Víkurfréttir - 02.01.2020, Blaðsíða 1
NETTÓ Á NETINU
- ÓDÝRT OG ÞÆGILEGT -
Sparaðu tíma og gerðu matarinnkaupin á netinu.
Þú velur um að fá heimsent eða að sækja
í Nettó Krossmóum.
Átt þú rétt á
slysabótum?
Við hjálpum þér
að leita réttar þíns
TORT
INNHEIMTA SLYSABÓTA
HAFÐU SAMBAND 511 5008
UMFERÐASLYS
VINNUSLYS
FRÍTÍMASLYS
MÁR
MAÐUR ÁRSINS 2019
MÁR GUNNARSSON er maður ársins 2019 á Suðurnesjum. Már hefur
með árangri sínum í sundi og tónlist sýnt að honum eru allir vegir færir,
jafnvel þótt hindranir séu á leiðinni. Með jákvæðni, baráttu og ástundun
er hægt að komast langt í þeim verkefnum sem maður tekur sér fyrir
hendur. Fjölmörg met í vatninu og framúrskarandi árangur í tónaflóði
sýna það. Már er í viðtali við Víkurfréttir í miðopnu blaðsins í dag og
einnig í Suðurnesja magasíni sem sýnt er á sjónvarpsstöðinni Hringbraut
og á vf.is á fimmtudagskvöld kl. 20:30.
Nýársþáttur
fimmtudaginn 2. janúar kl. 20:30
á Hringbraut og vf.is
Már Gunnarsson
SUNDIÐ & TÓNLISTIN
Hafdís Hulda Garðarsdóttir var dúx á
haustönn Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Að
þessu sinni útskrifuðust 59 nemendur;
46 stúdentar, fjórtán úr verknámi, sex
úr starfsnámi og einn af framhaldsskóla-
braut starfsbraut. Þess má geta að sumir
luku prófi af fleiri en einni braut. Karlar
voru 31 og konur 28. Alls komu 37 úr
Reykjanesbæ, tólf úr Grindavík, níu
úr Suðurnesjabæ og einn frá Eskifirði.
Sjá nánar á síðu 12 í blaðinu í dag.
HAFDÍS HULDA
DÚX FRÁ FS
HS Veitur hafa lagt til við bæjar-
yfirvöld í Sveitarfélaginu Vogum
að tengja vatnsveitu Voga við
vatnsveitukerfi HS Veitna í Innri-
Njarðvík. Þetta er gert í stað þess
að virkja nýja vatnsveitu í Vogum.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga
hefur lagt til að bæjarstjórn sam-
þykki fyrir sitt leyti að þessi leið
verði farin að uppfylltum skil-
yrðum, enda stofnkostnaður við
hana umtalsvert lægri en fram-
kvæmdir við nýtt vatnsból. Bæjar-
stjóra verði jafnframt falið að leita
samþykkis og nauðsynlegra leyfa
hjá eigendum þess lands sem lögnin
fer um og setja í gang aðra vinnu,
s.s. skipulagsvinnu, reynist slíkt
nauðsynlegt.
Vogar fái vatn
úr Njarðvík
Bæjarráði Suðurnesjabæjar bárust tvö
erindi fyrir síðasta fund ráðsins þar
sem harmað er að aðventuheimsóknir
nemenda í Gerðaskóla til Útskála-
kirkju í aðdraganda jóla hafi verið
lagðar af. Guðrún B. Sigurðardóttir,
sviðsstjóri fjölskyldusviðs, og Kristín
Helgadóttir, deildarstjóri fræðslu-
deildar, sátu fundinn undir þessum
dagskrárlið.
Í afgreiðslu bæjarráðs segir að bæjarráð
bendi á að bæjarstjórn hafi ekki mótað
stefnu varðandi heimsóknir nemenda
grunnskóla í kirkju í aðdraganda jóla
og erindunum vísað til fræðsluráðs
til umræðu.
Harma að kirkju-
heimsóknir hafi
verið aflagðar
fIMMtUdAgUR 2. jANúAR 2020 // 1. tbl. // 41. ÁRg.
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum ■ aðalsímanúmer 421 0000 ■ auglýsingasími 421 0001 ■ fréttasími 898 2222