Fréttablaðið - 14.05.2020, Síða 22
Drífa útskrifaðist úr fata-hönnunardeild Listahá-skóla Íslands árið 2014.
Áður hafði hún lært við textíldeild
Fjölbrautaskólans í Breiðholti og
hefur textíláhuginn fylgt henni æ
síðan. Eftir LHÍ fór Drífa í starfs-
nám í London og að því loknu
sneri hún aftur heim til Íslands.
„Ég tók mér smá pásu, náði mér í
landvarðarréttindi og starfaði sem
landvörður um tíma. Mig fór þó
f ljótt að lengja eftir meiri sköpun í
lífi mínu,“ segir Drífa.
Þá hélt hún í eins árs meistara-
nám í fatahönnun til Parísar þar
sem hún sérhæfði sig í nýjum
efnum og tækni. „Ég komst að því
að það var ekki beint það sem ég
hafði áhuga á og vissi að ég vildi
fara aftur í grunninn. Ég komst í
leiðinni að því að eitt ár er hvergi
nægur tími fyrir meistaranám.“
Á kúpunni í Berlín
Eftir París bjó Drífa í eitt ár í
Berlín. Þar var hún á kúpunni,
eins og hún orðar það og nýtti
tímann til þess að auka færni
sína í myndvinnsluforritunum
Illustrator og Photo shop. Einnig
teiknaði hún mikið, saumaði út
og prjónaði. „Ég gerði þetta mér
til dægrastyttingar, vegna þess
að handverk er afar tímafrekt en
skemmtilegt og þegar maður þarf
að hafa ofan af fyrir sér á ódýran
hátt getur handverk og sjálfsnám
verið ágætt.“
Það var þarna sem eitthvað
small hjá Drífu. „Ég fékk í kjöl-
farið verulegan áhuga á mynstur-
gerð og grafík. Þrátt fyrir að vera
komin með meistaragráðu fannst
mér ég ekki vita nóg um efni og
hegðun þeirra. Allt frá því ég var í
textíldeild FB hef ég umgengist og
pælt í textíl og fatnaði. Áhuginn
blossaði upp aftur og ég ákvað að
fara í diplómanám í textíldeild í
Myndlistaskólanum í Reykjavík.
Ég hef getað nýtt mér námið í MÍR
til hins ýtrasta.“
Tískan er praktískt listaverk
Textílhönnuðurinn Drífa Líftóra Thoroddsen leitar innblásturs í myrkrið, drungann, skrímsli,
geimverur, geiminn, þjóðsögur og ofsa náttúrunnar og bera textílverk hennar skýr merki þess.
Drífa sýnir lokaverkefnið í Gryfjunni, Ásmundarsal, ásamt bekknum sínum í júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hannaði línu af sjö mynstrum
Mynstrin hennar Drífu geta öll
staðið sér, en stemma einnig þegar
þau eru lögð ofan á hvert annað.
Afraksturinn af þrykkvinnunni er
bæði andlegur sem og líkamlegur.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Kannar myrkfælni á
grundvelli mynstra
Eins og er vinnur Drífa nú hart
að lokaverkefni sínu í textíldeild
Myndlistaskólans í Reykjavík.
Hún segir að sinn helsti innblástur
komi frá fyrirbærum sem vekja
ótta hjá henni. „Skrímsli, geim-
verur og geimurinn, þjóðsögur
og ofsi náttúrunnar hafa fram til
þessa veitt mér mikinn innblástur.
Ég lifi mig alltaf svo mikið inn í
hluti að óttinn verður spennandi.
Þegar ég hanna vinn ég mikið með
sjónhverfingar og hugmyndina
um sjónhverfingar. Það heillar mig
hvernig má umbreyta manns-
líkamanum í ókunna veru með
spennandi sníðagerð eða áhrifa-
miklum mynstrum.“
Drífa heillaðist fyrst af tísku
þegar hún var unglingur. „Þegar ég
uppgötvaði Alexander McQueen
og sá hvernig hann braut upp
tískusýningarformið varð ég mjög
innblásin og það rann upp fyrir
mér hvernig hægt væri að sameina
alla listmiðla innan tískunnar.
Og það er líka það sem ég fíla við
tísku. Hún er praktískt listaverk.“
Völundarhús hugans og
væmin blómaveggfóður
Drífa hefur sérhæft sig í silkiþrykki
í náminu. „Í lokaverkefninu kanna
ég reynslu mína af myrkfælni á
grundvelli mynstra. Ég hef hannað
línu af sjö mynstrum sem byggja
meðal annars á hugmyndinni
um myrkfælni sem völundarhús
hugans og væmin blómaveggfóður
sem taka umbreytingum í fjórðu
víddinni.
Mynstrin eru sérstök að því
leyti að þau geta öll staðið sér, en
stemma líka þegar þau eru lögð
ofan á hvert annað. Þetta gerir það
að verkum að hægt er að skeyta
þeim saman á ótal vegu og þá fást
tugir möguleika á mismunandi
mynstrum út frá sjö mynsturein-
ingum. Síðan þrykki ég mynstrin
og sauma úr þeim flíkur, sem ég
hef hannað til að passa saman,
líkt og mynstrin. Þannig er hægt
að blanda saman mismunandi
efnum, mynstrum og sniðum.
Það sem mér finnst unaðslegt
við að þrykkja er hversu líkam-
legt það er, en jafnframt nákvæmt.
Eftir margra mánaða vinnu við
að stara á tölvuskjá í nákvæmnis-
vinnu er æðislegt að sjá mynstrin
lifna við og ganga upp á efninu.
Ég tala nú ekki um líkamsræktina
sem þrykkið er. Afraksturinn er
bæði andlegur og líkamlegur.“
Drífa mun sýna lokaverkefni
sitt í Gryfjunni í Ásmundarsal
ásamt bekkjarsystrum sínum í júlí.
„Síðan langar mig að þróa loka-
verkefnið mitt í litla línu sem ég get
sýnt og selt. Í framtíðinni langar
mig að starfa við að þrykkja og
hanna mynstur, föt og aðra grafík.
Síðan fer ég jafnvel í starfsnám til
Japans, þegar aðstæður leyfa.“
Drífa Líftóra Thoroddsen er
spennandi og upprennandi textíl-
hönnuður sem gefur okkur fulla
ástæðu til þess að fylgjast með sér í
framtíðinni.
Það heillar mig
hvernig má
umbreyta mannslíkam-
anum í ókunna veru með
spennandi sníðagerð.
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
FLOTT
SUMARFÖT,
FYRIR FLOTTAR
KONUR
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . M A Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R