til áfrýj-
Áralangur málarekstur um
kirkjubyggingu á Hvolsvelli
Í gær fór í annað skipti fyrir héraðsdóm mál Stórólfshvolssóknar í Rangárvallasýslu gegn kirkjuráði.
Málið snýst um meintar vanefndir á greiðslum fyrir nýja kirkjubyggingu á Hvolsvelli. Það hefur einnig
farið milli nefnda innan kirkjunnar og ítrekaðar sáttatilraunir milli aðila hafa ekki borið árangur.
Sættir á milli kirkjuráðs og Stórólfshvolssóknar hafa ekki náðst þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir, meðal annars með aðkomu biskups. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar-
lögmaður fer með málið fyrir Erlu.
Að standa að
málum eins og
kirkjan hefur gert er algjör-
lega til skammar.
Halldór
Gunnarsson,
fyrrverandi
sóknarprestur
unarnefndar sem sneri málinu við.
Var sá úrskurður kærður til héraðs-
dóms, á þeim grunni að áfrýjunar-
nefndin hefði ekki verið skipuð
sérfróðum mönnum, og vorið 2018
dæmdi héraðsdómur sókninni í
vil, en Jón Magnússon hefur rekið
málið fyrir hana.
Tók áfrýjunarnefnd málið aftur
upp og úrskurðaði á nýjan leik í
ágúst árið 2019, kirkjunni í vil, og
sá úrskurður var einnig kærður til
héraðsdóms. Fór aðalmeðferð þess
máls fram í gær, og laut meðal ann-
ars að vanhæfi nefndarmannanna
Jóhannesar Karls Sveinssonar og
Hildar Briem í ljósi fyrri aðkomu
að málinu, að hið nýja málskot til
áfrýjunarnefndar hefði verið ógilt
og að kirkjuráð sjálft hefði ekki
tekið ákvörðun um málskot.
Gestur Jónsson rekur málið fyrir
kirkjuráð, og sagði fyrir dómi í gær
að í ljósi niðurstöðu héraðsdóms
frá 2018 hefði ekki verið annað í
stöðunni fyrir áfrýjunarnefndina
en að halda málinu áfram, þar til
aðilar fengju úrlausn. Hvað varðar
vanhæfi nefndarmanna sagði hann
greinargerðir nefndarmanna eftir
kæru væru ekki tilefni vanhæfis, þá
væri hægt að losa sig við hvern sem
er með því að kæra.
Sættir hafa ítrekað verið reyndar
á milli kirkjuráðs og sóknarinnar,
meðal annars með aðkomu biskups.
Síðast voru sættir reyndar í haust,
en boð kirkjunnar var langt frá því
að vera ásættanlegt að mati sóknar-
innar.
„Ég hygg að Rangárvallasýsla sé
sú eina í landinu sem hefur ekki
stóra kirkju til að halda sínar útfarir
í. Stærri útfarir eru sóttar annars
vegar til Selfoss eða í Skálholt,“
segir hann. „Við gerum þá kröfu
að þjóðkirkjan standi við það að
ein stærri kirkja rísi í Rangárvalla-
sýslu. Sérstaklega með tilliti til þess
að í sýslunni hafa verið seld prests-
setur fyrir mjög mikið fé, sem hefur
runnið til kirkjumálasjóðs og Bisk-
upsstofu. Að standa að málum eins
og kirkjan hefur gert er algjörlega til
skammar.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær 14 ára fangelsisrefsingu yfir
Vigfúsi Ólafssyni fyrir brennu og
manndráp af ásetningi. Hæstiréttur
féllst á að taka málið á Selfossi til
meðferðar enda gæti úrlausn rétt-
arins um mörk ásetnings og gáleysis
haft verulega almenna þýðingu.
Í dóminum segir að þótt mörk
gáleysis og ásetnings geti skarast
verði að leggja til grundvallar það
mat Landsréttar að ákærða hafi
ekki getað dulist afleiðingar þess að
kveikja eld í stofu íbúðarhússins og
að hann taldi ákærða hafa haft vit-
und um afleiðingar háttsemi sinnar
en engu að síður látið sér í léttu
rúmi liggja hvort eldurinn breiddist
út þannig að mönnum yrði lífsháski
búinn, eignatjón yrði og líklegt væri
að þeir sem væru á efri hæð kæmust
ekki undan og biðu bana. – aá
Vigfús sekur um
ásetningsbrot
EFNAHAGSMÁL Rúmlega 96 pró-
sent afgreiddra umsókna frá fyrir-
tækjum um greiðslufrest á lánum
hafa verið samþykktar. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Samtökum
fjármálafyrirtækja.
Ná tölurnar yfir tímabilið frá 23.
mars, þegar Samkeppniseftirlitið
veitti undanþágu fyrir samkomu-
lagi um slíka greiðslufresti, og til 4.
maí. Alls bárust 1.664 umsóknir til
lánastofnana á tímabilinu og höfðu
90 prósent þeirra verið afgreiddar.
Rúmlega 70 prósent fyrirtækj-
anna sem sóttu um greiðslufrest
teljast örfyrirtæki sem þýðir færri
en tíu starfsmenn. Tæplega 20
prósent eru lítil fyrirtæki þar sem
starfsmenn eru færri en 50. – sar
Langflest fá
greiðslufrest
Ákærða hafi ekki getað
dulist afleiðingar þess að
kveikja eld í stofunni.
1 4 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð