Fréttablaðið - 14.05.2020, Page 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Konurnar sem vinna í Ourika-garðinum hafa þekkingu á svæðinu umfram aðra og eru í raun sérfræðingar. Þær eru ánægðar með þetta atvinnutækifæri.
Í nýju vörulínunni Pure Shots frá YSL Beauty er notast við hrein, náttúruleg efni sem
eiga uppruna sinn að rekja til
Marokkó. Ourika-garðurinn þar
sem ræktunin á sér stað er nálægt
Atlasfjöllum. Þar stýrir heimafólk
gróðursetningu, greiningu og upp-
skeru. Einstök veður- og loftslags-
skilyrði gera það að verkum að
plönturnar framleiða öflug, virk
innihaldsefni sem skila ávinningi
fyrir húðina.
„YSL Beauty tókst að einangra og
vinna hvert og eitt virkt innihalds-
efni á áhrifaríkan og hreinan hátt.
Línan byggir á hreinum formúlum
sem eiga uppruna sinn að rekja til
náttúrunnar og með hjálp vísinda
hefur YSL Beauty tekist að sam-
eina í þessari línu þessa tvo þætti,
náttúru og vísindi. Allar vörurnar
eru án parabena og koma í endur-
vinnanlegum og áfyllanlegum
umbúðum,“ segir Þóra Matthías-
dóttir vörumerkjastjóri hjá Terma.
Eftir miklar rannsóknir og
greiningarvinnu við þróun þess-
arar nýju línu kom greinilega í
ljós mikilvægi ákveðinna, virkra
innihaldsefna og vinnur YSL
Beauty náið með samstarfsaðilum
sínum í gegnum allt ferlið. Frá
gróðursetningu til uppskeru og
loks vinnslu, fara innihaldsefnin
í gegnum strangt ferli til að bæta
árangurinn enn frekar, að sögn
Þóru. Formúlurnar eru sérstaklega
þróaðar með tilliti til nákvæmlega
réttra hlutfalla af nauðsynlegum,
virkum innihaldsefnum. Það er
gert til að hámarka samstundis
árangur og skila auk þess lang-
varandi árangri án þess að breyta
þeim kröfum sem YSL Beauty gerir
um upplifun á áferð og lúxus.
„PURE SHOTS línan er ekki
eingöngu möguleiki fyrir konur
sem vilja lifa þeim lífsstíl sem þær
kjósa án þess að það komi niður á
húðinni. Fyrir tilstuðlan Ourika-
garðs YSL Beauty hefur samfélag
kvenna, sem áður höfðu hvorki
atvinnu né hlutverk, nú fengið ný
tækifæri til að nýta sérþekkingu
sína á heimasvæði sínu,“ segir
Þóra.
Landsvæðið er í eigu YSL Beauty
og í þessu samfélagslega verkefni
var hugmyndin að styrkja og efla
konur á þessu svæði þar sem ekki
var neina atvinnu að fá. Þetta
samfélag hefur fengið tækifæri til
að vinna, og nýta hæfileika sína á
arðbæran hátt. Samfélag kvenna
annast alla ræktun og uppskeru
og YSL Beauty greiðir síðan fyrir
uppskeruna.
Það sem áður var ónýtt og
óræktað svæði er nú einn helsti
staðurinn sem YSL Beauty sækir
efni í framleiðslu sína á snyrti-
vörum til. Beint til upprunans.
Innihaldsefni úr garðinum eru
meðal annars notuð í einhvern
vinsælasta farða YSL, Touché Eclat
Le Teint.
Ræktunarskilyrðin auka
ávinning efnanna
„Virku efnin í Pure Shots vörunum
koma frá Ourika-garðinum. Stað-
setningin gerir það að verkum
að plönturnar vaxa við harðgerð
loftslags- og veðurskilyrði og
mikinn hita. Það gerir þær öflugri
og sterkari og eykur ávinning
efnanna sem unnin eru úr þeim
fyrir húðina,“ segir Þóra.
„Vinnsluferlið hefur einnig
sérstöðu þegar kemur að orku-
sparnaði og umhverfisáhrifum.
Notast er við kalt og hægt vinnslu-
ferli, til að varðveita sem best inni-
haldsefnin og ná því hreinasta úr
vörunni. Lágt hitastig við vinnslu
varðveitir hreinleika efnanna og
hægt ferlið skilar hæsta mögulega
magni af virkni þeirra. Notast er
við minni orku og minna vatn við
Efni úr blómunum eru notuð í Touché Eclat Le Teint farðann vinsæla.
þetta vinnsluferli og hefur það
þannig minni áhrif á umhverfið.“
Þóra heimsótti Ourika-garðinn
sumarið 2019 þar sem hún fékk að
fylgjast með konunum að störfum.
„Það var virkilega skemmtileg upp-
lifun að fá tækifæri til að kynnast
uppruna vörunnar á þennan hátt
og fá innsýn í þá menningu sem
landið hefur að geyma. Að komast
í þetta návígi við innihaldsefnin
og kynnast fólkinu sem er á bak
við þá miklu vinnu sem ræktunin
er, gerir ekkert annað en að auka
skilning og sannfæringu. Það er
eitt að heyra um og lesa sér til um
hlutina, en að upplifa þá á þennan
hátt og fá að fylgjast með í þessari
miklu nálægð sem ég fékk tækifæri
til, er annað,“ segir hún.
„Snyrtivörubransinn byggir
mikið á því að uppfylla þarfir
kvenna, sem oft á tíðum eru
byggðar á útliti. Tilgangurinn er að
draga fram það besta í hverri konu
á því sviði. En það samfélagslega
starf og uppbygging sem á sér stað
við ræktunina er ekki síður mikil-
vægt. Það var virkilega gleðilegt
og lærdómsríkt að fá að hitta þetta
samfélag og þessar konur.
Þær höfðu allar sömu sögu að
Touché Eclat Le Teint farðinn.
segja um betri lífsgæði, góðar
vinnuaðstæður og tækifærið
sem þeim gafst til atvinnu á sínu
heimasvæði, með ræktun þessa
landsvæðis. Þær hafa þekkingu
á svæðinu umfram aðra og eru
í raun sérfræðingar. Það má því
segja að valdefling kvenna eigi
sér stað á öllum stigum þegar
kemur að framleiðslu og notkun
varanna. Mín upplifun var einnig
sú að þessi útfærsla, að fela þeim
ábyrgðina á uppskerunni þar sem
YSL Beauty kaupir í raun upp-
skeruna eftir magni og gæðum,
skili þeim auknum ávinningi og
hafi hvetjandi áhrif fyrir þetta, ef
svo má segja, nýja samfélag.“
Máttur næturinnar
innblástur nýju línunnar
Teymi sérfræðinga úr röðum
líffræðinga, umhverfisfræðinga,
húðlækna og grasafræðinga hefur
rannsakað áhrif nútímalífsstíls og
umhverfisáhrifa á húðina og Pure
Shots línan byggir á rannsóknum
þessara þátta.
„Umhverfið, of mikil vinna og
óreglulegur vinnutími sem oftar
en ekki leiðir af sér streitu, skort á
svefni og fleiri þætti sem hafa áhrif
á húðina og auka líkurnar á ótíma-
bærri öldrun húðar um 30%, voru í
lykilhlutverki við þróun línunnar,“
segir Þóra.
„Miklar kröfur og álag sem
fylgir nútímalífsstíl hefur áhrif á
starfsemi húðar. Veldur því að hún
hættir að starfa eðlilega og frumu-
endurnýjun endar í lágmarki.
Stjörnuvara Pure Shots línunnar,
Night Reboot serumið, er sérstak-
lega þróað með þetta vandamál í
huga. Það byggir á einstakri sam-
vinnu náttúru og vísinda. Gróf eða
ójöfn húð verður mýkri, sléttari
og áferðin fallegri. Night Reboot
serumið fjarlægir dauðar húð-
frumur, örvar frumuendurnýjun
og verndar nýjar frumur.“
Serumið inniheldur 3,4% glyco-
lic sýru sem slípar yfirborð húðar
og hefur endurnýjandi eiginleika.
Það inniheldur einnig náttúru-
leg innihaldsefni unnin úr blómi
drottningar næturinnar (moon-
light cactus flower), kaktuss sem
blómstrar einu sinni á ári. Efnin
úr blóminu komast dýpra niður
í húðlögin og hafa viðgerðar- og
verndandi eiginleika.
„Máttur næturinnar var inn-
blástur þessarar nýju línu þar
sem nóttin gegnir lykilhlutverki
í lífinu. Herra Saint Laurent var
sannkallaður nátthrafn og nætur-
lífið spilaði stórt hlutverk í hans
lífi. Nóttin er tíminn þar sem hægt
er að fá næði frá amstri dagsins og
hún er einnig tíminn sem sjald-
gæfur kaktus blómstrar, einu sinni
á ári yfir eina nótt. Lífsvökvi þessa
blóms er notaður í formúlu þessa
einstaka nætur-serums,“ segir
Þóra.
Framhald af forsíðu ➛
Night Reboot úr Pure Shots línunni.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . M A Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R